Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild karla
VÍS völlurinn
Þór
Þór
0 - 3
ÍBV
ÍBV
0 - 129' Sverrir Páll Hjaltested0 - 249' Oliver Heiðarsson0 - 394' Sverrir Páll Hjaltested
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: Sverrir Páll og Oliver með sýningu fyrir norðan

Hvað réði úrslitum?

Þetta var ekki glæsilegur fóboltaleikur. Eyjamenn voru betri aðilinn í dag, Þórsarar náðu ekki að skapa sér mikið af færum og var mikill sofandaháttur í vörninni.

Bestu leikmenn

1. Sverrir Páll Hjaltested

Gríðarlega öflugur í fremstu línu hjá ÍBV í dag. Skorar tvö mörk og hefði alveg geta bætt við.

2. Oliver Heiðarsson

Mjög líflegur í dag, sífelt ógnandi. Kom með frábæran kross þegar hann lagði upp fyrsta markið á Sverri og skorar svo annað markið, vel staðsettur inn á teignum.

Atvikið

Það var ekkert mikið af atvikum. Undir lok leiksins ákveður Ragnar Óli Ragnarsson leikmaður Þórs að reyna hjálpa Sigurði Arnari Magnússyni á fætur þar sem hann lá meiddur. Fyrir það fékk hann sitt annað gula spjald í leiknum, ansi ódýrt að láta reka sig af velli með þessum hætti.

Hvað þýða úrslitin?

Eyjamenn komnir í 2. sæti deildarinnar með 25 stig en liðið er sex stigum á eftir toppliði Fjölnis og með jafnmörg stig og Njarðvík. Þór er hins vegar í 7. sæti með 17 stig og hefur nú tapað tveimur leikjum í röð, báðir á heimavelli.

Vondur dagur

Það er lægð yfir þorpinu þessa dagana. Mikið andleysi í liðinu í undanförnum leikjum. Eru að fá á sig auðveld mörk og það gerist lítið í sóknarleiknum.

Dómarinn - 7

Fín frammistaða í dag. Hann virtist taka meðvitaða ákvörðun að reyna leyfa leiknum að fljóta, eitt af því var að sleppa því að dæma á bakhrindingar en hann gerði það jafnt á bæði lið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.