Fotbolti.net
Besta deildin
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta-deild karla
Greifavöllurinn
KA
KA
1 - 1
Valur
Valur
0 - 164' Tryggvi Hrafn HaraldssonNökkvi Þeyr Þórisson 82'1 - 1
Dómari: Erlendur Eiríksson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Valsarar heppnir með stig á Akureyri

Hvað réði úrslitum?

Valsarar voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik. Góður síðari hálfleikur hjá KA og sérstaklega eftir rauða spjaldið tóku KA menn alveg yfir og Valsarar heppnir að taka með sér stig suður.

Bestu leikmenn

1. Ágúst Eðvald Hlynsson

Virkilega flottur á miðjunni hjá Val í kvöld og átti gull af sendingu fram völlinn þegar Tryggvi Hrafn skoraði mark Valsmanna.

2. Nökkvi Þeyr Þórisson

Var allt í öllu í sóknarleik KA í kvöld. Miðverðir beggja liða sterkir einnig, varnarleikur KA í marki Vals var þó afar sérstakur.

Atvikið

Guðmundur Andri Tryggvason fékk rautt spjald um miðjan síðari hálfleikinn þegar hann sló til Jajalo markvörð KA. Spurning hvað hann hafi verið að gera þar, glórulaust.

Hvað þýða úrslitin?

Valur áfram í 4. sæti með 20 stig og KA sæti neðar, tveimur stigum á eftir.

Vondur dagur

Þetta leit vel út fyrir Val þangað til Guðmundur var rekinn af velli, KA menn naga sig í handabökin að hafa ekki nýtt það betur.

Dómarinn - 6

Fínn leikur hjá honum held ég. Spurning hvort Nökkvi hafi átt að fá vítaspyrnu..
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.