Leik lokið!
90. mín
+4
FH fá aukaspyrnu og það munar engu að þær jafni
FH fá aukaspyrnu og það munar engu að þær jafni
90. mín
Rífur Mackenzie niður þegar hún er að sleppa fram hjá henni inn í teiginn
Gult spjald
Ásta Eir Árnadóttir
+4Rífur Mackenzie niður þegar hún er að sleppa fram hjá henni inn í teiginn
90. mín
Hafrún Rakel fer mjög illa með Colleen og skilur hana eftir í rykinu. Hún keyrir inn á völlinn og rúllar boltanum út í teiginn þar sem Andrea er og leggur hann framhjá Aldísi
Drama
Andrea Rut Bjarnadóttir
+3Hafrún Rakel fer mjög illa með Colleen og skilur hana eftir í rykinu. Hún keyrir inn á völlinn og rúllar boltanum út í teiginn þar sem Andrea er og leggur hann framhjá Aldísi
90. mín
+2
Blikar fá horn en FH hreinsa
Blikar fá horn en FH hreinsa
90. mín
+1
Fjórum mínútum bætt við, fáum við eitthvað drama hérna í lokinn?
Fjórum mínútum bætt við, fáum við eitthvað drama hérna í lokinn?
88. mín
Það kemur bolti inn á teig FH frá vinstri sem fer beint á Heidi. Hún er í vandræðum og missir boltann einhvernveginn á milli lappanna á sér en Aldís er vel vakandi og stekkur út eins og köttur áður en Blikar ná til hans
86. mín
InnÍrena Héðinsdóttir Gonzalez
ÚtKatrín Ásbjörnsdóttir
86. mín
InnClara Sigurðardóttir
ÚtVigdís Lilja Kristjánsdóttir
84. mín
Hafrún með skot utarlega í teignum en það er rétt yfir
79. mín
InnBerglind Þrastardóttir
ÚtElísa Lana Sigurjónsdóttir
78. mín
Þær jafna strax
Mackenzie Marie George
Boltinn kemur hár fram en fer beint í lappirnar á Hildi sem, á einhvern óskiljanlegan hátt, nær ekki að koma boltanum í burtu. Mackenzie nýtir sér það og stelur boltanum af henni og rekur boltann aðeins áður en hún lætur vaða. Toni reynir að henda sér fyrir og boltinn fer af henni og inn. Þetta mark verður að skrifa á Hildi sem núllar þarna út markið sem hún var að enda við að skora hinum megin76. mín
InnErla Sól Vigfúsdóttir
ÚtVigdís Edda Friðriksdóttir
75. mín
2-1
Hildur Þóra Hákonardóttir
Blikar fá aukaspyrnu úti vinstra megin sem að Agla María tekur. Spyrnan er inn í fullkomið svæði fyrir Hildi sem að þarf bara rétt að ná snertingu og setur hann fram hjá Aldísi73. mín
Mackenzie tekur Hildi á og hefur betur, hleður í skotið en það er rétt yfir. Hildur mjög heppin þarna, hún dettur á sprettinum og hefði auðveldlega getað klippt Mackenzie með sér niður. Það hefði alveg mögulega getað verið rautt spjald.
73. mín
Ágætis tilruan frá Katrínu en Aldís ver
70. mín
Trommusveit Blika, þar sem meðalaldurinn er eitthvað í kring um 10 árin, er búin að tromma stanslaust síðan Soffía flautaði þennan leik á
69. mín
InnAndrea Rut Bjarnadóttir
ÚtBirta Georgsdóttir
69. mín
InnBergþóra Sól Ásmundsdóttir
ÚtKaritas Tómasdóttir
67. mín
Agla María er sloppin í gegn en flaggið er komið á loft
63. mín
Geggjuð varsla
Birta sleppur í gegn og hún og Hafrún eru tvær á eina. Birta rennir honum yfir á Hafrúnu sem á skot en Aldís étur hana og kemur boltanum frá
62. mín
Fínasta sókn Blika endar með ekki svo fínu skoti frá Birtu
61. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtEsther Rós Arnarsdóttir
61. mín
FH eru að undirbúa skiptingu. Elín Björg er að koma inn á
58. mín
Geggjaður bolti af hægri kantinum frá Karitas sem Agla María rétt missir af
56. mín
Blikar fá hérna ágætis sókn sem endar með þvæi að Arna neglir honum upp í loftið og er ekki langt frá því að setja hann inn í eigið mark en hann fer tæplega framhjá.
