Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
Í BEINNI
Meistaradeild kvenna - forkeppni
Breiðablik
LL 0
2
Sporting
FH
1
2
Stjarnan
0-1 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir '63
Selma Sól Sigurjónsdóttir '77 1-1
1-2 Andrea Mist Pálsdóttir '92
24.07.2024  -  18:00
Kaplakrikavöllur
Besta-deild kvenna
Aðstæður: 14°C, Alskýjað og gola
Dómari: Bergrós Lilja Unudóttir
Áhorfendur: 163
Maður leiksins: Úlfa Dís Úlfarsdóttir
Byrjunarlið:
1. Aldís Guðlaugsdóttir (m) ('57)
5. Arna Eiríksdóttir (f)
8. Valgerður Ósk Valsdóttir
9. Breukelen Lachelle Woodard
10. Ída Marín Hermannsdóttir
14. Snædís María Jörundsdóttir
17. Elísa Lana Sigurjónsdóttir
23. Andrea Marý Sigurjónsdóttir ('71)
31. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir ('63)
35. Thelma Karen Pálmadóttir ('63)
37. Jónína Linnet

Varamenn:
12. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m) ('57)
3. Erla Sól Vigfúsdóttir
4. Halla Helgadóttir ('71)
6. Hanna Kallmaier ('63)
11. Rannveig Bjarnadóttir
19. Sara Montoro
36. Selma Sól Sigurjónsdóttir ('63)

Liðsstjórn:
Guðni Eiríksson (Þ)
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Hjörtur Hinriksson
Dagur Óli Davíðsson
Guðmundur Jón Viggósson
Karen Tinna Demian
Brynjar Sigþórsson

Gul spjöld:
Ída Marín Hermannsdóttir ('32)
Jónína Linnet ('76)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Stjarnan sigrar á dramatískan hátt!! Stórskemmtilegum leik lokið!

Skýrsla og viðtöl væntanleg.
96. mín
uppgefinn uppbótartími liðinn. Stjarnan á horn. Stefnir allt í sigur gestanna
95. mín
FH fær horn.

Stjarnan hreinsar.
92. mín MARK!
Andrea Mist Pálsdóttir (Stjarnan)
VÁÁAA! Stjarnan að taka forystuna í uppbótartíma!! Hvílíkar lokamínútur sem við erum að fá! Endanna á milli og færi á báða bóga en það er eru gestirnir sem koma boltanum í netið! Hröð sókn hjá Stjörnunni og boltinn gefinn inn á teiginn. Andrea hrifsar hann til sín og klárar vel!
90. mín
Uppgefinn uppbótartími er 6 mínútur.
90. mín
HVÍLÍK VARSLA!! Þvílík spenna hér í Kaplakrika! Nú er það Stjarnan sem sækir. Úkfa gerir vel og kemur sér í gott skotfær. Skotið er gott en vel varið hjá Herdísi!
88. mín
DAAUÐAFÆRI! FH að sækja hratt! Eru fjórar á þrjár og gera vel. Að lokum berst boltinn á Ídu sem er ein á móti Erin. Hún í dauðafæri en skýtur í stöngina.
87. mín
Langskot Henríetta með skot vel fyrir utan teig. Hittir hann vel en varið af Herdísi.
84. mín
Skot yfir! FH líklegri aðilinn þessar mínuturnar. Boltinn út í teig og Ída mep fast skot vel yfir markið.

Enn sækja FH-ingar! Ída gefur boltann inn fyrir vörn gestanna og á Breukelen. Breukelen í skotfæri en skýtur framhjá
82. mín
Ída í þröngu skotfæri og á skot í hliðarnetið.
81. mín
Inn:Sóley Edda Ingadóttir (Stjarnan) Út:Eyrún Embla Hjartardóttir (Stjarnan)
78. mín Gult spjald: Hannah Sharts (Stjarnan)
77. mín MARK!
Selma Sól Sigurjónsdóttir (FH)
Stoðsending: Valgerður Ósk Valsdóttir
MAAAAARK!!! Selma Sól skorar. Allt orðið jafnt!

Hröð sókn hjá FH-ingunum. Selma á hörðum spretti á hægri kantinum. Fær boltann og klárar mjög vel fram hjá Erin í marki Stjörnunar. Fáum spennandi lokamínútur!
76. mín Gult spjald: Jónína Linnet (FH)
71. mín
Inn:Halla Helgadóttir (FH) Út:Andrea Marý Sigurjónsdóttir (FH)
69. mín
Rétt framhjá! Skyndisókn hjá Stjörnunni. Úlfa Dís á harðaspretti og fær boltann. Keyrir upp að markmannsteignum og á skot rétt framhjá markinu.
68. mín
Inn:Hrefna Jónsdóttir (Stjarnan) Út:Jessica Ayers (Stjarnan)
63. mín
Inn:Hanna Kallmaier (FH) Út:Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir (FH)
63. mín
Inn:Selma Sól Sigurjónsdóttir (FH) Út:Thelma Karen Pálmadóttir (FH)
63. mín MARK!
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (Stjarnan)
MAAAARK! Stjarnan tekur forystuna! Stjörnukonur eru komnar yfir!

