SKÝRSLAN: Langþráð mark Viðars í fjörugu jafntefli
Hvað réði úrslitum?
Smá einbeitingarleysi í vörn KA á endanum tryggði KR að lokum stig. Leikur tveggja hálfleika. KR átti fyrri hálfleikinn en KA var mikið betri aðilinn í seinni hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Daníel Hafsteisson
Öflugur á miðjunni í dag. Skoraði gott mark.
2. Aron Sigurðarson
Hann er bara svo góður í fótbolta. Lætur allt líta svo vel út.
Atvikið
Markið hjá Viðari Erni. Hafði ekki skorað fyrir KA í sumar en loksins kom markið. Munaði litlu að það hafi tryggt sigurinn.
Hvað þýða úrslitin?
Stig á hvort lið. KA áfram í 8.sæti en löng bið KR eftir sigri heldur áfram.
Vondur dagur
Ef jöfnunarmarkið hefði ekki komið í lokin þá hefði ég sett þetta á frammistöðu KR í lokin. Þeir jöfnuðu hinsvegar í lokin og þess vegna fá KA menn "shoutout" hérna fyrir að halda ekki út.
Dómarinn - 8
Flott frammistaða hjá Pétri




