Fotbolti.net
@alexandrabia95Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Pepsi-Max deild kvenna
Kópavogsvöllur
Alvöru haustlægð.
Breiðablik
Breiðablik
6 - 1
Þróttur R.
Þróttur R.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir 16'1 - 0Tiffany Janea Mc Carty 45'2 - 0Vigdís Lilja Kristjánsdóttir 53'3 - 0Birta Georgsdóttir 66'4 - 04 - 174' Ólöf Sigríður KristinsdóttirAgla María Albertsdóttir 82'5 - 1Hildur Antonsdóttir 89'6 - 1
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: Breiðablik skoraði sex mörk í haustlægðinni

Hvað réði úrslitum?

Breiðablik var bara betra liðið á vellinum í dag. Mikið rok setti svip sinn á leikinn en á meðan Þróttur komst aldrei í takt við leikinn náðu Blikarnir heldur betur að búa til fínar sóknir og unnu mjög sannfærandi 6-1 sigur.

Bestu leikmenn

1. Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)

Engin spurning. Þvílík gæði! Varnarmenn Þróttar réðu illa við hana í dag, hún lagði upp þrjú mörk og skoraði eitt.

2. Birta Georgsdóttir (Breiðablik)

Var mjög lífleg og áræðin á hægri kantinum, átti góða spretti og nokkrar góðar fyrirgjafir. Lagði upp fyrsta markið og skoraði svo fjórða markið. Vigdís Edda var líka góð fremst á miðjunni og gerir sterkt tilkall.

Atvikið

Fyrsta mark Breiðabliks, sem Hafrún Rakel skorar á 16. mínútu. Fram að því var hvorugt liðið að ná að spila boltanum en eftir að Blikar skoruðu þá tóku þær öll völd á vellinum.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin breyta því ekki að Breiðablik endar í 2. sæti og Þróttur R. í 3. sæti deildarinnar. En þessi lið mætast aftur í bikarúrslitum þann 1. október.

Vondur dagur

Gestirnir náðu aldrei að koma sér í takt við þennan leik og það var eiginlega ekkert sem gekk upp hjá þeim.

Dómarinn - 7

Engin stór atvik þannig séð en hefði getað dæmt brot nokkrum sinnum úti á vellinum. Spurning með rangstöðu í 2. marki Blika.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.