Fotbolti.net
Besta deildin
@alexandrabia95Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Besta-deild kvenna
Samsungvöllurinn
Smá gola en annars fínt fótboltaveður
Stjarnan
Stjarnan
5 - 0
Þór/KA
Þór/KA
Gyða Kristín Gunnarsdóttir 4'1 - 0Gyða Kristín Gunnarsdóttir 10'2 - 0Arna Dís Arnþórsdóttir 55'3 - 0Jasmín Erla Ingadóttir 69'4 - 0Arna Dís Arnþórsdóttir 76'5 - 0
Dómari: Andri Vigfússon
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Stjarnan kafsigldi Þór/KA

Hvað réði úrslitum?

Stjörnuliðið var bara með mikla yfirburði á öllum stöðum vallarins í kvöld. Þær voru mun kraftmeiri fram á við og voru yfir í allri baráttu. Stjarnan fær dauðafæri í fyrstu sókn sinni á 3. mínútu og skorar í næstu sókn um mínútu seinna. Það var alveg ljóst frá upphafi í hvað stefndi.

Bestu leikmenn

1. Betsy Doon Hassett

Betsy var allt í öllu í sóknarleik Stjörnunnar og fór oft á tíðum illa með varnarlínu gestanna. Samspil hennar og Katrínar var að galopna vörn Þór/KA og búa til hættuleg færi og mörk fyrir Stjörnuna.

2. Katrín Ásbjörnsdóttir

Katrín var eins og Betsy í aðalhlutverki í sóknarleik og uppspili Stjörnunnar. Hún kom mikið til baka að sækja boltann og átti sendingar sem sköpuðu mikla hættu. Hún lagði upp fyrsta mark leiksins og átti lykilsendingar í 2. og 3. marki Stjörnunnar. Gyða Kristín og Arna Dís gera líka sterkt tilkall hér.

Atvikið

Fyrsta mark Stjörnunnar sem kemur á 4. mínútu leiksins. Í sókninni á undan fær Gyða Kristín dauðafæri sem hún setur í stöngina, en í næstu sókn skorar hún og kemur Stjörnunni yfir. Þessi byrjun setti tóninn fyrir leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan jafnar Val á stigum á toppi deildarinnar með 16 stig. Valur á þó leik til góða á morgun gegn Aftureldingu. Þór/KA situr í 7. sætinu með 9 stig og gætu færst niður í 8. sætið eftir leiki morgundagsins.

Vondur dagur

Þór/KA liðið í heild átti vondan dag í dag. Jón Stefán þjálfari talaði um eftir leik að þetta hafi verið lélagasti leikur liðsins í sumar. Þær lenda 2-0 undir á fyrstu 10 mínútum leiksins og ná aldrei að vinna sig inn í leikinn. Áttu lengi vel erfitt með að koma sér inn á vallarhelming Stjörnunnar.

Dómarinn - 8

Frekar þæginlegur leikur að dæma og Andri bara flottur í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.