Fotbolti.net
Besta deildin
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
KA
KA
Besta-deild karla - Efri hluti
Greifavöllurinn
1 - 2
Breiðablik
Breiðablik
0 - 134' Kristinn SteindórssonHallgrímur Mar Steingrímsson (víti) 85'1 - 11 - 287' Jason Daði Svanþórsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Blikar einu skrefi nær Íslandsmeistaratitlinum eftir sigur á KA

Hvað réði úrslitum?

Blikar áttu sigurinn svo sannarlega skilið. Voru betri aðilinn heilt yfir. Brotnuðu ekki við að fá á sig mark úr vítaspyrnu og svöruðu um hæl með glæsibrag.

Bestu leikmenn

1. Jason Daði Svanþórsson

Fínn leikur hjá honum. Kom sér í nokkur færi en Jajalo var frábær í dag. Jason sá þó við honum með því að skora sigurmark leiksins.

2. Kristijan Jajalo

Erfitt að velja markvörð tapliðsins sem fær á sig tvö mörk en hann sá svo sannarlega til þess að KA var aðeins 1-0 undir þegar liðið fékk vítaspyrnuna og jafnaði metin.

Atvikið

KA fær vítaspyrnu þegar skammt er til leiksloka og fá tækifæri til að jafna og koma sér inn í leikinn en Jason Daði nær að koma Blikum aftur yfir tveimur mínútum síðar og tryggir liðinu stigin þrjú.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik komið langt með að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn en KA ætlar sér að næla í 2. sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Risa tækifæri fyrir KA að halda sér í titilbaráttunni en liðið mætti illa til leiks. Jajalo á milli stanganna var ljósi punkturinn í liðinu.

Dómarinn - 6

Fannst hann ekki leyfa nógu mikið, flautaði aðeins of mikið og mögulega svolítið soft vítaspyrnudómur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.