SKÝRSLAN: Færin fóru forgörðum í Keflavík
Hvað réði úrslitum?
Færanýting beggja liða. Ef þú nýtir ekki færin þín getur þú ekki ætlast til þess að vinna fótboltaleiki. Svo einfalt er það.
Bestu leikmenn
1. Nacho Heras
Átti nokkrar fínar tæklingar í leiknum auk þess að bjarga á línu frá Atla Sigurjónssyni í síðari hálfleik. Hann ásamt Sindra í marki Keflavíkur og Dani kollega hans í hjarta varnarinnar helsta ástæða þess að Keflavík fékk ekki á sig mark.
2. Þorsteinn Már Ragnarsson
Fann sig oft í góðu plássi úti vinstra megin úr stöðu vinstri bakvarðar sem er nú sennilega ekki hans besta. Skilaði sínu verki vel þann tíma sem hann spilaði en hefði eflaust þegið að liðsfélagar hans hefðu nýtt eitthvað af þeim sénsum sem hann skapaði.
Atvikið
Tvöföld björgun á línu hjá Keflavík í síðari hálflek stendur upp úr ásamt því að Beitir ver frá Sindra Þór úr dauðafæri með andlitinu.
Hvað þýða úrslitin?
Innbyrðis breytist staða liðanna ekkert liðin ennþá í sæti 6-7 en Fram hefur jafnað Keflavík að stigum í 8.sæti deildarinnar og virðist ætla að gera sig gildandi í baráttu um sæti í efri hlutanum.
Vondur dagur
Verður að skrifast á sóknarmenn að nýta ekki færin sem þeir fá. Stundum eru leikir þó bara svona og boltinn vill ekki í netið.
Dómarinn - 7
Solid og hlutlaust hjá Erlendi heilt yfir. Eitt gult spjald sem ég er ekki viss með en annað held ég að hafi verið bara nokkuð gott.



