

Stadion Galgenwaard - Utrecht
Undankeppni HM kvenna
Aðstæður: Allt upp á tíu
Dómari: Rebecca Welch (England)
Áhorfendur: Um 16 þúsund










Stoðsending: Esmee Brugts
Skalli sem endar í fjærhorninu.
NEI !!!! Stefanie van der Gragt kemur Hollendingum yfir á 93. mÃÂnútu. 1-0 fyrir Holland. ÞvÃÂlÃÂk vonbrigði. pic.twitter.com/scY6qGbkFe
— RÚV ÃÂþróttir (@ruvithrottir) September 6, 2022
Vá Sandra 🔥🔥🔥
— Kristjana Arnarsdóttir (@kristjanaarnars) September 6, 2022
Farið að rigna ansi hressilega núna.
Gunnhildur Yrsa er svo mikil absalút vél à þessu liði. Ekkert endilega alltaf mest flashy leikmaðurinn en á svo sannarlega sÃn moment og gefur alltaf allt à verkefnin. Undirstöðuleikmaður eins og öll lið þurfa á að halda.
— Halldór Marteins (@halldorm) September 6, 2022
Svo mikill fan hérna.#fótboltinet #vinnsla #áframÃsland
Ef við lokum þessu þá þarf að senda andalækni á þennan völl. #ÞærStangir #ÞærSlár 😅
— Hörður Ãgústsson (@horduragustsson) September 6, 2022
NEI SVEINDÃS !!! Besta færi Ãslands kemur á 72. mÃnútu. Það er mun betra að sjá til Ãslenska liðsins à seinni hálfleik. Ennþá markalaust. pic.twitter.com/kicr3VK7Ec
— RÚV Ãþróttir (@ruvithrottir) September 6, 2022
þetta var það sem bretinn kallar sitter
— Tómas (@tommisteindors) September 6, 2022
Gunnhildur Yrsa með fyrirgjöfina og Sveindís var við fjærstöngina en kiksar. Vááá... við fáum ekki betri færi en þetta. Úffff.
Selma Sól er náttúrulega leikmaður sem á alltaf að vera inni, ef hún er à góðu formi. Verðum að hafa leikmenn sem lÃða vel með boltann og vilja boltann.
— Jón Kristjánsson (@nonnidk) September 6, 2022
Er að panikk drekka yfir þessum leik!
— Hannes Friðbjarnarso (@nesirokk) September 6, 2022
Hvert er leikplanið hérna? Að lúðra bara boltanum upp kantana við fyrsta mögulega tækifæri og vona að SveindÃs stingi þær af? Af hverju droppa þær svona ógeðslega djúpt og bjóða hollensku að sækja stanslaust á sig? Ég skil ekki hver taktÃkin er hérna.
— Atli Már Steinarsson (@RexBannon) September 6, 2022

Sandra strÃðsmaður á skilið Fálkaorðuna fyrir frammistöðuna à fyrri hálfleik. @PresidentISL er væntanlega kominn à málið #FotboltiNet pic.twitter.com/gsrGJiuGuF
— Maggi Peran (@maggiperan) September 6, 2022
Ja hérna. Það er með lÃfsins ólÃkindum að Hollendingar skoruðu ekki à fyrri hálfleik. Það er kominn hálfleikur og sem betur fer ennþá markalaust. pic.twitter.com/kDx6Aw0Wef
— RÚV Ãþróttir (@ruvithrottir) September 6, 2022
Hvernig Holland er ekki búið að skora er með hreinum ólíkindum.
Ef leikurinn heldur svona áfram þá er ekki fræðilegur möguleiki á að við sleppum frá tapi. Eitthvað verður undan að láta. Það þarf að finna svör í hálfleiknum.
Sandra ver boltann upp í slána. Þetta er ótrúlegt. Algjörlega ótrúlegt.
Er planið að verjast eitthvað eða bara fylgjast með og vona að sláin reddi þessu à klukkutÃma à viðbót?
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) September 6, 2022
Úff!! Þverslá og lÃnuhreinsun. Það er þung pressa hjá Hollendingum núna. Tvö sláarskot og Guðný hreinsar á lÃnu. Ennþá markalaust sem betur fer. pic.twitter.com/HmhFFjsrLn
— RÚV Ãþróttir (@ruvithrottir) September 6, 2022
Renate Jansen með skot í slá að þessu sinni. Það er með hreinum ólíkindum að Holland sé ekki búið að ná forystunni í þessum leik.
Van de Donk í dauðaafæri. Sandra ver og svo nær Guðný að hreinsa frá á línu. Þessi bolti var hrikalega nálægt því að vera inni.
Geggjað að heyra à 150 Ãslenskum stuðningsmönnum innan um þúsundir Hollendinga.
— Kolbeinn Tumi (@kolbeinntumi) September 6, 2022
Danielle van de Donk með skot eftir fyrirgjöf frá vinstri sem fer í ÞVERSLÁNA! HJÚKK!!! Jill Roord síðan með skalla sem Sandra nær að verja.
Solid fyrstu 17:30 mÃnúturnar 🇳🇱🇮🇸
— Guðmundur Ãsgeirsson (@gummi_aa) September 6, 2022
Gunnhildur ýtir upp à vörninni en við erum svolÃtið að skilja Van de Donk - einn þeirra öflugasta leikmann - opna à svæðinu á milli varnar og miðju. Frekar hættulegur leikur finnst mér en Steini veit örugglega betur #fotboltinet pic.twitter.com/SxfHF9GJSW
Nokkuð viss um það að ef SveindÃs Jane, hefði fengið betri tækniþjálfun, þá myndi hún geta gert tilkall til þess að verða ein sú besta à heimi.
— Jón Kristjánsson (@nonnidk) September 6, 2022
Í þessum skrifuðu orðum taka áhorfendur vallarins bylgju. Íslensku stuðningsmennirnir að sjálfsögðu með.

