Leik lokið!
Súrt tap staðreynd á vonbrigðakvöldi. Eftir jákvæðan fyrri hálfleik var okkur refsað. Sköpuðum okkur ekki nóg í dag en það er stutt í næsta leik og kjörið tækifæri að koma til baka.
Nánari umfjöllun um leikinn mun koma inn á Fótbolta.net frameftir kvöldi
93. mín
Andri Lucas og Florin Nita lenda í samstuði og steinliggur Nita eftir þessi samskipti. Stendur svo upp og virðist lítið kenna sér meins.
Töltir aftur í markið og leggst svo í grasið þegar leikurinn er stopp og fær skammir fá eigin fyrirliða.
93. mín
Birkir Már í flottu hlaupi en kemur ekki boltanum fyrir markið.
92. mín
Gult spjald
Ísak Bergmann Jóhannesson
Ekki var það Ísak sem fékk gult áðan en hann fær allavega gult spjald hér.91. mín
Ísland fær horn en ekkert verður úr því.
90. mín
Uppbótartími er að minnsta kosti fjórar mínútur.
89. mín
Tíminn er að renna út og fátt sem bendir til þess að við ætlum að setja mark okkar á leikinn eða hleypa spennu í hann aftur.
87. mín
InnAdrian Rus
ÚtAlexandru Cicaldau
Síðasta skipting Rúmena
85. mín
Gult spjald
Jón Dagur Þorsteinsson
Gult fyrir brot á vallarhelmingi Rúmena.83. mín
Gult spjald
Nicolae Stanciu
Fær gult eftir fagnið.83. mín
MAAAARK!
Nicolae Stanciu
Vont verður verra Skyndisókn Rúmena skilur okkur eftir í rykinu. Nicolae Stanciu sleppur einn í gegn og klárar glæsilega fram hjá Rúnari í markinu.82. mín
Ísland fær horn. Nægur tími eftir að gera eitthvað úr þessum leik.
81. mín
Ágætt spil Rúmena en skot Rasvan Marin hittir ekki markið.
79. mín
Cristian Manea fer af krafti í Jón Dag en áfam með leikinn segir dómarinn.
79. mín
InnAndri Lucas Guðjohnsen
ÚtAlbert Guðmundsson
Guðjohnsen mætir inn á ekki sá fyrsti í röðinni
77. mín
Andri Lucas er að gera sig kláran!
77. mín
Rúmenar sækja. Jovan Markovic í færi í teignum en Hjörtur setur boltann í hann og afturfyrir.
Jón Dagur með skot yfir eftir snarpa sókn.
76. mín
Gult spjald
Florin Nita
Hvít-Rússinn kominn með nóg og spjaldar fyrir tafir.76. mín
Ísak Bergmann með lúmskan bolta frá vinstri. Albert nær ekki til boltans en Jói Berg mætir á fjærstöng en setur boltann framhjá markinu með mann í bakinu.
Ísak komið ferskur inn.
76. mín
InnRasvan Marin
ÚtDennis Man
76. mín
InnJovan Markovic
ÚtDenis Alibec
73. mín
Enn og aftur liggur Rúmeni á vellinum. Fer niður eftir kapphlaup við Hjört sem virtist þó ekki koma við hann.
72. mín
Dennis Man í fínu færi í teignum eftir undirbúning Cristian Manea en setur boltann framhjá úr teignum.
71. mín
Laglegur samleikur varamannana Jóns Dags og Ísaks en skot Ísaks laust og ekki til vandræða.
70. mín
Rúmenar koma boltanum í netið en dómarinn búinn að flauta brot. Sem betur fer varnarleikur Íslands arfaslakur þarna.
68. mín
InnIanis Hagi
ÚtSorescu Deian Cristian
Rúmenar svara með tvöfaldri breytingu sömuleiðis.
68. mín
InnCristian Manea
ÚtAndrei Ratiu
Rúmenar svara með tvöfaldri breytingu sömuleiðis.
67. mín
Albert Guðmundsson í frábærri stöðu í teignum og þurfti bara að velja rétt úr mörgum valkostum en valdi þann sísta og færið rann út í sandinn.
66. mín
InnJón Dagur Þorsteinsson
ÚtAndri Fannar Baldursson
Tvöföld breyting hjá Arnari og Eið
66. mín
InnÍsak Bergmann Jóhannesson
ÚtAndri Fannar Baldursson
Tvöföld breyting hjá Arnari og Eið
66. mín
Rúmenar fá horn.
