Fotbolti.net
Besta deildin
Sölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Besta-deild kvenna
N1-völlurinn Hlíðarenda
STURLAÐAR!
Valur
Valur
2 - 0
Fylkir
Fylkir
Lillý Rut Hlynsdóttir 82'1 - 0Helena Ósk Hálfdánardóttir 93'2 - 0
Dómari: Reynir Ingi Finnsson
Leik lokið!
Valur með risasigur!
Efið fæðing en hún hafðist hjá Valskonum.

Viðtöl og skýrsla koma inn síðar í kvöld.

Þangað til næst, takk fyrir mig!
Valur
93. mín
VARAMENNIRNIR KLÁRA ÞETTA!

Helena Ósk Hálfdánardóttir (stoðsending: Nadía Atladóttir)

Nadía gerir frábærlega inni á teig Fylkis og rennir boltanum fyrir markið. Þar er Helena mætt á vettvang og stýrir boltanum í netið.

Hún liggur eftir niðri inni í markinu eftir klafs í aðdragandanum en stendur fljótlega upp aftur. Varamennirnir eru endanlega að klára þetta fyrir Val!
90. mín
+4 mínútur í uppbótartíma!
Nægur tími til stefnu!
Valur
88. mín
InnHelena Ósk Hálfdánardóttir
ÚtFanndís Friðriksdóttir
Fylkir
86. mín
InnKlara Mist Karlsdóttir
ÚtKolfinna Baldursdóttir
Fylkir
86. mín
InnTinna Harðardóttir
ÚtViktoría Diljá Halldórsdóttir
86. mín
Cate tekur spyrnuna á ný en skallar Þóra Kristín frá.
85. mín
Enn eitt hornið
Cate tekur núna spyrnuna sem fer í andlitið á varnarmanni Fylkis og í annað horn!
85. mín
Annað horn
Fanndís tekur spyrnuna inn á teiginn sem Fylkiskonur hreinsa í annað horn hinum meginn.
84. mín
Valur að fá horn!
Valur
82. mín
ÞÆR NÁ AÐ SKORA!

Lillý Rut Hlynsdóttir (stoðsending: Fanndís Friðriksdóttir )

Já sókn Vals heldur áfram og þær skora!

Fanndís fær boltann aftur lengra frá vellinum og kemur með boltann aftur inn á teiginn. Fylkiskonurnar eru í veseni með að hreinsa boltann frá og Lillý nær skotinu sem Tinna ver í slána og inn.

Ekkert smá stórt mark og ekkert smá grátlegt fyrir Fylki.
82. mín
Fanndís tekur spyrnuna inn á teiginn sem Fylkiskonur hreinsa frá.

Sókn Vals heldur áfram.
81. mín
Valur að fá hornspyrnu!
79. mín
Valskonur fá færi!
Fanndís með fyrirgjöfina sem fer yfir allan pakkann og á fjærstöngina þar sem Ragnheiður er ein og óvölduð. Hún tekur þá skotið sem fer rétt yfir.

Hún pirrar sig á því að fá ekki hornspyrnu. Vildi held ég meina að boltinn hafi átt viðkomu í varnarmanni.
Valur
75. mín
InnNadía Atladóttir
ÚtElísa Viðarsdóttir
Allir fram!
Skýr skilaboð frá Pétri!
74. mín
Fylkiskonur bíta frá sér
Abigail með skot inni á teig Vals sem Fanney er í engum vandræðum með.

Gæti Fylkir bara stolið þessu? Þær eru að komast í sénsa og upphlaup.
Fylkir
72. mín
InnMarija Radojicic
ÚtHelga Guðrún Kristinsdóttir
70. mín
Úffffff
Natasha vinnur boltann á miðjum vellinum og keyrir upp. Síðan lætur hún vaða af löngu færi sem fer út á bílastæði.

