Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetElíza Gígja Ómarsdóttir
Besta-deild kvenna
AVIS völlurinn
mikil sól og mikið rok
Þróttur R.
Þróttur R.
3 - 0
Selfoss
Selfoss
Katherine Amanda Cousins 32'1 - 0Freyja Karín Þorvarðardóttir 45'2 - 0Katla Tryggvadóttir 90'3 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: Þróttarar eru að finna taktinn

Hvað réði úrslitum?

Þróttarar mættu til leiks í dag og Selfyssingar ekki. Þróttarar voru frábærar í fyrri hálfleik og eiginlega kláruðu þetta þar. Í seinni hálfleik sýndi hvorugt liðið einhvern frábæran fótbolta og það var ekki fyr en í lokinn, þegar Selfyssingar voru komnar hátt á völlinn í von um að sækja stig, sem Þróttarar náðu að setja þriðja markið.

Bestu leikmenn

1. Katla Tryggvadóttir

Katla sýndi í dag afhverju það er talað um hana sem einn efnilegasta leikmann landsins. Það var alltaf hætta þegar hún fékk boltann í kring um markið og hún fór illa með varnarmenn Selfoss trekk í trekk. Ekki skemmdi svo fyrir að hún átti gullfallega stoðsendingu og gott mark í lokinn.

2. Katherine Amanda Cousins

Ég horfi aldrei á leik hjá Þrótti án þess að þurfa að ná í kjálkann í gólfið yfir Katie, mér finnst hún bara svo geggjuð. Hún er alltaf að vinna fyrir liðsfélaga sína og svo býr hún yfir svo miklum gæðum. Ofan á það skoraði hún gott mark og var alltaf að horfa fram á við og valda usla.

Atvikið

Um leið og fyrsta markið kom hjá Þrótti var nokkuð ljóst að Selfoss væri ekki að fara að sækja neitt í þessum leik.

Hvað þýða úrslitin?

Selfyssingar sitja ennþá á botninum með 7. stig og eiga á hættu að dragast aftur úr ef að liðin fyrir ofan þær vinna sína leiki í þessari umferð. Þróttarar fara tímabundið upp í 3. sætið með sín 18 stig en þurfa að bíða og sjá hvernig leikirnir hjá FH og Þór/KA fara til að vita hvar þær standa eftir þessa umferð.

Vondur dagur

Lið Selfoss, frá aftasta manni til þess fremsta, átti mjög slakan fyrri hálfleik. Þær voru langt frá mönnunum sínum og voru að elta allan tímann. Seinni hálfleikurinn var ekki upp á marga fiska en hann var samt mikið skárri.

Dómarinn - 9

Þegar ég hugsa um það þá man ég lítið eftir Gunnari og hans teymi í leiknum og mér finnst það bara nokkuð jákvætt. Þetta var ekkert sérstaklega erfiður leikur að dæma og ekki mikið af vafaatriðum þannig að teymið komst vel frá þessu í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.