Leik lokið!
+6
Þetta er farið að líta ansi vel út í deildinni fyrir Blika eftir þennan ótrúlega sigur.
90. mín
+4
RODRI!
Í DAUÐAFÆRI en nær ekki að stýra boltanum á markið.
90. mín
Gult spjald
Ísak Snær Þorvaldsson
+1 Kemur í veg fyrir að KA geti tekið aukaspyrnu fljótt.90. mín
InnDavíð Ingvarsson
ÚtJason Daði Svanþórsson
87. mín
MAAAARK!
Jason Daði Svanþórsson (stoðsending: Ísak Snær Þorvaldsson)
MAAAAARK!! BLIKAR NÁ FORYSTUNNI AFTUR STRAX! Ísak Snær nær að koma boltanum á Jason sem setur boltann í netið. Ísak fékk væna byltu um leið og hann losaði sig við boltann og lá eftir en hann er staðinn aftur upp og leikurinn kominn í gang.85. mín
MAAAARK!
Hallgrímur Mar Steingrímsson
MAAAAARK!!!! SETUR ANTON ARA Í RANGT HORN SPENNANDI LOKAMÍNÚTUR FRAMUNDAN!83. mín
KA FÆR VÍTASPYRNU! Viktor Örn brýtur á Ásgeiri.
80. mín
Þessi síðari hálfleikur hefur ekki verið neitt fyrir augað. Steindautt.
76. mín
InnSteinþór Freyr Þorsteinsson
ÚtBjarni Aðalsteinsson
73. mín
Bjarni Aðalsteinsson nýkominn inná og þarf að fara útaf vegna meiðsla.
67. mín
InnElfar Freyr Helgason
ÚtDamir Muminovic
66. mín
Jajalo heppinn þarna. Full lengi að athafna sig með boltann í löppunum og Ísak kemst fyrir sendinguna hjá honum en hann fær boltann aftur og tekur hann upp.
65. mín
Gult spjald
Dusan Brkovic
61. mín
InnBjarni Aðalsteinsson
ÚtElfar Árni Aðalsteinsson
61. mín
InnRodrigo Gomes Mateo
ÚtAndri Fannar Stefánsson
56. mín
Jason Daði kominn í dauðafæri. Jajalo hefur átt frábæran leik hér í dag og varði gríðarlega vel hér frá Jason.
50. mín
Rólegt yfir þessu hér í upphafi, bæði lið komist í ákjósanlegar stöður en ekki náð að skapa sér færi.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
45. mín
+5
45. mín
Gult spjald
Andri Rafn Yeoman
+4 Andri Rafn Yeoman bíður Ásgeir velkominn í leikinn. Ásgeir var á undan í boltann en Andri fylgir á eftir og sparkar í fótinn á Ásgeiri.45. mín
InnÁsgeir Sigurgeirsson
ÚtSveinn Margeir Hauksson
45. mín
+1
Fjórar mínútur í uppbótartíma
45. mín
Sveinn Margeir Hauksson hefur legið hér í nokkrar mínútur eftir að hafa fengið högg á hnéð. vonandi ekkert alvarlegt.
Hann er staðinn upp en þarf að fara af velli.
39. mín
Stuðningsmenn Blika sprengdu aðra confetti bombu í fagnaðarlátunum eftir markið. Völlurinn alltaf verið grænn og glæsilegur en hann fer að lýsast upp með öllu þessu neongræna confetti sem er komið á völlinn.
34. mín
MAAAARK!
Kristinn Steindórsson
MAAAAARK!!! Kristinn kemur gestunum yfir!! Boltinn dettur fyrir hann á teignum eftir hornspyrnu og hann smyr boltann í hornið.27. mín
Hrannar Björn setur boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Bryan en markið dæmt af. Daníel Hafsteinsson keyrði inn í Viktor Örn inn á teignum og er dæmdur brotlegur.
23. mín
Skotið framhjá markinu hjá Degi Dan úr aukaspyrnunni.
22. mín
Blikar fá aukaspyrnu við vítateig KA.
18. mín
Gult spjald
Viktor Örn Margeirsson
Brýtur á Jakobi og stöðvar skyndisókn.16. mín
Sveinn Margeir fer upp kanntinn og á sendingu fyrir á Jakob Snæ sem er í góðu færi en Anton Ari sér við honum.
14. mín
DAUÐAFÆRI
Ísak í dauðafæri! En enn ein frábær markvarslan hjá Jajalo í dag!
11. mín
Ísak Snær kominn í fína stöðu en köttar inn á völlinn og lendir á vegg.
5. mín
Kristinn Steindórsson með skalla eftir hornspyrnu. Hann er nánast í markteignum en Jajalo fljótur að bregðast við og ver vel.
4. mín
Anton Ari með langa sendingu fram völlinn, boltanum flikkað á Jason Daða sem á laust skot, auðvelt fyrir Jajalo.
1. mín
Jakob Snær Árnason sparkar leiknum af stað!
Fyrir leik
Blysin hafa verið illa liðin á flestum fótboltaleikjum. Stuðningsmenn Blika fóru nýja leið hér og sprengdu confetti yfir völlinn.
Fyrir leik
Það var hressandi slydda hér fyrir leik. Völlurinn rennandi blautur, frábærar aðstæður fyrir áhugaverðan fótboltaleik hér í dag!
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Það eru þrjár breytingar á byrjunarliði KA sem vann KR í fyrstu umferð. Þorri Mar Þórisson dettur meðal annars út og sest á bekkinn. Með honum á bekknum er Rodri en hann hefur misst af síðustu tveimur leikjum liðsins.
Það er ein breyting á liði Blika sem unnu Stjörnuna 3-0 í fyrstu umferðinni. Gísli Eyjólfsson skoraði eitt af mörkum liðsins en hann sest á bekkinn og Kristinn Steindórsson kemur inn í hans stað.


Fyrir leik
Dómarateymið
Jóhann Ingi Jónsson verður með flautuna hér í dag og Birkir Sigurðarson og Egill Guðvarður Guðlaugsson verða honum til aðstoðar. Sigurður Hjörtur Þrastarson verður með skiltið á hliðarlínunni. Þá er Þóroddur Hjaltalín eftirlitsmaður KSÍ.
Jóhann Ingi Jónsson
Jóhann Ingi JónssonFyrir leik
Að duga eða drepast fyrir KA
KA þarf nauðsynlega á sigri að halda í dag ætli þeir að halda sér í titilbaráttunni en Breiðablik er með 8 stiga forystu á Akureyringana þegar fjórar umferðir eru eftir!
Fyrir leik
Það voru tveir heimasigrar þegar þessi lið mættust í Bestu deildinni í sumar. Breiðablik vann 4-1 í Kópavogi en KA vann 2-1 hér á Greifavellinum í síðari leiknum.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik KA og Breiðablik í Bestu deildinni.
Leikið er á Greifavellinum á Akureyri og hefst leikurinn kl 14.