Það kemur alltaf eitt svona skot.
Valur
64. mín
Gult spjald

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir

Fylkir
63. mín
Gult spjald

Helga Guðrún Kristinsdóttir

Spjaldaði fyrst Þóru Kristínu en hætti við og spjaldið réttan leikmann.
61. mín
DAUÐAFÆRI!
Hailey kemur með rosalega sendingu upp völlinn á Fanndís sem kemur boltanum fyrir markið. Þar er Jasmín mætt ein og óvölduð. Hún nær föstu skoti á markið sem Tinna ver meistaralega. Ekki nóg með það heldur grípur hún boltann.

Langbesta færi leiksins til þessa!
Valur
58. mín
InnÞórdís Hrönn Sigfúsdóttir
ÚtGuðrún Elísabet Björgvinsdóttir
Valur
58. mín
InnRagnheiður Þórunn Jónsdóttir
ÚtÍsabella Sara Tryggvadóttir
Valur
57. mín
Fyrsta spjald hennar í Bestu deildinni

Katherine Amanda Cousins

Valur
54. mín
Stoppar skyndisókn hjá Fylki

Lillý Rut Hlynsdóttir

Rétt spjald
50. mín
Sama sagan
Seinni hálfleikurinn byrjar eins og sá fyrri spilaðist. Valur með boltann en skapa sér ekki neitt.
46. mín
Seinni hálfleikurinn er hafinn!
Valskonur eiga upphafssparkið í seinni hálfleiknum.

Þetta verða áhugaverðar 45 mínútur!
45. mín
Markalaust í hálfleik
Bara frekar sanngjarnar hálfleikstölur.

Fylkiskonur varist mjög vel í fyrri hálfleik og Valskonur bara ekkert skapað sér af einhverju viti.

Tökum okkur korterspásu og mætum svo til baka af vörmu spori.
45. mín
Fanndís tekur spyrnuna inn á teiginn sem Fylkiskonur hreinsa frá.

Sókn Vals heldur áfram.
45. mín
Valur að fá hornspyrnu!
45. mín
+3 mínútur í uppbót
42. mín
Færi!
Fanndís kemst ein í gegn eftir sendingu frá Hailey. Berglind lætur boltann fara í gegnum klofið á sér sem var mjög vel gert en Tinna ver stórkostlega.

Hættulegasta færi leiksins!
Fylkir
37. mín
Gult spjald

Íris Una Þórðardóttir

33. mín
Fanndís kemur með spyrnuna inn á teiginn sem fer á Lillý og hún skallar á markið en Tinna Brá grípur boltann og er svo keyrð niður. Aukaspyrna réttilega dæmd.
33. mín
Valur að fá hornspyrnu!
32. mín
Fanndís tekur spurnuna inn á teiginn sem endar með skoti frá Ísabellu aftur fyrir í markspyrnu.
31. mín
Valur að fá hornspyrnu!
25. mín
Lítið að frétta
Leikurinn hefur bara þróast eins og menn bjuggust við fyrir leik. Valskonur mikið meira með boltann og eru að ógna meira. Fylkiskonur hafa hins vegar varist þessu mjög vel til þessa og hafa ekki fengið neitt almennilegt færi á sig.
20. mín
Fanndís tekur spyrnuna en það er dæmt brot á Natöshu inni á teignum og Fylkiskonur geta andað léttar.
19. mín
Annað horn hinum meginn
19. mín
Frábær varsla!
Fanndís tekur spyrnuna inn á teiginn sem Lllý skallar í varnarmann og frá.

