![](/teamsLogos/umfa_copy1.jpg)
Afturelding
1
3
Valur
![](/teamsLogos/valur_2023kvk.jpg)
0-1
Cyera Hintzen
'7
0-2
Anna Rakel Pétursdóttir
'36
Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir
'38
1-2
1-3
Cyera Hintzen
'87
24.09.2022 - 14:00
Malbikstöðin að Varmá
Besta-deild kvenna
Aðstæður: Smávægileg rigning en bara fínt
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Maður leiksins: Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Valur)
Malbikstöðin að Varmá
Besta-deild kvenna
Aðstæður: Smávægileg rigning en bara fínt
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Maður leiksins: Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Valur)
Byrjunarlið:
12. Eva Ýr Helgadóttir (m)
3. Mackenzie Hope Cherry
8. Veronica Parreno Boix
('77)
![](/themes/2021/images/out.png)
10. Hildur Karítas Gunnarsdóttir (f)
11. Elena Brynjarsdóttir
('89)
![](/themes/2021/images/out.png)
13. Ísafold Þórhallsdóttir
16. Birna Kristín Björnsdóttir
19. Kristín Þóra Birgisdóttir
20. Sara Roca Siguenza.
21. Sigrún Gunndís Harðardóttir
23. Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir
![](/themes/2021/images/goal.png)
Varamenn:
5. Andrea Katrín Ólafsdóttir
11. Elfa Sif Hlynsdóttir
11. Guðrún Embla Finnsdóttir
('89)
![](/themes/2021/images/in.png)
26. Maria Paterna
77. Victoria Kaláberová
Liðsstjórn:
Alexander Aron Davorsson (Þ)
Ruth Þórðar Þórðardóttir (Þ)
Bjarki Már Sverrisson (Þ)
Svandís Ösp Long
Sigurbjartur Sigurjónsson
Katrín Rut Kvaran
Sævar Örn Ingólfsson
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Leik lokið!
VALUR ER ÍSLANDSMEISTARI!!!
Til hamingju með það Valsfólk um allt land. Þetta er annað árið í röð sem Valur tekur þann stóra en þær eru einnig bikarmeistarar.
Afturelding fellur niður í Lengjudeildina.
Viðtöl og skýrsla koma inn á eftir.

![](/images/news/553000/553221/700w.jpg)
90. mín
Bikarinn fer ekki á loft í dag. Honum verður lyft eftir síðasta heimaleik Vals gegn Selfossi eftir viku.
89. mín
![](/themes/2021/images/in-out.png)
Inn:Guðrún Embla Finnsdóttir (Afturelding)
Út:Elena Brynjarsdóttir (Afturelding)
87. mín
MARK!
![](/themes/2021/images/goal.png)
Cyera Hintzen (Valur)
Stoðsending: Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Stoðsending: Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
GLÆSILEGT MARK!!!!
Cyera með skot lengst utan af velli og þessi bolti syngur í netinu. Hún gengur frá þessum leik og tryggir það endanlega að Valur vinni titilinn.
Þórdís með sína þriðju stoðsendingu í dag.
Cyera með skot lengst utan af velli og þessi bolti syngur í netinu. Hún gengur frá þessum leik og tryggir það endanlega að Valur vinni titilinn.
Þórdís með sína þriðju stoðsendingu í dag.
85. mín
Sólveig með góða fyrirgjöf og Cyera stýrir boltanum í átt að markinu en skotið er laflaust.
80. mín
Stöngin!
Þórdís með stórhættulega fyrirgjöf sem fellur fyrir Ásdísi í teignum en hún smellir boltanum í stöngina. Þarna mátti ekki miklu muna!
Þórdís með stórhættulega fyrirgjöf sem fellur fyrir Ásdísi í teignum en hún smellir boltanum í stöngina. Þarna mátti ekki miklu muna!
76. mín
Tempóið aðeins að detta niður. Ég held að Valsfólk geti farið að opna kampavínið þó þetta sé nú ekki alveg búið.
73. mín
Valur er með fulla stjórn á þessu akkúrat núna. Afturelding ekki náð að skapa sér mikið eftir flottan byrjun í seinni hálfleik.
68. mín
Lára Kristín með geggjaða sendingu í gegn á Sólveigu sem leikur á einn varnarmann en missir boltann svo frá sér og aftur fyrir endamörk fer hann.
