Fotbolti.net
@orvar05Örvar Arnarsson
Örvar Arnarsson
Venesúela
Venesúela
Vináttulandsleikur í Austurríki
Motion Invest Arena
Milt og gott veður, völlurinn góður
0 - 1
Ísland
Ísland
0 - 187' Ísak Bergmann Jóhannesson (víti)
Dómari: Sebastian Gishamer (Austurríki)

SKÝRSLAN: Aron maður leiksins í endurkomuleiknum

Hvað réði úrslitum?

Það var lítið um færi í þessum æfingaleik í Austurríki í kvöld. Ísland átti sína fyrstu marktilraun eftir um stundarfjórðungsleik í seinni hálfleik. Eina markið skoraði svellkaldur Ísak Bergmann Jóhannesson af vítapunktinum eftir að hafa komið inn af bekknum. Skaut í mitt markið, upp í þaknetið.

Bestu leikmenn

1. Aron Einar Gunnarsson

Ekki spurning í mínum huga. Lék frábærlega í hjarta varnarinnar með fyrirliðabandið og það heyrðist rosalega vel í honum allan leikinn. Stýrði mönnum í kringum sig.

2. Davíð Kristján Ólafsson

Davíð á skilið að fá hrós, mjög flottur leikur hjá honum í bakverðinum. Hörður Björgvin og Þórir Jóhann hefðu líka getað verið í þessum dálki.

Atvikið

Þessi leikur hafði öll merki þess um að enda með markalausu jafntefli, nánast frá því að flautað var til leiks! Þess vegna brá manni nánast þegar dómarinn benti á punktinn seint í leiknum og Ísland fékk vítaspyrnu. Þórir Jóhann Helgason sem átti virkilega öfluga innkomu fékk vítið.

Hvað þýða úrslitin?

Íslenskir sigrar hafa verið heldur sjaldgæfir og við fögnum öllum sigrum, sama þó um vináttulandsleik hafi verið að ræða. Þessi sigur er gott veganesti í leik gegn Albaníu í Tirana á þriðjudag. Leikur sem verður vonandi úrslitaleikur um sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar.

Vondur dagur

Það var nokkur harka í leiknum og mikil vonbrigði fyrir Arnór Sigurðsson að þurfa að yfirgefa völlinn vegna meiðsla um miðjan fyrri hálfleikinn, eftir heldur betur groddaralega tæklingu leikmanns Venesúela. Appelsínugult spjald.

Dómarinn - 7,5

Lítið yfir Austurríkismanninum að kvarta. Leikurinn var fullkmikið stopp í fyrri hálfleik en það var ekki við hann að sakast. Vítaspyrnudómurinn hárréttur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.