65. mín
Jón Dagur og Ísak eru að gera sig klára á hliðarlínunni.
62. mín
Rúmeni liggur á vellinum og kveinkar sér. Stendur á fætur um leið og leikurinn er stopp.
59. mín
Við erum að stýra leiknum en gengur illa að brjóta niður gestina. Sem líður ágætlega að liggja til baka og beita hröðum sóknum enda leiða þeir.
54. mín
Stórhættulegur bolti frá Jóhanni Berg sem Viðar nær kollinum en því miður hárfínt framhjá.
Rúmeni liggur eftir og teygir lopann. Strax byrjaðir að tefja.
52. mín
Birkir Már setur boltann í varnarmann og afturfyrir. Íslenskt horn.
49. mín
Rúmenar gjafmildir og gefa okkur horn.
Koma svo og nýta það!
Boltinn að endingu í hendur Florin í marki Rúmena.
46. mín
MAAAARK!
Dennis Man
Nei nei nei nei Rúmenar komast upp völlinn vinstra megin. Boltinn fer fyrir markið og hrekkur af Brynjari Inga fyrir fætur Dennis sem setur boltann auðveldlega framhjá Rúnari.46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Gestirnir hefja leik hér í síðari hálfleik.
Nú er að bæta í og koma marki í þennan leik og nýta það að hafa verið betri aðilinn heilt yfir.
45. mín
Flautað til hálfleiks hér og staðan markalaus. Ýmis merki á leik liðsins sem gefa ástæðu til bjartýni en menn þurfa að vera á tánum. Höfum heilt yfir verið betri en skortir á að skapa fleiri og betri færi.
Komum aftur með síðari hálfleikinn að vörmu spori.
45. mín
Ein mínúta í uppbótartíma.
44. mín
Denis Alibec með skot en víðsfjarri markinu. Hafði betri sóknarmöguleika en við þiggjum allt svona sem fer hvergi nærri markinu frá Rúmenum.
41. mín
Guðlaugur með slæma sendingu sem Rúmenar komast inn í. Denis Alibec finnur Dennis Man í hlaupinu en skot hans úr góðu færi beint á Rúnar Alex.
39. mín
Dragos Nedelcu með skot af löngu færi sem Rúnar á ekki í vandræðum með að handsama.
37. mín
Gult spjald
Vlad Chiriches (f)
Rífur Viðar niður í skyndisókn. Birkir dauðafrír í hlaupinu svo líklega vel brotið frá Rúmenum séð.35. mín
Ísland fær horn. Birkir Bjarnason með fyrirgjöf sem fer af varnarmanni og afturfyrir.
32. mín
Vindurinn geysist upp völlinn og nær fínni fyrirgjöf en Viðar Örn einu skónúmeri of stuttur til að ná til boltans.
Fínasta tempó í þessum leik.
31. mín
Sorescu Deian Cristian með tíma og pláss í teignum en í nokkuð þröngu færi. Nær skotinu en Rúnar slær boltann yfir markið.
29. mín
Birkir Bjarnason í dauðafæri
Albert skallar boltann aftur fyrir markið eftir þunga pressu Íslands en Birkir hittir boltann illa. Ísland fær þó horn.
Birkir með skalla eftir hornið en nær engum krafti í skallann sem markvörðurinn hirðir upp í rólegheitum.
Andri Fannar átti skot í varnarmann rúmenska liðsins skömmu áður og voru nokkur köll um vítaspyrnu, boltinn virtist fara hönd Rúmenans inn á þeirra vítateig. Viðar Örn stóð upp við varnarmanninn og bað strax um víti.
27. mín
Dennis Man sleppur einn í gegn en flaggið á loft og það vel réttilega.
26. mín
Rúmenar kunna alveg fótbolta. Spila sig í gegnum pressu Íslenska liðsins en skot Denis Alibec í varnarmann í teignum. Sá Rúmenski svo brotlegur í kjölfarið.
24. mín
Gummi Tóta með fyrirgjöf sem Viðar nær til. Skallar þó boltann framhjá markinu.
22. mín
Hjörtur Hermannsson með hræðilega sendingu til baka á Rúnar. Sorescu Deian kemst á milli en nær ekki valdi á boltanum sem fer afturfyrir.
Alltof tæpt.
22. mín
Leikurinn stopp til að huga Rúmena sem steinliggur eftir viðskipti við Guðlaug Victor áðan. Guðlaugur miklu sterkari og sá Rúmenski veit af því núna.