Eftir það fær Fanndís annan séns og kemur með boltann fyrir á Jasmín sem stendur ofan í markinu en snýr baki í markið. Hún nær huggulegri hælspyrnu sem Tinna Brá ver.
18. mín
Valur að fá hornspyrnu!
16. mín
Jasmín Erla kemst í góða stöðu inn á teignum og hleður í skot sem fer beint á Tinnu í markinu.
11. mín
Fanndís tekur spyrnuna inn á teiginn sem Tinna Brá handsamar.
10. mín
Valskonur fá hornspyrnu!
4. mín
Abigail tekur spyrnuna stutt á Kolfinnu sem kemur honum aftur út Abigail og þær missa boltann.
4. mín
Fylkir að fá horn!
3. mín
Fylkiskonur verjast seinna horninu mjög vel og sækja nú hratt!
3. mín
Annað horn!
Fanndís tekur spyrnuna inn á teiginn sem Signý Lára skallar í annað horn.
3. mín
Valskonur fá hornspyrnu!
1. mín
Þetta er byrjað!
Það eru gestirnir sem byrja með boltann.

Valskonur leika í rauðum treyjum, hvítum stuttbuxum og rauðum sokkum.

Fylkiskonur leika í bláum treyjum, bláum stuttbuxum og bláum sokkum.
Fyrir leik
Undirritaður spáir í spilin
Undirritaður fékk það verðuga verkefni að spá í spilin fyrir þennan leik og hann spáir stórsigri fyrir Val en enn betri frammistöðu hjá hinni ólseigu Fanney Ingu.

Valur 8 - 0 Fylkir (18:00 á þriðjudag)
Eftir jafnteflið í seinasta leik held ég að Pétur Péturs sé virkilega ósáttur og hendir í einhverja veislu fyrir okkur. Fanney Inga ver þrjú víti í leiknum og leggur upp tvö. Ein stoðsendingin verður beint eftir að hafa gripið annað vítið. Fanndís leggur upp fjögur og skorar eitt. Held að Anna Rakel setji allavegana eitt og Ísabella verður einnig á skotskónum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Mættust fyrr á tímabilinu
Liðin mættust fyrr á tímabilinu í Árbænum. Undirritaður skrifaði um þann leik en sá leikur fór 4-1 fyrir Val eftir þær komust 3-0 yfir.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Reynir Ingi Finnsson stýrir flautukonsertinu í kvöld en honum til aðstoðar verða þeir Arnþór Helgi Gíslason og Magnús Garðarsson. Nour Natan Ninir er skiltadómari í dag og Jóhann Gunnarsson er eftirlitsmaður KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fylkiskonur í harðri fallbaráttu
Nýlliðarnir úr Árbænum standa í ströngu í neðri hluta deildarinnar en þær eru í fallsæti í dag aðeins þremur stigum frá Tindastól sem eru í öruggu sæti. Fylkir er með jafn mörg stig og Keflavík sem eru neðstir en Fylkir er með mikið betri markatölu.

Þær eru með tvo sigra í deildinni og einn sigur í seinustu 5 leikjum. Sá sigur kom gegn Tindastól en þær eiga Þór/KA í lokaleiknum fyrir tvískiptinguna. Það verður gífurlega áhugavert og skemmtilegt að horfa á þessa 6 stiga leiki í neðri helmingnum í úrslitakeppninni.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fyrir leik
Nýorðnar bikarmeistarar
Valskonur urðu á föstudaginn bikarmeistarar er þær unnu Breiðablik 2-1 á Laugardalsvelli í úrslitaleiknum. Valur er einnig á toppi Bestu deildarinnar með Breiðablik andandi ofan í hálsmolinu á þeim, aðeins einu stigi á eftir þeim.

Valur á eftir að spila tvo deildarleiki fyrir tvískiptinguna en í kvöld mæta þær Fylki en svo fara þær í fjörðinn fagra á sunnudaginn næsta og mæta FH. Eftir þann leik hefst úrslitakeppnin. Úrslitin á toppi Bestu deildarinnar gæti ráðist í lokaleiknum þegar Valur og Breiðablik mætast á annaðhvort Hlíðarenda eða Kópavogsvelli, það fer eftir því hvaða lið verður á toppnum þegar úrslitakeppnin hefst.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Hlíðarendi heilsar!
Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Vals og Fylkis. Um er að ræða seinasta leik Bestu deildarinnar áður en úrslitakeppnin byrjar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.