Fotbolti.net
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Lengjubikar karla - A-deild úrslit
Samsungvöllurinn
1° logn
Stjarnan
Stjarnan
1 - 3
FH
FH
0 - 132' Eggert Gunnþór JónssonEmil Atlason 53'1 - 11 - 274' Kristinn Freyr Sigurðsson1 - 386' Ólafur Guðmundsson
Dómari: Þorvaldur Árnason

SKÝRSLAN: FH komnir í úrslit Lengjubikarsins.

Hvað réði úrslitum?

FH fór úr öðrum gír í lokakaflanum og náði að klára góð færi. Annars var ekki mikið um færi fyrstu 75 mínúturnar og liðin verulega jöfn.

Bestu leikmenn

1. Ástbjörn Þórðarsson (FH)

Það var hrikalegur dugnaður í Ástbirni í dag frá hægri bakverði hann var allt í öllu sóknarlega sérstaklega í fyrri hálfleik og skilaði varnarvinnunni mjög vel líka.

2. Logi Hrafn Róbertsson (FH)

Logi stjórnaði miðjunni alveg virkilega vel, hann var sterkur í varnarvinnunni og lét boltann ganga vel frá sinni stöðu.

Atvikið

Markið hjá Kristni Frey. Þetta var í raun eina mark leiksins þar sem annað liðið leit virkilega illa út varnarlega og Stjarnan náði aldrei að koma sér almennilega inn í leikinn eftir þetta.

Hvað þýða úrslitin?

FH eru komnir í úrslitaleik Lengjubikars karla sem spilast á föstudaginn næstkomandi gegn Víking. Stjarnan er úr leik og því er næst á dagskrá æfingarferð.

Vondur dagur

Haraldur Björnsson. Ekki vegna frammistöðu heldur frekar vegna þess að hann þurfti að fara útaf í hálfleik vegna meiðsla. Vonandi fáum við fljótt fréttir um það að þetta hafi ekki verið alvarlegt því annars þarf Stjarnan að treysta á Viktor Reyni Oddgeirsson sem hefur ekki sömu reynslu og Haraldur.

Dómarinn - 7

Engar stórar ákvarðanir í dag, Þorvaldur stóða sig fínt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.