SKÝRSLAN: Allt jafnt Í Þróttheimum
Hvað réði úrslitum?
Þetta var nokkuð lokaður leikur og ekkert alltof mikið um góð marktækifæri. Valur fékk gott færi til að komast yfir í fyrri hálfleik en Íris varði í stöngina. Þróttur nýtti svo gott færi undir lok hálfleiksins eftir að Katla fór illa með gott færi. Valsmenn sóttu svo verðskuldað mark í seinni hálfleik eftir hræðileg mistök hjá Írisi.
Bestu leikmenn
1. Jelena Tinna Kujundzic
Skilaði prýðisvakt í dag í vörninni. Ekki henni að kenna að liðinu tókst ekki að halda hreinu.
2. Katla Tryggvadóttir
Leggur upp markið og alltaf nóg að gerast í kringum hana . Fékk færi til að skora í stöðunni 0-0.
Atvikið
Sæunn Björnsdóttir var nálægt því að vinna leikinn með langskoti undir lok leiksins. Það hefðu verið senur.
Hvað þýða úrslitin?
Valur auðvitað löngu orðnar meistarar. Þróttur spilar ekki í Meistaradeildinni að ári.
Vondur dagur
Íris í markinu hjá Þrótti verður að handsama boltann í jöfnunarmarkinu. Klaufalegt að missa hann svona.
Dómarinn - 4
Ekki vel dæmt. Flæðið skrýtið og fullt af litlum ákvörðunum sem voru undarlegar.




