Fotbolti.net
Kjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Lengjudeild karla
Würth völlurinn
Fylkir
Fylkir
5 - 2
Fjölnir
Fjölnir
Benedikt Daríus Garðarsson 14'1 - 01 - 138' Hákon Ingi JónssonNikulás Val Gunnarsson (víti) 41'2 - 1Hallur Húni Þorsteinsson 45'3 - 1Ásgeir Eyþórsson 46'4 - 1Ómar Björn Stefánsson 85'5 - 15 - 290' Hákon Ingi Jónsson90' Hans Viktor Guðmundsson
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 893
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Fjölnir
90. mín
Rautt spjald

Hans Viktor Guðmundsson

Rautt spjald!

Rífur niður Ómar þegar hann var við það að sleppa í gegn!

Hárréttur dómur.
Fjölnir
90. mín
MAAAARK!

Hákon Ingi Jónsson

MARK

Hákon Ingi setur vítið á mitt markið. Öruggt.
90. mín
Víti!

Reynir með sprett inn á teiginn og Orri Sveinn ýtir við honum. Strangur dómur.
89. mín
Horn sem Reynir tekru fyrir Fjölni
Fylkir
85. mín
MAAAARK!

Ómar Björn Stefánsson

MARK!

Ómar sem er nýkominn inn á völlinn á hér góðan sprett og klárar vel í fjærhornið.

Aðeins eitt lið á vellinum í dag
84. mín
Horn fyrir Fjölni. Júlíus tekur.
Fylkir
79. mín
InnÓmar Björn Stefánsson
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
Þórður verið mjög öflugur í dag.
Fylkir
78. mín
Gult spjald

Ásgeir Börkur Ásgeirsson

Groddaraleg tækling á Dofra
77. mín
Alvöru darraðadans eftir hornið og boltinn rennur eftir línunni en inn vill hann ekki
76. mín
Daði að gera sig tilbúinn í að taka horn
Fylkir
75. mín
InnUnnar Steinn Ingvarsson
ÚtBenedikt Daríus Garðarsson
73. mín
Þessa stundina ógnar hvorugt liðið. Fylkir bara að sækja þessa þrjá punkta.
Fjölnir
61. mín
InnJúlíus Mar Júlíusson
ÚtAndri Freyr Jónasson
Fjölnir
61. mín
InnViktor Andri Hafþórsson
ÚtGuðmundur Karl Guðmundsson
Fylkir
60. mín
InnArnór Gauti Jónsson
ÚtHallur Húni Þorsteinsson
59. mín
Killian Colombie liggur í grasinu eftir tæklingu.

Virkar sárþjáður
56. mín
Nikulás með skalla í gegn á Benedikt Daríus sem er einn gegn Sigurjóni sem enn og aftur ver vel.

Mörkin gætu vel verið fleiri hjá Fylki
55. mín
Reynir tekur aukaspyrnuna og reynir fyrirgjöf sem er mjög léleg
Fylkir
54. mín
Gult spjald

Hallur Húni Þorsteinsson

Fyrir brot rétt fyrir utan teig
53. mín
Nikulás Val í dauðafæri einn gegn Sigurjóni sem ver frá honum
49. mín
Aukaspyrna rétt fyrir utan teig fyrir Fjölni.

Reynir skýtur beint í vegginn
Fjölnir
46. mín
InnArnar Númi Gíslason
ÚtDagur Ingi Axelsson
Fylkir
46. mín
MAAAARK!

Ásgeir Eyþórsson

MARK!
Eftir hornspyrnu er darraðdans í teignum og boltinn endar í netinu eftir snertingu Ásgeirs.
46. mín
Leikur hafinn
Leikurinn kominn í gang aftur
45. mín
Hálfleikur
Mjög skemmtilegur fyrri hálfleikur og Fylkismenn leiða mjög verðskuldað hér 3-1
Fylkir
45. mín
MAAAARK!

Hallur Húni Þorsteinsson

MARK!

Daði tekur hornið og Hallur Húni skallar boltann í netið.