Stuðningsmenn Íslands í MIKLUM minnihluta hér í kvöld. En við hljótum samt að fá Víkingaklappið. Dóri Gylfa er á vellinum í handboltalandsliðstreyju.
Steini útskýrir breytinguna sem hann gerir á byrjunarliðinu gegn Hollandi. Af hverju Svövu inn fyrir Amöndu? „Varnarlega aðallega. Að fá meiri þunga vinstra megin à varnarleikinn..." pic.twitter.com/bC2NtFZXXE
— RÚV Ãþróttir (@ruvithrottir) September 6, 2022
Þetta er okkar staður, þetta er okkar stund! pic.twitter.com/pnxIEks97S
— Guðmundur Ãsgeirsson (@gummi_aa) September 6, 2022
Ég að búinn að klæðast treyjunni bláu. Farinn að hita upp raddböndin (sorry með mig nágrannar mÃnir) og spennan er að aukast! #ÃframÃsland #FyrirÃsland #Dóttir #FIFAWWC #fotboltinet
— Matti Matti Matt. Hann/Him (@mattimatt) September 6, 2022
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, gerir eina breytingu frá 6-0 sigrinum gegn Hvíta-Rússlandi. Amanda Andradóttir, sem átti mjög góðan leik þar, fer á bekkinn og kemur Svava Rós Guðmundsdóttir kemur inn.


Íslenska liðið er mætt á leikvanginn og búið að taka hinn hefðbundna göngutúr um völlinn.

Mist Rúnarsdóttir, Heimavöllurinn
Ég er að tryllast úr spenningi fyrir þessum leik og hef góða tilfinningu fyrir honum. Verkefnið er vissulega ærið en það er skemmtilegast þannig.
Það má reikna með að Hollendingar verði meira með boltann og okkar konur þurfa að halda góðri einbeitingu, halda áfram að spila agaðan varnarleik og láta föstu leikatriðin og skyndisóknirnar telja. Liðið má samt ekki vera of passíft og það þarf að láta eldfljótum og sóknarsinnuðum Hollendingum líða óþægilega þegar þær koma hátt upp á völlinn. Hvaða áhrif nýr þjálfari nær að hafa á hollenska liðið verður svo bara að koma í ljós.
Mér fannst landsliðið okkar sýna það í síðasta leik gegn Hollandi að Ísland geti vel náð í úrslit. Margt vatn hefur runnið til sjávar síðan þá hjá báðum liðum en þróunin hefur að mínu mati verið jákvæðari hjá okkar konum - og körlum í brúnni. Liðið fór taplaust í gegnum EM og þar var heilmikinn lærdóm að draga. Eitthvað sem án efa nýtist í dag.
Fjögur EM í röð og nú er komið að því að taka næsta skref. Ég spái 1-1 jafntefli. Dagný með okkar mark eftir hornspyrnu og við sleppum við fjallabaksleiðina til Eyjaálfu.
Guðmundur er einn besti blaðamaður og penni landsins. Enn ein neglan hjá honum à geggjaðri grein. Spot on, hver einn og einasti punktur þarna. #fotboltinet https://t.co/MQp1QM6iao
— Orri Rafn Sigurdarson (@OrriRafn) September 6, 2022

Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar
Fyrir fram þá sér maður leikmyndina fyrir sér að Hollendingar verði meira með boltann og íslenska liðið beiti skyndisóknum. Þó verða Hollendingar að vera skynsamar í sínum aðgerðum þar sem íslenska liðinu dugar jafntefli úr þessum leik til að komast beint á HM. Það verður athyglisvert að sjá hvernig hollenska liðið velur að byrja leikinn.
Tvisturinn fyrir þjálfara íslenska liðsins í undirbúningnum fyrir þennan risa leik er að það er nýr þjálfari tók við stjórn hollenska liðsins og hefur sá haft lítinn tíma til undirbúnings og aðeins stjórnað liðinu í einum leik, í seinustu viku í 2-1 sigri gegn Skotlandi í gríðarlegri stemningu á pakkfullum heimavelli Hollendinga. Þar pressuðu Hollendingar Skotana mjög framarlega í upphafi leiks og skoruðu strax á tíundu mínútu. Veikleiki þeirra kom þó í ljós í næstu sókn Skota þegar þær komust á bak við vörn Hollendinga og einar í gegn og jöfnuðu leikinn. Þá áttu Hollendingarnir í erfiðleikum með að verjast föstum leikatriðum Skota sem sköpuðu sér ansi gott færi á að komast yfir í leiknum úr einu þeirra.
Það verður þá athyglisvert að sjá hvernig íslenska liðið velur að byrja leikinn. Á hvaða tímapunktum mun íslenska liðið pressa, verður strax farið í lágpressuna? Hollendingarnir sýndu gegn Skotum að þær eru eiturfljótar upp völlinn í skyndisóknum sínum þannig að þetta er flókinn leikur að setja upp fyrir þjálfarateymi íslenska liðsins sem er alveg örugglega að rýna í þennan Skotaleik alveg fram á upphafsflaut á þriðjudag.
Möguleikar íslenska liðsins verða að teljast góðir. Hópurinn er samstilltur og ágætis jafnvægi í liðinu; liðið getur beitt hættulegum skyndisóknum og er stórhættulegt í föstum leikatriðum.
Það er spenna í loftinu, ég spái jafntefli 2-2.

Adda Baldursdóttir, sérfræðingur og miðjumaður Vals
Tilfinningin fyrir leiknum er góð. Mér fannst góður bragur á leik okkur á móti Hvít-Rússum. Ég geri mér þó fulla grein fyrir því að andstæðingar okkar hafi í besta falli verið mjög slakar. Við kláruðum leikinn mjög fagmannlega og héldum tempói í leiknum allan tímann. Skiptingarnar voru góðar og þar ber helst að nefna kröftuga innkomu Selmu Sólar. Steini er búinn að búa til mikla samkeppni í liðinu með því að treysta mörgum leikmönnum til að byrja og svo hefur hann gert margar skiptingar í leikjum. Þetta hefur gert það að verkum að þegar hann gerir breytingar í leikjum höfum við undantekningarlaust haldið dampi.
Við erum í þeirri stöðu sem við viljum vera. Stjórnum okkar eigin örlögum. Mér finnst vera 'moment' með okkur. Margir leikmenn okkar eru á góðum stað á sínum ferli. Leikurinn á þriðjudaginn verður sá mikilvægasti fyrir kvennafótbolta í langan tíma. Við getum tryggt okkur beint á HM í fyrsta skipti í sögunni.
Ég hugsa að hann stilli upp mjög svipuðu liði og á föstudaginn. Helstu spurningamerkin eru hvort hann haldi Ingibjörgu inni eða muni setja Guðrúnu inn aftur. Hann gæti líka hugsað til þess að setja Elísu í vinstri bakvörð þar sem hún er meiri varnarbakvörður en Áslaug Munda og þá mögulega fært Mundu á kantinn. Amanda var gríðarlega öflug í leiknum á föstudaginn bæði út á velli og svo er hún með frábærar spyrnir í föstum leikatriðum, en það er spurning hvort hann haldi henni inni í þessum stórleik.
Hollendingar eru með nýjan þjálfara sem er spurningamerki. Ég tel okkur vera mæta þeim á fínum tíma. Það var ekki góður bragur yfir þeim á Evrópumótinu, Lieke Martens er meidd og þá hefur Mideama verið að glíma við eftirköst af Covid. Undir stjórn Marks Parsons (fyrrum þjálfara) pressuðu þær andstæðinga hátt en gerðu það ekki nægilega vel, auk þess eru þær með þunga hafsenta sem lentu oft í vandræðum með að stíga hátt með línuna. Ég vona að þær haldi því áfram því þá mun skapast pláss fyrir Sveindísi til að hlaupa í.
Ég held að Steini vilji pressa hátt fyrstu 15-20 mínúturnar. Við erum með gott hápressulið. Glódís vill ýta varnarlínunni sinni ofar og miðjan með Söru og Dagný eru góðar að vinna seinni bolta. Ef það tekst ekki líður okkur líka ágætlega i lágvörn þar sem við erum skipulagðar og fastar fyrir. Það hefur reynst okkur vel að beita skyndisóknum þar sem við erum með eldfljóta Sveindísi klára í að elta bolta aftur fyrir varnir.
Það verður lykilatriði fyrir okkur á þriðjudaginn að Sara haldi áfram að spila eins vel og hún hefur sýnt í tveimur seinustu leikjum okkar. Berglind þarf að vera klók að finna sér svæði og vera nálægt bolta til þess að geta haldið honum fyrir okkur. Varnarlega mun mæða mikið á Söndru og Glódísi, þær þurfa eiga sinn allra besta leik sem og allt liðið í raun.
Ég spái, 1-2, Dagný og Berglind með mörkin.