21. mín
Birkir Már með alvöru takta úti á hægri vængnum en er því miður stöðvaður.
Íslendingar sterkari aðilinn það sem af er.
15. mín
Viðar Örn
Birkir með frábæra sendingu inn á teiginn sem Viðar nær kollinum í. Florin Nita því miður vel á verði og ver vel.
14. mín
Laglegur samleikur Alberts og Gumma Tóta úti vinstra megin. Albert fær boltann í teignum en Rúmenar komast fyrir sendingu hans.
12. mín
Tólfan er mætt og Víkingaklappið ómar um Laugardalin.
12. mín
Rúmenar ógna en skot Sorescu Deian Cristian í hliðarnetið úr mjög þröngu færi.
11. mín
Góður kafli okkar manna. Halda boltanum vel og þrýsta Rúmenum neðar og neðar á völlinn. Birkir Már finnur nafna sinn í hlaupi og hann fyrirgjöf sem Viðar Örn nær á endanum í átt að marki eftir fína forvinnu frá Andra Fannari.
8. mín
Samskiptaleysi í vörn Rúmena sem gefa horn eftir lausan skalla Viðars. Gestirnir stálheppnir.
8. mín
Gult spjald
Dragos Nedelcu
Óþarfa brot. Fer beint aftan í Birki og dómarinn rífur upp spjaldið umsvifalaust.7. mín
Það er þögult í hópi Tólfunar líkt og þeir höfðu tilkynnt. Rúmenar láta þó vel í sér heyra með lúðrablæstri.
4. mín
Rúnar Alex hreinsar í innkast með löngu úthlaupi. Rúmenar fljótir að taka innkastið en skot þeirra yfir mark Íslands.
4. mín
Sorescu Deian Cristian með alltof mikið pláss úti vinstra meginn eftir snögga sókn gestanna.
Skot hans svífur rétt framhjá stönginni. Talningin klikkaði í varnarleiknum þarna.
2. mín
Jóhann Berg sækir horn eftir snarpa sókn.
Boltinn settur í svæði en menn skrefinu of fljótir og Rúmenar hreinsa.
1. mín
Þetta er farið af stað hér í Laugardal. Það eru sem hefja hér leik.
Fyrsti heimaleikur árslns hjá Íslandi og jafnframt fyrsti heimaleikur þeirra Arnars Þórs og Eiðs Smára með liðið. 90 mínútur framundand og vonandi ánægjulegt kvöld í vændum.
Áfram Ísland!!!!!
0. mín
Liðin eru að ganga til vallar og allt að verða klárt fyrir þennan leik.
Formsatriðin klár og þjóðsöngvar verið leiknir. Nú er það fótboltinn sem tekur við!
0. mín
Ekkert VAR!
Okkur voru að berast þær upplýsingar að vegna bilunar í búnaði verður VAR ekki til taks í leik kvöldsins. Nánari tíðinda að vænta af þeim málum.
0. mín
Hafliði Breiðfjórð er með myndavélina að vanda. Hér eru nokkrar myndir sem hann hefur smellt af við völlinn.
Gunnar Birgis og Bjarni Guðjónsson lýsa leiknum fyrir áhorfendur RÚV.
Gunnar Birgis og Bjarni Guðjónsson lýsa leiknum fyrir áhorfendur RÚV.0. mín
Twitter
Við hvetjum ykkur til að taka þátt í umræðunni um leikinn á Twitter. Myllumerkið #fotboltinet og munu vel valdar færslur án efa rata í lýsinguna.
0. mín
Dómarar leiksins
Dómarar leiksins koma frá Hvíta-Rússlandi. Aleksei Kulbakov er með flautuna. Honum til aðstoðar eru þeir Dimitry Zhuk og Aleh Masilanka. Fjórði dómari er svo Viktar Shymusik.
VAR
Notast verður við VAR í leik kvöldsins og eru mennirnir við skjáinn í kvöld frá Rússlandi. Vitaliy Meshkov og Sergei Ivanov verða kollegum sínum á vellinum til handar þar.
VAR
Notast verður við VAR í leik kvöldsins og eru mennirnir við skjáinn í kvöld frá Rússlandi. Vitaliy Meshkov og Sergei Ivanov verða kollegum sínum á vellinum til handar þar.0. mín
Jóhann Berg Guðmundsson er fyrirliði Íslands í kvöld!


