Fotbolti.net
Besta deildin
@alexandrabia95Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Besta-deild kvenna
Origo völlurinn
Skýjað og 13 gráður, topp aðstæður!
Valur
Valur
6 - 1
Afturelding
Afturelding
Ída Marín Hermannsdóttir 5'1 - 0Ída Marín Hermannsdóttir 21'2 - 0Elín Metta Jensen 31'3 - 0Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir 66'4 - 0Hailey Lanier Berg 71'5 - 0Cyera Makenzie Hintzen 82'6 - 06 - 183' Katrín Rut Kvaran
Dómari: Helgi Ólafsson

SKÝRSLAN: Valur styrkti stöðu sína á toppnum

Hvað réði úrslitum?

Valskonur voru mun hættulegri og beittari fram á við í dag og þéttar varnarlega. Sóknarmenn Vals sýndu gæði sín ítrekað og fóru illa með varnarlínu Aftureldingar. Afturelding reyndi að spila sinn bolta og voru óhræddar við að mæta þeim framarlega sem opnaði mikið pláss fyrir sterka sóknarmenn Vals.

Bestu leikmenn

1. Ída Marín Hermannsdóttir

Var lífleg frá fyrstu mínútu og kom Val yfir á 5. mínútu leiksins og bætir svo við öðru á 21. mínútu. Setur tóninn fyrir leikinn og kemur Val í góða stöðu.

2. Ásdís Karen Halldórsdóttir

Var allt í öllu í sóknarleik Vals. Varnarmenn Aftureldingar áttu í miklum vandræðum með hana í kvöld en hún sótti grimmt á þær og átti hættulegar sendingar sem bjó til góðar stöður. Cyera var líka mjög góð í kvöld, sem og Anna Rakel.

Atvikið

Þórdís Hrönn kom inn á 65. mínútu og var búin að skora á 66. mínútu! Fimm mínútum síðar á hún stoðsendingu á Brookelynn sem kom inn á sama tíma og Þórdís, en Brookelynn átti einmitt stoðsendinguna í marki Þórdísar. Skemmtileg innkoma hjá þeim!

Hvað þýða úrslitin?

Valur styrkir stöðu sína á toppi deildarinnar og fer í 19 stig, þremur stigum á eftir Stjörnunni. Afturelding er áfram í fallsæti með 3 stig.

Vondur dagur

Finnst engin ein verðskulda að vera hér, en Aftureldingarliðið sem heild telur það varla vera góðan dag að tapa 6-1.

Dómarinn - 6.5

Ágætlega dæmt en það voru skiptar skoðanir á rauða spjaldinu. Eftir að hafa séð þetta aftur er þetta líklegast alveg rétt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.