Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Valur
Valur
Besta-deild kvenna
N1-völlurinn Hlíðarenda
STURLAÐAR!
2 - 0
Fylkir
Fylkir
Lillý Rut Hlynsdóttir 82'1 - 0Helena Ósk Hálfdánardóttir 93'2 - 0
Dómari: Reynir Ingi Finnsson

SKÝRSLAN: Valur er alltaf Valur á Hlíðarenda

Hvað réði úrslitum?

Seinustu 10 mínúturnar í leiknum. Leikmenn Fylkis vörðust eins og ljón allan leikinn en voru óheppnar að fá á sig þessi mörk í lokin. Skiptingarnar hjá Val breyttu líka sóknarleiknum örlítið. Týpískur Valssigur og maður vissi alveg að markið myndi koma. Minnti mann ógurlega á Keflarvíkurleikinn.

Bestu leikmenn

1. Lillý Rut Hlynsdóttir

Fannst Lillý mjög góð í dag og hún brýtur líka ísinn í mjög lokuðum leik með geggjuðu marki. Einn skemmtilegasti hafsent deildarinnar. Veit ekki afhverju en mér finnst það en það er sóknarhugur í henni.

2. Tinna Brá Magnúsdóttir

Já ég er að velja markmann tapliðsins. Tinna var bara mjög góð í dag. Hélt Fylki inni í leiknum með stórkostlegum vörslum og hún bara átti teiginn. Veit að það er vinnan hennar eins og margir eru að hugsa núna en sorry, þetta var bara geggjaður leikur hjá Tinnu og hún á kredit skilið. Síðan var Valsliðið bara ekki gott í dag.

Atvikið

Markið hjá Lillý var stórkostlegt og hún braut ísinn. Mun líklega aldrei skora svona mark aftur eins og Gunnar sagði eftir leik.

Hvað þýða úrslitin?

Valskonur halda áfram að tróna á toppnum á meðan Fylkir er ennþá í fallsætinu.

Vondur dagur

Væri auðvelt að hjóla í sóknarleik Vals sem var enginn ef þetta hefði farið 0-0 en ég get það ekki núna. Kannski bara til að velja einhverjan ætla ég að velja Nour Natan fjórða dómara. Það var smá bras á honum á skiltinu. Hann lyfti óvart upp sömu tölunum þrisvar sinnum í röð og var í smá veseni með skiltið sem bjargaðist að lokum.

Dómarinn - 8

Fannst þetta bara mjög vel dæmdur leikur. Hvert spjald rétt að mínu viti og ekkert hægt að setja út á Reyni í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.