Þröngva að Sigurjóni sem er í basli.
45. mín
Þórður Gunnar með geggjaðan sprett og sækir horn
44. mín
Reynir hér með fyrirgjöf sem endar sem háfgert skot og boltann fer rétt framhjá fjærstönginni
Fylkir
41. mín
Mark úr víti!

Nikulás Val Gunnarsson

MARK!

Vítið er fast og til vinstri. Sigurjón í boltanum en þetta lekur inn.

Geggjaður leikur hingað til
40. mín
Víti

Dagur Ingi sparkar Þórð niður í teignum. Þetta er réttur dómur.
Fjölnir
38. mín
MAAAARK!

Hákon Ingi Jónsson

MARK

Vilhjálmur Yngvi með boltann hægra meginn og kemur með baneitraða fyrirgjöf fyrir þar sem Hákon Ingi stangar hann inn.

Allt jafnt í Lautinni
37. mín
Ragnar Bragi!

Fín sókn hjá Fylki sem endar á því að Þórður þræðir Ragnar Braga í geng sem er einn gegn Sigurjóni sem ver virkilega vel
35. mín
Fjölnir leitar mikið til vinstri þar sem Reynir Haralds er hátt uppi en hann hefur ekki átt sinnn besta leik í kvöld
32. mín
Dauðafæri!

Nikulás Val er með boltann hægra megin í teignum og setur boltann þvert yfir teiginn á Benedikt Daríus sem er í dauðafæri einn gegn Sigurjóni en setur hann yfir.

Þarna áttu Fylkir að tvöfalda forskot sitt
29. mín
Lítið að frétta en Fylkir með góð tök á þessu
20. mín
Fín sókn hjá Fjölni hér sem endar með því að Dagur sendir á Andra Frey sem tekur fínt skot við vítateiginn en Ólafur ver vel í markinu.
16. mín
Stöngin!

Hornið er gott og á fjær þar sem Guðmundur Þór á hörku skalla í stöngina. Óhepppnir þarna Fjölnismenn
16. mín
Guðmundur Karl tekur hér fyrsta horn FJölnis
Fylkir
14. mín
MAAAARK!

Benedikt Daríus Garðarsson

MARK!

Benedikt Daríus með frábæran sprett upp miðjan völlinn og tekur skot réttt fyrir utan teig sem er með jörðini og Sigurjón ræður ekki við.

Þetta lá í loftinu.
14. mín
Þórður Gunnar fellur innan teigs og Fylkismenn kalla eftir víti en ekkert dæmt þetta hefði getað verið víti sýndist mér
9. mín
Daði Ólafs reynir hér skot rétt fyrir utan teig en það er lélegt og langt framhjá
7. mín
Orri Sveinn á skalla eftir hornið en hann fer rétt framhjá
7. mín
Fylkis fær hér horn og Daði tekur
6. mín
Leikurinn fer rólega af stað en Fylkismenn halda aðeins meira í boltann
1. mín
Leikur hafinn
Hákon Ingi spyrnir boltanum í leik fyrir hönd Fjölnis
Fyrir leik
Liðin eru þessa stundina að ganga inn á völlinn og því styttist í upphafsflautið.
Fyrir leik
Fjölnismenn hafa byrjað mótið af gríðarlegum krafti. LIðið situr í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga.

í fyrsta leik mætti liðið nýliðinum í Þrótti Vogum og náði þar í öruggan 3-0 útisigur.

í annari umferð var liðið mætt á sinn eigin heimavöll og fékk þar Þór Akureyri í heimsókn en þar náðu Fjölnismenn í gríðarlegan sterkan 4-1 sigur.
Fyrir leik
Heimamenn hafa byrjað mótið ágætlega.

Í fyrsta leik tímabilsins fékk liðið nýliða KV í heimsókn og enduðu leikar þar með 3-1 sigri Fylkis.

í öðrum leik tímabilsins fór liðið í heimsókn í Safamýrina og gerði þar 1-1 jafntefli við Kórdrengi.
Fyrir leik
Komiði sæl og blessuð!

Hér í kvöld fer fram bein textalýsing frá leik Fylkis og Fjölnis frá Wurth vellinum í þriðju umferð Lengjudeildarinnar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.