Fotbolti.net
@haflidibHafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
1. deild karla
Valbjarnarvöllur
13 stiga hiti, logn og smá regndropar
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 0
ÍR
ÍR
Arnþór Ari Atlason 11'1 - 0
Dómari: Kristinn Jakobsson
Leik lokið!
Leiknum er lokið með 1-0 sigri Þróttar. Frekari umfjöllun og viðtöl hér á Fótbolta.net síðar í kvöld.
Þróttur R.
88. mín
InnAndri Gíslason
ÚtVilhjálmur Pálmason
Þróttur R.
88. mín
InnIngvar Þór Ólason
ÚtArnþór Ari Atlason
86. mín
Fjórar mínútur eftir af leiknum og það má enn sjá baráttu í liði ÍR. Maður hefur fyrr í sumar séð að þeir væru hættir í sömu stöðu en nú vilja þeir fá eitthvað fyrir sinn snúð úr þessum leik.
ÍR
85. mín
Gult spjald

Trausti Björn Ríkharðsson

80. mín
Þróttarar vildu fá vítaspyrnu þegar boltinn virtist fara í hönd ÍRings í teigum. Kristinn Jakobsson dæmdi þó ekkert.
ÍR
70. mín
InnJóhann Arnar Sigurþórsson
ÚtHafliði Hafliðason
66. mín
Sigmundur fékk sendingu inn í teiginn og setti góðan bolta í markið en því miður fyrir hann var það dæmt af vegna rangstöðu, Sigmundur var að koma úr rangstöðunni þegar sendingin kom.
65. mín
Hinum megin á vellinum kom Hafliði Hafliðason boltanum inn Jón Gísla sem lék á Erling Jack og var kominn í fínt skotfæri en skot hans fór í hliðarnetið utanvert.
64. mín
Vilhjálmur Pálmason vann boltann rétt utan við vítateig ÍR nærri endalinu og þrumaði svo föstu skot í hliðarnetið utanvert.
Þróttur R.
61. mín
InnSigmundur Kristjánsson
ÚtGuðfinnur Þórir Ómarsson
51. mín
Nú áttu ÍRingar að jafna metin. Gunnar Hilmar Kristinsson sendi boltann inn í teiginn af vinstri kantinn, Ögmundur átti að taka boltann, kom út í teiginn en missti hann í gegnum klofið á sér þar sem hann fór fyrir fætur Trausta Ríkharðssonar sem var einn gegn tómu marki en skaut framhjá.
48. mín
Jón Gísli er í framlínunni hjá ÍR fyrir Andra Björn sem fór af velli. Hann er nú þegar búinn að eiga eitt skot að marki sem fór beint á Ögmund markvörð Þróttar.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn. ÍR gerði tvær skiptingar í hálfleik sem má sjá hér að neðan.
ÍR
46. mín
InnGuðmundur Gunnar Sveinsson
ÚtAndri Björn Sigurðsson
ÍR
46. mín
InnJón Gísli Ström
ÚtGuðjón Gunnarsson
45. mín
Það er kominn hálfleikur í Laugardalnum. Þróttur leiðir með einu marki gegn engu.
42. mín
Halldór Hilmisson með fast skot utan af velli sem fór í varnarmann og framhjá marki ÍR.
35. mín
Oddur Björnsson komst í fínt færi gegn Brynjari sem varði í horn.
24. mín
Nigel Quashie fer mikinn í liði ÍR og dreifir spilinu mjög vel. Hann fékk boltann aftur eftir hornspyrnu sem hann tók sjálfur rétt í þessu og skaut rétt framhjá marki Þróttar.
21. mín
Brynjar varði í tvígang frá Guðfinni Þóri Ómarssyni sem var í dauðfæri eftir góða sendingu Haldórs Hilmissonar.
Þróttur R.
11. mín
MAAAARK!

Arnþór Ari Atlason

Þróttarar eru komnir yfir. Halldór Hilmisson sendi fyrirgjöf fyrir markið af hægri kanti, beint á kollinn á Arnþóri Ara Atlasyni sem skoraði með góðum skalla.
9. mín
ÍRingar hafa byrjað leikinn nokkuð vel og núna munaði engu að Andri Börn Sigurðsson kæmi þeim yfir. Hann komst í fínt færi í teignum eftir gott samspil liðsins og skaut að marki en rétt framhjá
1. mín
Leikurinn er hafinn.
0. mín
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Þróttar og ÍR í 1. deild karla. Liðin eru klár hér sitthvorum megin við textann. Trausti Sigurbjörnsson má ekki spila í marki ÍR í kvöld þar sem hann er á láni hjá félaginu frá Þrótti. Þess vegna er Brynjar Örn Sigurðsson í markinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.