63. mín
Ásdís Karen að koma sér í dauðafæri en hittir boltann ekki nægilega vel. Liggur svo eftir meidd.
![](/images/news/553000/553229/700w.jpg)
61. mín
Sólveig Larsen kemur inn á gegn liðinu sem hún spilaði með fyrri hluta tímabilsins. Lék með Aftureldingu á láni frá Val.
![](/images/news/514000/514304/700w.jpg)
61. mín
Þórdís Hrönn keyrir á vörnina, köttar yfir á vinstri og lætur vaða. Fín tilraun en boltinn yfir.
60. mín
Ásdís Karen með skot úr þröngu færi sem er auðvelt viðureignar fyrir Evu í markinu.
![](/images/news/553000/553226/700w.jpg)
57. mín
Hvernig er Elín Metta ekki búin að skora í þessum leik?
Þórdís Hrönn kemur boltanum til hennar og hún leikur á varnarmenn Aftureldingar í kringum teiginn. Á í kjölfarið skot sem fer rétt fram hjá markinu. Þetta skot leit vel út en ratar ekki á markið.
Þórdís Hrönn kemur boltanum til hennar og hún leikur á varnarmenn Aftureldingar í kringum teiginn. Á í kjölfarið skot sem fer rétt fram hjá markinu. Þetta skot leit vel út en ratar ekki á markið.
53. mín
Heimakonur eru heilt yfir búnar að spila mjög vel í ljósi þess hve sterkur andstæðingurinn hérna í dag er.
51. mín
Valskonur tapa boltanum og Afturelding geysist upp völlinn. Að lokum komast þær í skotfæri. Þær ná tveimur skotum sem fara í varnarmenn og svo ná þær þriðja skotinu sem Sandra á í engum vandræðum með.
47. mín
Guðrún Elísabet í dauðafæri en setur boltann fram hjá!!! Þetta var frábær sókn hjá Aftureldingu frá upphafi til enda.
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur í Mosó.
Valskonur heilt yfir verið sterkari aðilinn en þetta er alls ekki búið.
Valskonur heilt yfir verið sterkari aðilinn en þetta er alls ekki búið.
![](/images/news/553000/553222/700w.jpg)
40. mín
Það er allt að gerast núna!
Stuttu áður en Guðrún Elísabet skoraði þá átti Hildur Karítas skot sem fór rétt fram hjá markinu. Valskonur urðu kærulausar eftir annað mark sitt.
Svo var Elín Metta í færi stuttu eftir að Afturelding minnkaði muninn en Eva Ýr varði mjög vel! Þórdís Hrönn enn og aftur með undirbúninginn að því.

38. mín
MARK!
![](/themes/2021/images/goal.png)
Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir (Afturelding)
Heimakonur eru ekki búnar að gefast upp!!!
Guðrún Elísabet fær boltann í teignum og klárar vel fram hjá landsliðsmarkverðinum. Sá ekki alveg hver átti sendinguna.
Var búin að fá tvö önnur færi til að skora, en hún gerir markið í þriðja færinu.
Guðrún Elísabet fær boltann í teignum og klárar vel fram hjá landsliðsmarkverðinum. Sá ekki alveg hver átti sendinguna.
Var búin að fá tvö önnur færi til að skora, en hún gerir markið í þriðja færinu.
36. mín
MARK!
![](/themes/2021/images/goal.png)
Anna Rakel Pétursdóttir (Valur)
Stoðsending: Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Stoðsending: Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Vinstri bakvörðurinn gerir annað mark Vals!!!
Bara sama uppskrift og áðan. Þórdís Hrönn aftur að leggja upp og núna er það Anna Rakel sem mætir inn í teiginn og klárar.
Valur er að ganga frá þessu hérna í fyrri hálfleik.
Bara sama uppskrift og áðan. Þórdís Hrönn aftur að leggja upp og núna er það Anna Rakel sem mætir inn í teiginn og klárar.
Valur er að ganga frá þessu hérna í fyrri hálfleik.
35. mín
Ásdís Karen við það að pota boltanum í markið en Mackenzie kemur á ferðinni og bjargar.
33. mín
Þórdís Elva með skot fyrir utan teig. Það fer af varnarmanni og Valur fær hornspyrnu. Ásdís Karen tekur spyrnuna og það er smá barningur á nærstönginni en svo er dæmd markspyrna.