Stjarnan að sækja. Boltinn kemur inn á teiginn og á fjær lúrir Úlfa. Hún gerir vel og klárar niðri í nær hornið! Gott spil og Stjarnan komið yfir!
61. mín
MAAAAR...Rangstæða Jessica Ayers kemur boltanum í netið í sínum fyrsta leik fyrir Stjörnuna. Flaggið fer hins vegar á loft og markið dæmt af.
59. mín
FH fær horn.

Gestirnir hreinsa.
57. mín
Inn:Herdís Halla Guðbjartsdóttir (FH) Út:Aldís Guðlaugsdóttir (FH)
Aldís fer út af vegna meiðsla.
56. mín
Leikurinn stöðvaður. Aldís Guðlaugsdóttir sest niður og þarfnast aðhlyinningar. Hún getur vonandi haldið leik áfram.
55. mín
Varið! FH-ingar að sækja hratt. Boltinn gefinn yfir á vinstri kantinn þar sem Breukelen er með mikið af plássi fyrir framan sig. Hún keyrir inn á teiginn og á skot sem er varið af Erin.
50. mín
Hulda Hrund liggur eftir, eftir samstuð og þarfnast aðhlynningar. Vonandi ekkert alvarlegt.

Leikurinn byrjaður aftur og virðist sem að Hulda geti haldið leik áfram.
46. mín
FH fær horn.

BJARGAÐ Á LÍNU!!
Boltinn dettur fyrir Ídu og á hún skot á markið. Boltinn framhjá Erin en á línunni er Hulda Hrund sem bjargar glæsilega!
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn! Gestirnir rúlla seinni í gang
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik Þá er flautað til hálfleiks hér í Hafnafirðinum. FH betri aðilinn framan af ef Stjarnan vann sig inn í leikinn. Hellingur af færum litið dagsins ljós en boltinn enn ekki farið inn. Fáum vonandi mörk í þetta í seinni háflleiknum!

Tökum korterspásu og komum svo með seinni hálfleikinn!
45. mín
Það er einni mínútu bætt við fyrri hálfleikinn.
42. mín
Brotið á Huldu Hrund rétt fyrir utan teig FH-inga. Aukaspyrna á stórhættulegum stað.

Andrea Mist tekur. Neglir honum í átt að markmannshorninu og boltinn sleikir stöngina. Góð tilraun!
41. mín
Færi! Breukelen gerir vel inn á teig gestanna. Kemur sér í skotfæri, skýtur en varið af Erin.
38. mín
Stjarnan fær horn.

Boltinn inn á teigin. Hannah Sharts með slatta af plássi og skýtur á markið. Vel varið hjá Aldísi sem blakar honum afturfyrir í horn.
32. mín Gult spjald: Ída Marín Hermannsdóttir (FH)
31. mín
Jessica Ayers gerir vel á hægri kantinum og vinnur aukaspyrnu á hættulegum stað.

Ekkert verður úr aukaspyrnunni
29. mín
FH að vinna aukaspyrnu á vænlegum stað. Kjörið tækifæri til að koma boltanum inn á teiginn.'

Kemur góður bolti á fjær. Þar er Breukelen en hún nær ekki stjónr á boltanum og missir hann frá sér.
27. mín Gult spjald: Eyrún Embla Hjartardóttir (Stjarnan)
Stöðvar skyndisókn með peysutogi.
20. mín
Stjarnan á aukaspyrnu og boltinn kemur inn á teiginn. Mikill barningur í teignum en enginn nær til boltanns. Markspyrna frá marki FH-inga.
18. mín
Skot á mark! Endanna á milli um þessar mundir! Ída fær boltann fyrir utan teig Stjörnunar og skýtur. Gott skot en varið af Erin.
17. mín
Varið! Vörn FH galopnast og kemur stungusending inn á Esther. Hún kemst ein á móti markmanni en skotið varið af Aldísi.
14. mín
Sláin! Eyrún lætur vaða vel fyrir utan teig í átt að marki FH-inga og skýtur í slána!
13. mín
Skyndisókn! Stjarnan vinnur boltann og geysist upp völlinn. Boltinn berst á Jessicu sem gefur á Úlfu sem á skot í varnarmann.
11. mín
Hvílík varsla!! Frábær varsla hjá Erin. FH sækir hratt og kemur sending inn á markteiginn. Elísa nær boltanum tekur snertinug og skýtur. Erin ver glæsilega af stuttu færi!
10. mín
Fyrsta horn leiksins er FH-inga.

