SKÝRSLAN: Sigdís Eva kom inn á og gekk frá Fjölniskonum
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn var jafn og spennandi framan af og Fjölniskonur jafnvel ívið betri í fyrri hálfleiknum en þeim vantaði gæði á síðasta þriðjungi. Víkingar komu sterkari út í seinni hálfleikinn og áttu hættuleg færi, Sigdísi Evu var svo skipt inn á á 66. mínútu og landaði hún sigrinum fyrir Víkinga með því að setja tvö mörk.
Bestu leikmenn
1. Sigdís Eva Bárðardóttir
Ekki annað hægt þegar hún kemur inn á í stöðunni 0-0 á 66. mínútu og Víkingar eru komnir 2-0 yfir 20 mínútum seinna eftir tvö mörk frá henni.
2. Momolaoluwa Adesanm
Momolaoluwa var með allt upp á 10 í hjarta varnarinnar hjá Fjölni í kvöld og varðist sterkum sóknarmönnum Víkinga gríðarlega vel, hún var með góðar gætur á Christabel sem sást lítið sérstaklega í fyrri hálfleik og stoppaði margar sóknir.
Mörk Víkinga voru grgíðarlega góð og erfitt að verjast þeim.
Mörk Víkinga voru grgíðarlega góð og erfitt að verjast þeim.
Atvikið
Sigdís Eva kemur Víkingum yfir á 66. mínútu og eftirleikurinn var nokkuð auðveldur fyrir Víkinga.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar sitja í þriðja sæti deildarinnar eftir leiki kvöldsins, HK eiga þó möguleika á ð koma sér upp fyrir þær með sigri á morgun en FH og Tindastóll gera jafntefli svo Víkingar eru tveimur stigum nær toppsætunum heldur en fyrir leikinn í kvöld.
Fjölniskonur sitja enþá í 9. sætinu fjarlægjast öruggt sæti aðeins eftir jafntefli Fylkis og Grindavíkur í kvöld.
Fjölniskonur sitja enþá í 9. sætinu fjarlægjast öruggt sæti aðeins eftir jafntefli Fylkis og Grindavíkur í kvöld.
Vondur dagur
Enginn einn sem átti vondan dag en þrjár fremstu konur Fjölnis þurfa að vinna betur úr góðum stöðum framarlega á vellinum ætli þær sér að fara vinna leiki.
Dómarinn - 8
Ágætis leikur hjá Árna og ekkert út á dómgæsluna að setja.