0. mín

0. mín

0. mín
BYRJUNARLIÐIÐ
Rúnar Alex Rúnarsson fær tækifæri í marki Íslands gegn Rúmeníu í undankeppni HM í kvöld.
Bæjarfélagið Selfoss mun þá eflaust fylgjast vel með landsleiknum því tveir fulltrúar þeirra eru í byrjunarliði okkar Íslendinga. Guðmundur Þórarinsson byrjar í vinstri bakverði og Viðar Örn Kjartansson leikur sem fremsti maður.
Brynjar Ingi Bjarnason og Hjörtur Hermannsson byrja saman í hjarta varnarinnar en þeir stóðu sig saman í verkefni í sumar. Birkir Már Sævarsson er í hægri bakverði.
Þá byrjar hinn efnilegi Andri Fannar Baldursson inn á miðsvæðinu.


0. mín
Lesendur ekki bjartsýnir
Lesendur Fótbolta.net svöruðu spurningu um úrslit leiksins í kvöld í könnun á síðunni.
Aðeins 29,3% spá því að Ísland vinni leikinn. Rúmlega 10% spá því að leikurinn endi í jafntefli og 60,42% spá því að Rúmenía vinni leikinn.
0. mín
Það eru þrír leikmenn á hættusvæði í dag og fara í bann við að fá gult spjald í þessum leik. Það eru Albert Guðmundsson, Ari Freyr Skúlason og Kári Árnason.
0. mín
Tveir nýliðar í hópnum
Það eru tveir nýliðar í landsliðshópnum að þessu sinni. Þeir eru báðir 19 ára gamlir; Andri Lucas Guðjohnsen og Mikael Egill Ellertsson.
Andri Lucas er á mála hjá varaliði Real Madrid og Mikael Egill er hjá Spal á Ítalíu.
0. mín
Á blaðamannafundi í gær kom það fram að Kári Árnason væri sá eini sem væri tæpur. Allir aðrir heilir.
0. mín
Vita allt um Rúmeníu
Rúmensk fjölmiðlakona spurði Arnar, landsliðsþjálfara, út í andstæðing kvöldsins og hver væri lykilmaður liðsins.
Ég kann vel við leikstíl þeirra og hvað þjálfarinn þeirra hefur verið að gera með liðið. Úrslitin hafa kannski ekki alveg verið þau sem þið vonuðust eftir í mars og júní. En það er augljóst að starfsteymið er að byggja upp ákveðna hugmyndafræði.
Ég tala eiginlega aldrei um einstaka leikmenn í lið andstæðingsins. Ég reyni að einbeita mér að mínu liði. Við þekkjum alla leikmennina, við vitum hvar þeir spila og hvað þeir geta, við vitum hverjir feður þeirra eru. Við vitum allt en við viljum ekki tala um það.
0. mín
Ekki langt frá síðasta leik þessara þjóða
Það er ekki langt frá síðasta fótboltaleik þessara þjóða. Síðasti leikur var í október á síðasta ári, í umspilinu fyrir EM 2020. Þann leik vann Ísland með tveimur mörkum gegn einu; bæði mörk Íslands skoraði Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi er auðvitað ekki í íslenska hópnum þessa stundina þar sem mál hans er til rannsóknar hjá lögreglunni á Bretlandi. Hann er sakaður um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi á Englandi.
Hann er ekki sá eini sem spilaði síðasta leik gegn Rúmeníu fyrir tæpu ári síðan og er ekki í hópnum núna. Má þar til dæmis nefna að Aron Einar Gunnarsson, Alfreð Finnbogason og Ragnar Sigurðsson eru ekki í hópnum að þessu sinni.


0. mín
Líklegt byrjunarlið Rúmeníu
Svona er líklegt byrjunarlið Rúmena á Laugardalsvelli:


0. mín
Hver verður fremstur?
Það eru aðeins tvær hreinræktaðar 'níur' í leikmannahópi Íslands fyrir leikinn.
Andri Lucas Guðjohnsen, leikmaður varaliðs Real Madrid á Spáni, og Viðar Örn Kjartansson, sóknarmaður Vålerenga í Noregi, eru í hópnum. Viðar Örn kom inn í hópinn fyrir Kolbein Sigþórsson sem var tekinn úr vegna ásakana um kynferðislegt áreiti og ofbeldi.
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, var spurður að því á blaðamannafundi hvort hann hefði einhverjar áhyggjur af framherjamálum.
