Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetEyþór Daði Kjartansson
ÍBV
ÍBV
Besta-deild karla
Hásteinsvöllur
0 - 0
Breiðablik
Breiðablik
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Markalaust í goslokaleiknum

Hvað réði úrslitum?

Markmenn beggja liða eiga mikið hrós skilið sem og varnarmenn liðana því það er með ólíkindum að þessi leikur hafi endað 0-0.

Bestu leikmenn

1. Guðjón Ernir Hrafnkelsson

Lang besti maður vallarins, kæmi mér ekki á óvart að Blikarnir væru búnir að senda inn tilboð til ÍBV eftir þessa frammistöðu. Hann kemur í veg fyrir allavega 2 mörk og dílaði mjög vel við Ísak og Davíð sem voru yfirleitt að tvöfalda á hann.

2. Guðjón Orri Sigurjónsson

Hann kom einnig í veg fyrir allavega 2 mörk og varði allt sem hann átti að verja. Virkilega góður í dag og ég skal lofa því að hann mun fagna því vel á Skipasandi í kvöld. Væri hægt að setja alla menn ÍBV í þennan glugga fyrir heildarframmistöðuna en Guðjónarnir stóðu uppúr að mínu mati.

Atvikið

Ísak og Telmo áttust við á 75. mínútu þar sem Telmo brýtur á Ísaki og lendir á honum eftir brotið. Ísak bregst við með því að kýla til Telmo sem er alls ekki sáttur. Síðan á 93. mín þá er Kundai aleinn í gegn og Anton Ari ekki í markinu en Kundai náði ekki að koma boltanum á markið. Alvöru þreytumerki á Kundai þar sem hefur ekki spilað fótboltaleik í dágóða stund.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV sýndu það að þeir eigi heima í Bestu deildinni að mínu mati með þessari frammistöðu. Blikarnir voru alls ekki lélegir í dag en Eyjamenn voru bara hrikalega góðir. Fyrsta jafntefli Blika á tímabilinu en Eyjamenn eru enn sigurlausir.

Vondur dagur

Ísak Snær eins góður og hann hefur verið á tímabilinu þá var hann ekki nógu góður í dag. Eiður Aron og Guðjón Ernir tóku hann úr umferð í dag og það sást að það pirraði Ísak. Hann var síðan heppinn að fá ekki rautt seint í leiknum.

Dómarinn - 5

Að mínu mati nokkrir skrýtnir dómar og hann hefði átt að gefa Ísaki rautt á 75. mínútu. Felix Örn var líka heppinn að fá ekki seinna gula, allavega að mati stuðningsmanna Blika.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.