Við förum ekki inn í leikinn og spilum upp á jafntefli. Við ætlum að gera okkar besta til að vinna. Við erum með þetta í okkar höndum og jafnteflið nægir en þú getur ekki spilað upp á jafntefli. Ef þú færð þú ert með þannig hugarfar, þá ertu í vandræðum. Við förum inn í leikinn og sjáum hvað gerist," sagði Þorsteinn Halldórsson.
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði, hefur trú á góðum úrslitum í kvöld ef íslenska liðið sýnir sínar bestu hliðar.
"Já, þetta er stór leikur. Við gerum okkur fulla grein fyrir því. Við getum skrifað okkur í sögubækurnar með því að ná góðum úrslitum. Við þurfum að spila leikinn. Þetta er mikilvægur leikur og gæti orðið einn sá mikilvægasti hingað til."
"Þær eru hærra skrifaðar en við, þær eru með magnað lið og frábæra leikmenn. Eigum við möguleika? Klárlega. Þetta verður erfiður leikur. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að vinna leikinn," sagði Sara.
"Ég segi bara það sama. Þær eru með allt til að vera með mikið gæðalið. Við þurfum að eiga okkar besta leik til að fá úrslitin sem við viljum," sagði Steini.
"Ég hef mikla trú á því að við förum beint á HM ef við sýnum okkar bestu hliðar. Þetta verður erfiður og krefjandi leikur, en við erum tilbúnar," sagði Sara.

"Miðað við þann leik verður ekki mikið af breytingum. Áhersluatriðin eru að mörgu leyti keimlík," sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, á fréttamannafundi er hann var spurður út í lið Hollands.
Hollendingar ráku enska þjálfarann Mark Parsons eftir EM og réðu nýverið nýjan þjálfara, Andries Jonker. Jonker er með áhugaverða ferilskrá, en hann hefur komið víða við. Hann aðstoðarstjóri Barcelona 2002-03 og svo var hann aðstoðarstjóri Louis van Gaal hjá Bayern München. Þá var hann yfirþjálfari akademíunnar hjá Arsenal fyrir nokkrum árum. Síðast var hann aðalþjálfari Telstar í Hollandi en hann hefur aldrei þjálfað kvennalið áður - ekki fyrr en núna.
Hann stýrði hollenska liðinu í fyrsta sinn síðastliðið föstudagskvöld í 2-1 sigri í æfingaleik gegn Skotlandi. Steini segir að það séu ekki miklar breytingar á hollenska liðinu - allavega miðað við þennan fyrsta leik hjá nýjum þjálfara. Steini og hans teymi eru búin að skoða liðið vel fyrir leikinn mikilvæga sem er framundan.
Holland hefur tvisvar gert jafntefli við Tékkland í riðlinum og var Steini spurður að því á fréttamannafundi í dag hvort hann hefði skoðað þá leiki sérstaklega.
"Við rýndum vel í síðasta leikinn gegn Skotlandi. Við höfum rýnt í Tékkaleikina áður þegar við vorum að skoða Tékkana og fyrir fyrri leikinn heima. Ég held að við séum þokkalega undirbúin og gerum okkur þokkalega grein fyrir hvað þarf til að vinna þær."