Við erum með jafnmarga sentera og á blaðamannafundinum í síðustu viku. Viðar Örn er kominn inn; skjalið og planið getur breyst frá degi til dags. Viðar var byrjaður að spila, þó Kolbeinn hafi spilað meira undanfarna mánuði.
Við erum með Viðar, við erum með Andra og við erum með Albert. Það er mjög líklegt að einn af þessum þremur byrji inn á í leiknum á morgun (í dag).
0. mín
Hverjir verða í miðverði?
Ragnar Sigurðsson og Kári Árnason hafa myndað miðvarðarpar Íslands síðustu ár, og gert það vel. Ragnar er ekki í hóp núna og Kári er tæpur.
Það virðast vera góðar líkur á því að Kári spili þó í kvöld. En ef hann spilar ekki, þá væri gaman að sjá Brynjar Inga Bjarnason og Hjört Hermannsson saman. Þeir stóðu sig vel í verkefni í sumar.
0. mín
Líklegt byrjunarlið Íslands
Það hefur sjaldan verið erfiðara að stilla upp í líklegt byrjunarlið. Ísland vann Rúmeníu 2-1 í umspilinu fyrir EM síðastliðinn október og frá þeim leik eru sex byrjunarliðsmenn horfnir; Ragnar Sigurðsson, Hörður Björgvin Magnússon, Arnór Ingvi Traustason, Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Alfreð Finnbogason.
Svona spáir Fótbolti.net því að byrjunarliðið verði í dag.


0. mín
Íslenski hópurinn
Mörg nöfn sem við höfum vanist að sjá í landsliðshópi Íslands á undanförnum árum eru fjarverandi í þessum glugga. Leikmenn eins og Gylfi Sigurðsson, Aron Einar Gunnarsson, Ragnar Sigurðsson og Jón Daði Böðvarsson eru til að nefna einhverja til að mynda ekki með í þetta sinn af mismunandi ástæðum þó. Annars er leikmannahópur Íslands fyrir leikinn svo skipaður.
Hannes Þór Halldórsson - Valur - 76 leikir
Patrik Sigurður Gunnarsson - Brentford
Rúnar Alex Rúnarsson - Arsenal - 10 leikir
Brynjar Ingi Bjarnason - Lecce - 3 leikir, 1 mark
Jón Guðni Fjóluson - Hammarby - 17 leikir, 1 mark
Hjörtur Hermannsson - Pisa - 22 leikir, 1 mark
Kári Árnason - Víkingur R. - 89 leikir, 6 mörk
Ari Freyr Skúlason - IFK Norrköping - 79 leikir
Guðmundur Þórarinsson - New York City FC - 7 leikir
Birkir Már Sævarsson - Valur - 98 leikir, 3 mörk
Alfons Sampsted - Bodö Glimt - 5 leikir
Andri Fannar Baldursson - FCK - 4 leikir
Þórir Jóhann Helgason - Lecce - 1 leikur
Ísak Bergmann Jóhannesson - FCK - 4 leikir
Birkir Bjarnason - Adana Demirspor - 98 leikir, 14 mörk
Gísli Eyjólfsson - Breiðablik - 2 leikir
Arnór Sigurðsson - Venezia - 14 leikir, 1 mark
Guðlaugur Victor Pálsson - Schalke - 26 leikir, 1 mark
Albert Guðmundsson - AZ Alkmaar - 22 leikir, 4 mörk
Mikael Egill Ellertsson - SPAL
Jón Dagur Þorsteinsson - AGF - 9 leikir, 1 mark
Jóhann Berg Guðmundsson - Burnley - 79 leikir, 8 mörk
Mikael Neville Anderson - AGF - 9 leikir
Viðar Örn Kjartansson - Vålerenga IF - 28 leikir 4 mörk
Andri Lucas Guðjohnsen - Real Madrid
0. mín
Stomur og stórsjór skekur íslenska knattspyrnu
Það er óhætt að segja að vel hafi gustað um málefni KSÍ, landsliðsins og knattspyrnu á Íslandi yfirhöfuð síðustu daga í kjölfar umræðu um ofbeldismenningu.. Við ætlum ekki að kryfja þau mál til mergjar hér í þessari textlýsingu en fréttir af málunum má sjá hér á Fótbolta.net og víðar og munum við að sjálfsögðu halda þeirri umfjöllun áfram þó leikurinn sjálfur fái sviðsljósið hér.
0. mín
Leikdagur
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Íslands og Rúmeníu í undankeppni HM 2022 sem fer fram í Katar eftir rúmt ár.