30. mín
Lára Kristín sendir Elínu í gegn og hún reynir skotið utarlega í teignum en það fer rétt yfir markið. Fín tilraun!
![](/images/news/553000/553217/700w.jpg)
28. mín
Valskonur að reyna að spila sig í gegn með stuttum, hröðum sendingum en Mosfellingar verjast vel og setja boltann út í innkast.
25. mín
Hildur Karítas liggur eftir og þarf aðhlynningu. Mér sýnist hún ætla að halda leik áfram.
23. mín
Þórdís Hrönn aftur með góðan sprett og hættulega fyrirgjöf en Mackenzie er vel á verði og kemur boltanum frá.
23. mín
Hildur Karítas með aukaspyrnu af einhverjum 30 metrum. Hún lætur vaða en boltinn fer hátt yfir markið.
20. mín
Elín Metta fær langa sendingu upp. Hún reynir skot sem fer af varnarmanni og dettur á hliðarnetið. Ég hélt að þessi væri að fara að detta inn.
15. mín
Lára með sendingu í gegnum línurnar á Elísu sem þræðir svo Elínu í gegn. Elín í fínu færi en Eva Ýr sér við henni.
![](/images/news/553000/553220/700w.jpg)
11. mín
Guðrún Elísabet er að ógna! Löng sending fram og hún kemst á bak við vörnina en Sandra kemur vel á móti og lokar.
Afturelding hefur skapað sér tvö fín færi til þessa.
Afturelding hefur skapað sér tvö fín færi til þessa.
10. mín
Held að Þórdís Hrönn hafi verið að leggja upp sitt níunda mark í sumar. Engin í deildinni sem hefur lagt upp fleiri mörk.
7. mín
MARK!
![](/themes/2021/images/goal.png)
Cyera Hintzen (Valur)
Stoðsending: Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Stoðsending: Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
MARK!!!!!
Þórdís Hrönn leggur upp einn eitt markið sitt í sumar og það er Cyera sem mætir inn á teiginn og klárar færið. Flottur sprettur hjá Þórdísi og Cyera klárar þetta.
Valur þarf bara stig til að verða meistari en þær eru núna komnar yfir.

6. mín
Guðrún Elísabet komin í færi í teignum en kemur sér í þrönga stöðu og Sandra á í engum vandræðum með að verja.
3. mín
Svona stillir Afturelding upp:
Eva Ýr
Birna Kristín - Mackenzie - Sigrún - Veronica
Kristín Þóra
Elena - Ísafold - Hildur Karítas - Sara Roca
Guðrún Elísabet
Eva Ýr
Birna Kristín - Mackenzie - Sigrún - Veronica
Kristín Þóra
Elena - Ísafold - Hildur Karítas - Sara Roca
Guðrún Elísabet
2. mín
Cyera strax í góðu færi, fær boltann í teignum og nær að taka á móti honum og ná skoti á markið en Eva Ýr er vel á verði og nær að verja vel.
1. mín
Svona stillir Valur upp:
Sandra
Elísa - Lillý - Arna Sif - Anna Rakel
Þórdís Elva - Lára
Cyera - Ásdís - Þórdís Hrönn
Elín Metta
Sandra
Elísa - Lillý - Arna Sif - Anna Rakel
Þórdís Elva - Lára
Cyera - Ásdís - Þórdís Hrönn
Elín Metta
1. mín
Leikur hafinn
Liðin ganga út á völl og Bestu deildarstefið hljómar í hátalarakerfinu.
Afturelding á upphafssparkið og þetta er farið af stað! Sigrún Gunndís, fyrirliði Aftureldingar, var heiðruð fyrir leik þar sem hún er búin að spila 100 leiki fyrir félagið.
Afturelding á upphafssparkið og þetta er farið af stað! Sigrún Gunndís, fyrirliði Aftureldingar, var heiðruð fyrir leik þar sem hún er búin að spila 100 leiki fyrir félagið.
![](/images/news/553000/553213/700w.jpg)
Fyrir leik
Það er sorglegt að sjá hvað það er fámennt í stúkunni í ljósi þess hvað það er mikið undir hérna í dag.
Fyrir leik
Byrjunarliðin fyrir þennan leik eru klár.