Ein stærsta stjarnan ekki með
Það voru stórar fréttir í aðdragandanum þegar kom í ljós að Lieke Martens yrði ekki með Hollandi vegna meiðsla. Hún er 29 ára gömul og leikur með Paris Saint-Germain í Frakklandi. Hún er gríðarlega öflugur leikmaður og svekkjandi fyrir Hollendinga að hún sé ekki með.
"Ég persónulega held að það breyti ekki rosalega miklu. Hún er frábær leikmaður en þær eru með breiðan hóp og ég held að það komi maður í manns stað," sagði landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir á fundinum er hún var spurð út í Martens.
"Það er engin stórkostleg breyting þannig séð. Eina stóra breytingin er sú að sem spilaði vinstra megin þar (á móti Skotlandi), hún lág ekki eins mikið utarlega eins og Martens vill mikið gera," sagði Steini.
"Það er smá áherslubreyting í taktísku uppleggi þar. Hún spilar innar á vellinum sem kom inn fyrir hana á föstudaginn. Auðvitað viltu ekki missa einn þinn besta leikmann, einn þinn mest skapandi leikmann, en það eru margir leikmenn sem geta fyllt hennar skarð og gert það vel."
Báðum liðum vantar lykilmann í sitt lið. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er fjarri góðu gamni hjá Íslandi vegna meiðsla.

Við spáum því að Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, muni stilla upp sama byrjunarliði og gegn Hvíta-Rússlandi síðasta föstudagskvöld. Sá leikur vannst 6-0.
Amanda Andradóttir og Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, sem eru báðar mjög ungar, komu inn í byrjunarliðið gegn Hvíta-Rússlandi og stóðu sig vel. Steini sagði á fundinum að hann treysti þeim í allt.
"Þetta eru leikmenn sem eru efnilegir og góðir. Ég treysti þeim í allt. Ég efast ekki um að þær séu tilbúnar að spila á morgun (í kvöld). Þó þetta sé leikur sem er stærri á föstudaginn þá dreymir öllum leikmönnum að spila svona leiki," sagði Steini á fréttamannafundi í gær.
Við spáum því að Steini gera engar breytingar, en hann er til alls líklegur í þessu. Þetta er líkt og fyrr segir, gríðarlega mikilvægur leikur.

Enski dómarinn Rebecca Welch mun dæma stórleik Hollands og Íslands í undankeppni HM annað kvöld. Áhugavert er að hún dæmdi líka fyrri viðureign þessara liða í riðlinum, þegar Holland vann 2-0 útisigur á Laugardalsvelli.
Welch varð í fyrra fyrsta konan til að fá úthlutaðan leik í enska deildakerfinu karlamegin.
Natalie Aspinall og Sian Massey eru aðstoðardómarar leiksins en báðar starfa þær sem aðstoðardómarar í ensku úrvalsdeildinni. Abigail Marriott er fjórði dómari.

"Við fórum gríðarlega snemma af stað. Ég viðurkenni að það er pínu þreyta núna en það er geggjað að vera komin til Hollands. Núna fer partíið að byrja," sagði Berglind Björg Þorvaldsdóttir í samtali við Fótbolta.net fyrir æfingu á sunnudag.
"Þetta leggst ótrúlega vel í mig. Ég trúi eiginlega ekki að það sé komið að þessu. Það er mikil tilhlökkun í hópnum að fara að spila þennan leik," segir Berglind.
"Við förum inn í þennan leik til þess að vinna og það er markmiðið. Við þurfum að eiga toppleik. Við þurfum að spila okkar besta leik. Við hugsum ekki um jafntefli eða eitthvað þannig, við ætlum að vinna þennan leik."

Þegar liðin mættust á Laugardalsvelli fyrir um ári síðan þá endaði leikurinn 2-0 fyrir hollenska liðið. Ísland er í fjórtánda sæti heimslistans en Holland í því sjötta.
Eins og lesendur vita flestir er þetta úrslitaleikur í riðlinum. Sigurliðið kemst beint á HM sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta ári, Íslandi nægir jafntefli. Þó Ísland tapi í kvöld verður HM-draumurinn þó enn á lífi en liðið þarf þá að komast í gegnum umspil.
Smá skoðunarferð um leikvanginn à Utrecht og aðstöðu fjölmiðlamanna. Þetta er allt hið glæsilegasta. Hér mætast Holland og Ãsland annað kvöld #fotboltinet pic.twitter.com/05aqXLMHdk
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) September 5, 2022