Blikar fá horn en ekkert verður úr því
Blikar fá horn en ekkert verður úr því
55. mín
FH hafa byrjað þennan hálfleik af krafti, Blikar komast varla af eigin vallarhelming
54. mín
Esther á skemmtilega sendingu í hlaupaleiðina hjá Mackenzie sem að tekur Hildi á en hleypur eiginlega sjálf með boltann út af
53. mín
Gult spjald
Valgerður Ósk Valsdóttir
Tekur Karitas niður og stoppar skyndisókn51. mín
Hildigunnur gerir vel og vinnu boltann af Karitas á hættulegum stað. Hún þræðir sig í gegn um vörn Blika en ætlar of langt sjálf og missir boltann á endanum. Esther ekki sátt með að fá ekki sendingu þarna
46. mín
Dauðafæri
Elísa á fyrirgjöf á Hildigunni sem leggur hann fyrir sig og skýtur fram hjá. Þær verða að nýta svona færi ef að þessi seinni hálfleikur spilast eins og fyrri
46. mín
Katrín sparkar þessu aftur í gang. Það er spurning hvernig sóknarleikur Blika mun ganga á móti vindinum
45. mín
Hálfleikur
Liðin fara jöfn inn í hálfleik. Blikar hafa verið töluvert hættulegri í dag en FH eru að verjast vel og Aldís er búin að verja vel nokkrum sinnum. Trúi ekki öðru en að við fáum fleiri mörk í seinni hálfleik
45. mín
Þær bjarga á línu
+1
Blikar fá horn. Spyrnan kemur inn á miðjan teiginn og Birta á skot sem er varið. Boltinn berst til Toni sem nær skoti á markið en Elísa er vel staðsett á línunni og bjargar marki, Aldís nær svo að skutla sér á hann.
Blikar fá horn. Spyrnan kemur inn á miðjan teiginn og Birta á skot sem er varið. Boltinn berst til Toni sem nær skoti á markið en Elísa er vel staðsett á línunni og bjargar marki, Aldís nær svo að skutla sér á hann.
40. mín
Þær jafna
Hafrún Rakel Halldórsdóttir
Það hlaut að koma að því að þær kæmu boltanum inn. Þær sækja upp vinstra megin og boltinn kemur inn í. Smá krafs og boltinn berst út í teiginn þar sem Agla María nær góðu skoti sem fer í slánna. Boltinn berst aftur út í teiginn og þar þarf Hafrún bara að skalla hann í mitt markið þar sem að Aldís liggur ennþá eftir að hafa skutlað sér í skotið hennar Öglu Maríu39. mín
Blikar fá aukaspyrnu úti vinstra megin sem Agla María tekur inn í. Blikar ná skallanum en Aldís ver vel.
36. mín
Allskonar vandræði í hjarta varnarinnar hjá Blikum og Esther Rós kemst á milli þeirra. Hún tekur auka snertingu sem verður til þess að Toni og Hildur sjá við henni. Blikar stálheppnar en þarna á Esther að gera betur!
34. mín
Blikar sækja hérna hratt og setja boltann inn í en Aldís er vel vakandi og mætir út. Hún virðist verða fyrir höggi í leiðinni og liggur eftir.
31. mín
Fyrsta skotið þeirra á markið
Mackenzie Marie George
Mackenzie á hérna einleik, tekur á sprettinn upp hægri kantinn og ver ótrúlega illa með Vigdísi Lilju. Keyrir inn að markinu og þrumar honum af mjög þröngu færi. Telma ver hann en skotið er fast og það fer af henni og inn. Hún reyndi að ná aftur til hans en hann náði rétt yfir línuna áður en hún náði að moka honum út. 0-1 þvert gegn gangi leiksins.27. mín
Hættuleg sendin til baka frá miðjunni hjá FH sem Katrín er nálægt því að nýta sér en nær ekki alveg til boltans
27. mín
Á meðan Colleen fær aðhlynningu halda Blikar áfram að sækja og fá horn.
Spyrnan er svo beint í hendurnar á Aldísi.
Spyrnan er svo beint í hendurnar á Aldísi.
24. mín
Colleen er í baráttu við Öglu Maríu og liggur eftir. Þetta var ekki högg frá Öglu Maríu eða eitthvað slíkt hún bara allt í einu lagðist niður
21. mín
Hafrún Rakel keyrir upp vinstri kantinn eftir innkast og á skot beint á Aldísi sem missir boltann en er heppin og er fyrst aftur á boltann
19. mín
Taylor reynir að finna Birtu í hlaupinu aftur fyrir vörn FH en gleymir að gera ráð fyrir vindinum og sendingin er alltof föst
17. mín
Blikar taka hornið og spyrnan fer á fjær en þær ná ekki að nýta hana.
Blikar að sækja í sig veðrið hérna síðustu mínútur.
Blikar að sækja í sig veðrið hérna síðustu mínútur.
16. mín
Hafrún Rakel á hérna tilraun inn í teig en það er varnarmaður sem kemst fyrir og boltinn fer aftur fyrir.
16. mín
Agla María cutar inn frá vinstri og lætur reyna á skot fyrir utan teiginn en Aldís er í engum vandræðum og grípur það
13. mín
Birta er að drita fyrirgjöfum hérna frá hægri en nú er hún beint í fangið á Aldísi
11. mín
Aftur er boltinn að koma inn frá hægri og nú er það Katrín sem nær skallanum en hann er laus og beint á Aldísi
9. mín
Agla María er hér að fá fyrsta alvöru færi leiksins. Boltinn kemur hár inn á teiginn hjá FH frá hægri og fer yfir alla varnarlínuna. Þar er Agla María en hún hittir boltann ekki nægilega vel og nær ekki að stýra honum á markið
7. mín
Liðin eru aðeins að reyna að fikra sig áfram hérna í rokinu, lítið að frétta.
4. mín
Fyrirgjöf frá vinstri inn í teig Breiðabliks en hún er beint í hendurnar á Telmu
2. mín
Eins og líklega flestir hafa áttað sig á að þá er veðrir ekki frábært í dag, vonum að það hafi ekki allt of mikil áhrif á leikinn
1. mín
FH byrja með boltann
Fyrir leik
FH
FH eru eins og stendur í 9. sæti með 4 stig og geta með sigri jafnað stigafjölda Keflavíkur og Stjörnunnar sem sitja í 4. og 5. sæti. Þær unnu sinn fyrsta leik í sumar í síðustu umferð þegar þær unnu Keflavík 3-1 í Kaplakrika.

Fyrir leik
Breiðablik
Blikar sitja í 6. sæti með 6 stig fyrir leikinn í dag en þær geta með sigri farið upp í það þriðja. Þær fóru í fýluferð norður í síðustu umferð en þar töpuðu þær 2-0.

Fyrir leik
Byrjunarliðin
Blikar gera fjórar breytingar á liði sínu eftir tap gegn Þór/KA í síðustu umferð. Bergþóra, Andrea Rut, Elín Helena og Áslaug Munda koma út. Inn fyrir þær koma Vigdís Lilja, Karitas Lilja, Hildur Þóra og Birta
FH gera tvær breytingar frá síðustu umferð þar sem þær sóttu sína fyrstu þrjá punkta í sumar í Kaplakrika á móti Keflavík. Sara Montoro fær sér sæti á bekknum og Shaina Ashouri tekur út leikbann. Inn fyrir þær koma Esther Rós og Vigdís Edda.
FH gera tvær breytingar frá síðustu umferð þar sem þær sóttu sína fyrstu þrjá punkta í sumar í Kaplakrika á móti Keflavík. Sara Montoro fær sér sæti á bekknum og Shaina Ashouri tekur út leikbann. Inn fyrir þær koma Esther Rós og Vigdís Edda.
Fyrir leik
Dómarateymið
Soffía Ummarin Kristinsdóttir stjórnar umferðinni í dag. Henni til halds og trausts eru þau Tomasz Piotr Zietal og Magdalena Anna Reimus. Ólafur Ingi Guðmundsson er eftirlitsmaður. 

Fyrir leik
Hæhæ og hó
Verið alveg hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Breiðabliks og FH í deild þeirra bestu. Þetta er fyrsti heimaleikur Blika á tímabilinu en þar var verið að leggja splunkunýtt teppi og völlurinn hefur því ekki verið nothæfur síðustu vikurnar





Blikarnir voru töluvert betri í fyrri hálfleik en FH komu mjög stekrar inn í seinni hálfleikinn og mega vera svekktar með að hafa misst þetta niður í tap hér á loka mínútunum.