Hjá Val kemur Lillý Rut inn í byrjunarliðið fyrir Mist sem er meidd. pétur gerir alls þrjár breytingar frá leiknum gegn Slavia því Elín Metta Jensen og Þórdís Elva Ágústsdóttir koma einnig inn í liðið.
Hjá Aftureldingu eru bara fimm leikmenn á bekknum.
Lillý Rut Hlynsdótttir.

![](/images/news/552000/552303/700w.jpg)
Lillý Rut Hlynsdótttir.
Fyrir leik
Þegar þessi lið mættust fyrr í sumar þá hafði Valur betur, 6-1. Ætli við fáum jafnari leik í Mosfellsbæ dag?
Nær Afturelding að svara fyrir tapið stóra frá því fyrr í sumar?
![](/images/news/518000/518888/700w.jpg)
Nær Afturelding að svara fyrir tapið stóra frá því fyrr í sumar?
à dag hefst 17. umferð Bestu deild kvenna.
— Besta deildin (@bestadeildin) September 24, 2022
à Malbikstöðinni að Varmá tekur @umfafturelding á móti @Valurfotbolti pic.twitter.com/4J0ra9chuo
Fyrir leik
Valur varð fyrir áfalli í síðasta leik þegar miðvörðurinn Mist Edvardsdóttir meiddist illa. Lillý Rut Hlynsdóttir kom inn á fyrir hana og spilaði sínar fyrstu mínútur í sumar. Það verður athyglisvert að sjá hvort Lillý muni byrja í dag en hún er sjálf að koma úr meiðslum.
![](/images/news/550000/550969/700w.jpg)
Fyrir leik
Valur spilaði síðasta á miðvikudaginn er þær töpuðu 0-1 fyrir Slavia Prag í forkeppni Meistaradeildarinnar. Síðasti leikur Aftureldingar var 3-0 tap gegn Breiðabliki um síðustu helgi. Þar skoraði Agla María Albertsdóttir tvö mörk fyrir Blika.
![](/images/news/551000/551098/700w.jpg)
Fyrir leik
Það er mikið undir hér í dag fyrir bæði þessi lið. Valur er með sex stiga forystu á toppnum þegar tvær umferðir eru eftir en þær þurfa einungis stig til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð.
Afturelding hefur líka að miklu að keppa þar sem liðið þarf sigur til að eiga möguleika á að halda sér í deildinni.
Afturelding hefur líka að miklu að keppa þar sem liðið þarf sigur til að eiga möguleika á að halda sér í deildinni.
![](/images/news/552000/552129/700w.jpg)
Byrjunarlið:
12. Sandra Sigurðardóttir (m)
4. Arna Sif Ásgrímsdóttir
6. Lára Kristín Pedersen
7. Elísa Viðarsdóttir
8. Ásdís Karen Halldórsdóttir
![](/themes/2021/images/yellow.gif)
10. Elín Metta Jensen
('61)
![](/themes/2021/images/out.png)
11. Anna Rakel Pétursdóttir
![](/themes/2021/images/goal.png)
13. Cyera Hintzen
('89)
![](/themes/2021/images/out.png)
![](/themes/2021/images/goal.png)
![](/themes/2021/images/goal.png)
16. Þórdís Elva Ágústsdóttir
('61)
![](/themes/2021/images/out.png)
17. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
('89)
![](/themes/2021/images/out.png)
![](/themes/2021/images/yellow.gif)
21. Lillý Rut Hlynsdóttir
Varamenn:
1. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
14. Sólveig Jóhannesdóttir Larsen
('61)
![](/themes/2021/images/in.png)
15. Hailey Lanier Berg
19. Bryndís Arna Níelsdóttir
('89)
![](/themes/2021/images/in.png)
24. Mikaela Nótt Pétursdóttir
26. Sigríður Theód. Guðmundsdóttir
('89)
![](/themes/2021/images/in.png)
Liðsstjórn:
Pétur Pétursson (Þ)
Ásta Árnadóttir
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
María Hjaltalín
Jón Höskuldsson
Matthías Guðmundsson
Gísli Þór Einarsson
Mark Wesley Johnson
Gul spjöld:
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('54)
Ásdís Karen Halldórsdóttir ('69)
Rauð spjöld: