Fotbolti.net
Besta deildin
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Besta-deild karla - 20. umferð
Kópavogsvöllur
Frábærar aðstæður, nokkuð hlýtt og logn.
Breiðablik
Breiðablik
1 - 0
Valur
Valur
Ísak Snær Þorvaldsson 63'1 - 0
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Meistarasigur hjá Blikum

Hvað réði úrslitum?

Blikar voru yfir 90 mínútur betra liðið. Í fyrri hálfleik var nánast bara eitt lið á vellinum og þó að leikurinn hafi verið jafnari í seinni hálfleik þá voru Blikarnir með tök á leiknum, bæði í stöðunni 0-0 og 1-0. Það var kannski ekki mikið um dauðafæri en Blikarnir komust í markinu aftur fyrir vörn Vals og Ísak Snær skoraði sigurmarkið mikilvæga.

Bestu leikmenn

1. Dagur Dan Þórhallsson

Vinnslan í drengnum er til svo mikillar fyrirmyndar og endalaus orka í honum. Leysti vinstri bakvörðinn vel í dag, var einu sinni mjög tæpur en náði að bjarga á ögurstundu. Frábær frammistaða.

2. Andri Rafn Yeoman

Andri átti virkilega góðan leik í hægri bakverðinum, gríðarlegur leiksskilningur, góðar staðsetningar og góðar sendingar. Gísli og Jesper gera einnig tilkall.

Atvikið

Fyrsta mark Ísaks Snæs í rúman mánuð og hans þrettánda í deildinni í sumar. Annað: Varslan hjá Frederik frá Kidda var mögnuð og þá er óánægja Óla Jó í kjölfar tvöföldu skiptingarinnar mér ofarlega í huga eftir þennan leik.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik er komið með ellefu stiga forskot á toppi deildarinnar. Víkingur getur minnkað bilið niður í níu á miðvikudaginn. Valur er áfram í fjórða sæti og horfir enn í möguleikann á Evrópusæti. Tapið var það fyrsta í þessari þjálfaratíð Óla Jó. Sjö umferðir eru eftir af mótinu.

Vondur dagur

Orri Hrafn. Fékk besta tækifæri Vals þegar hann slapp einn í gegn eftir sendingu frá Aroni. Fyrsta snertingin með lærinu sveik hann þar og hún sveik hann líka gegn Viktori Erni skömmu síðar. Svo var Orra skipt út af í kjölfarið, eitthvað sem ég er ekki alveg viss um að Óli Jó hafi ætlað sér að gera ef marka má viðbrögð hans strax í kjölfar skiptingarinnar.

Dómarinn - 8

Heilt yfir nokkuð fínt, gott. Vel gert að senda Hauk Pál ekki í sturtu þó að það hefði eflaust mátt rökstyðja seinna gula þar. Það var þó atvik sem mér fannst skrítið þegar sókn Vals var stöðvuð þegar Viktor Örn fékk höfuðhögg, Valsmenn voru í góðri stöðu þá. Það er eðlilegt að stoppa vegna höfuðhöggs en það var ekki gert skömmu síðar þegar Blikar keyrðu upp í sókn og Dagur Dan lá eftir. Þá var ekki stoppað fyrr en boltinn fór af velli. Vantaði samræmið þar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.