Fotbolti.net
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Undankeppni HM kvenna
AEK Arena
19 gráður og allir ferskir
Kýpur
Kýpur
0 - 4
Ísland
Ísland
0 - 17' Karólína Lea Vilhjálmsdóttir0 - 215' Berglind Björg Þorvaldsdóttir (víti)0 - 336' Sveindís Jane Jónsdóttir0 - 461' Guðrún Arnardóttir
Dómari: Louise Thompson (Norður Írlandi)
Myndir: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

SKÝRSLAN: Íslenskur sigur í lokaleik ársins

Hvað réði úrslitum?

Það er rosalegur gæðamunur á liðunum, samt átti íslenska liðið helling inni. Hefðu getað skorað nokkur í viðbót.

Bestu leikmenn

1. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir

Skoraði eitt og lagði upp tvö. Var mjög vinnusöm mest allan leikinn en dró aðeins af henni í síðari hálfleik.

2. Guðrún Arnardóttir

Var örugg í sínum aðgerðum og kom boltanum vel frá sér. Kom í veg fyrir að Freda næði skoti inn í teig þegar hún komst ein í gegn. Skemmir heldur ekki fyrir að vera miðvörður og að skora.

Atvikið

Aukaspyrnurnar hennar Karólínu. Skorar beint úr annarri þeirra og svo sláar skot í þeirri seinni þar sem Guðrún fylgir eftir og skorar.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að Ísland er ennþá í 2. sæti riðilsins með 9 stig, aðeins tveimur stigum á eftir Hollandi sem eru með 11 stig. Ísland á þó leik til góða. Kýpur er áfram á botni riðilsins með 1 stig.

Vondur dagur

Nýting úr hornspyrnum er "vondur dagur". Seinni hálfleikur hjá liðinu var heldur ekki upp á marga fiska.

Dómarinn - 8

Fínn leikur hjá þeim.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.