Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild karla
Kópavogsvöllur
3 - 1
ÍA
ÍA
0 - 154' Gísli Laxdal UnnarssonKristinn Steindórsson 62'1 - 1Damir Muminovic 65'2 - 1Ísak Snær Þorvaldsson 71'3 - 1
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Blikar styrkja stöðu sína á toppnum

Hvað réði úrslitum?

Gæði Breiðabliks eru bara meiri en hjá Skagamönnum. Lenda undir en það virtist vera nákvæmlega það sem þurfti til að koma þeim upp á tærnar. Skagamenn geta líka tekið fullt jákvætt úr þessum leik.

Bestu leikmenn

1. Dagur Dan Þórhallsson

Var heilt yfir 90 mínútur besti leikmaður Blika í dag. Var mjög ógnandi og óhræddur við að keyra á menn. Lagði upp þriðja mark leiksins á Ísak.

2. Damir Muminovic

Var flottur aftast hjá Blikum og átti í skemmtilegu einvígi við Eyþór Aron Wöhler á köflum. Skoraði frábært skallamark sem kom Blikum í forystu.

Atvikið

Mark Gísla Laxdal virtist kveikja undir Blikum og kom leiknum af stað.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar styrkja stöðu sína á toppnum en skilja Skagamenn eftir neðsta með 8 stig. Það munar núna 30 stigum á efsta og neðsta sæti deildarinnar eftir 15 umferðir.

Vondur dagur

Kaj Leo Í Bartalstovu hefði mátt sýna meira en annars var enginn heilt yfir sem átti áberandi slakann dag.

Dómarinn - 7

Virkilega vel dæmdur leikur og vel gert í þriðja marki Blika að beita hagnaði. Solid 7-a
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.