Stjarnan bægir hættunni frá.
8. mín
Orkumikil byrjun hjá FH-ingum. Pressa gestina vel og halda vel í boltann.
5. mín
Fyrsta skot leiksins! Breukelen með boltann á vinstri kantinum, snýr inn á völlinn og lætur vaða í átt að marki. Fast skot en boltinn framhjá.
4. mín
Róleg byrjun í Hafnafirðinum. FH haldið í boltann á meðan gestirnir leita af skyndisóknarmöguleikum.
1. mín
Leikur hafinn
FH byrjar með boltann.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja! Nú ganga leikmenn inn á völlin. Styttist í upphafsflautið!
Fyrir leik
Byrjunarliðin! Guðni Eiríks, þjálfari FH, gerir þrjár breytingar á liði sínu frá síðustu umferð en Berglind Þrastardóttir, Halla Helgadóttir og Selma Sól koma út úr liðinu. Í þeirra stað byrja Thelma Karen , Jónína Linnet og Andrea Marý.

Jóhannes Karl gerir eina breytingu á liði sínu frá því í síðustu umferð en Hrefna Jónsdóttir kemur út fyrir Jessicu Ayers. Þetta er fyrsti leikur Jessicu sem leikmaður Stjörnunar!

Fyrir leik
Magnús Haukur spáir í spilin! Magnús Haukur Harðarson, þjálfari Fjölnis, er spámaður umferðarinnar! Hann spáir FH sigri í kvöld.

FH 2 - 0 Stjarnan
Það verður engin flugeldasýning í Mekka nema þá hjá Elísu Lönu sem skorar bæði mörk FH í 2-0 sigri en Stjörnukonur gætu ekki skorað til að bjarga lífi sínu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið! Bergrós Lilja Unudóttir er dómari hér í kvöld og eru það þeir Ronnarong Wongmahadthai og Sigurður Þór Sveinsson sem verða honum til aðstoðar. Varadómari er Reynir Ingi Finnsson og Eftirlitsmaður KSÍ er Halldór Breiðfjörð Jóhannsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Nýr leikmaður Stjörnunar! Stjarnan hefur fengið til sín Jessicu Ayers . Hún mun spila með félaginu út tímabilið.

Ayers er miðjumaður sem mun líklega fylla skarð Caitlin Cosme. Cosme gekk nýverið í raðir Nantes í Frakklandi eftir að hafa verið hjá Stjörnunni í hálft ár.

   23.07.2024 14:30
Jessica Ayers í Stjörnuna (Staðfest)
Fyrir leik
Stjarnan hafði betur fyrr í sumar Liðin tvö mættust í Garðabænum fyrr í sumar í svakalegum markaleik. Stjörnukonur byrjuðu stórkostlega og voru komnar 4-1 yfir eftir 16 mínútna leik. FH minnkaði munin í seinni hálfleik en það dugði ekki til og enduðu leikar 4-3

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
Stjarnan Stjarnan er fyrir leikinn í 7. sæti með 13 stig eftir 13 leiki. Leikurinn í kvöld er fjórði leikur Jóhannesar sem stjóri Stjörnunar. Hingað til hefur hann unnið einn, gert eitt jafntefli og tapað einum. Kalli hefur einbeitt sér mikið að varnarleik Stjörnunar enda hefur liðið einungis fengið á sig eitt mark síðan hann tók við sem, miðað við tímabil Stjörnunar hingað til, verður að teljast mjög gott. Stjarnan mætti Blikunum í síðustu umferð og tapaði þar 1-0.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
FH FH er í 5. sæti deildarinnar fyrir leikinn í dag. FH mætti Þrótti R. í Laugardalnum í síðustu umferð. Eftir sveiflukenndan leik voru það Þróttarar sem höfðu betur og sigruðu 2-1. FH-ingar eru fyrir leikinn jafnar Víkingum af stigum. FH myndi því með sigri fara upp í fjórða sætið. FH hefur tapað síðustu tveimur leikjum sínum og vilja pottþétt rétta úr kútnum með sigri hér í kvöld. Fáum vonandi hörkuleik!

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
Heil og sæl! Góðan dag og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu á viðureign FH og Stjörnunar í Bestu deild kvenna! Leikurinn fer fram á Kaplakrikavellinum og hefst kl. 18:00!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
83. Erin Katrina Mcleod (m)
Esther Rós Arnarsdóttir
5. Eyrún Embla Hjartardóttir ('81)
6. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
7. Henríetta Ágústsdóttir
10. Anna María Baldursdóttir
15. Hulda Hrund Arnarsdóttir
20. Jessica Ayers ('68)
21. Hannah Sharts
23. Gyða Kristín Gunnarsdóttir
26. Andrea Mist Pálsdóttir

Varamenn:
1. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (m)
2. Sóley Edda Ingadóttir ('81)
14. Karlotta Björk Andradóttir
17. Fanney Lísa Jóhannesdóttir
19. Hrefna Jónsdóttir ('68)
30. Hrafnhildur Salka Pálmadóttir
39. Katrín Erla Clausen

Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Sigursteinsson (Þ)
Rajko Stanisic
Hilmar Þór Hilmarsson
Benjamín Orri Hulduson
Hulda Björk Brynjarsdóttir
Vignir Snær Stefánsson

Gul spjöld:
Eyrún Embla Hjartardóttir ('27)
Hannah Sharts ('78)

Rauð spjöld: