SKÝRSLAN: KR-ingar fóru létt með Valsmenn
Hvað réði úrslitum?
KR-ingar mun betri nánast allan leikinn. Spiluðu auðveldlega í gegnum lélega pressu Valsmanna. Valur sem hafði unnið alla leiki sína í Reykjavíkurmótinu til þessa urðu mér fyrir miklum vonbrigðum fyrr í kvöld. Aftur á móti lítur KR út eins og fullmótað og vel spilandi lið ef horft er einungis á þennan leik. ,,Við vorum lélegir í öllu og þeir voru góðir í öllu", sagði Gylfi Þór eftir leik og það lýsir leiknum býsna vel.
Bestu leikmenn
1. Aron Sigurðarson
Það er erfitt að setja fingurinn á það hver var bestur hjá KR, mikil rótering og flestallir mjög góðir. Ótrúlega gaman að horfa á Aron Sig en hann var frábær í dag.
2. Birgir Steinn Styrmisson
Ég var samt mjög hrifinn af Birgi eftir að hann kom inn á í varnarlínu KR. Bar boltann vel upp og stóð fyrir sínu í þau fáu skipti sem Valsmenn ógnuðu. Jóhannes Kristinn Bjarnason á reyndar skilið tilnefningu hér, sá var góður.
Atvikið
KR missti fimm leikmenn af velli vegna minniháttar meiðsla. Mér heyrðist Óskar Hrafn kalla inn á völlinn þegar Gyrðir Hrafn fór af velli ,,Það eru álög á þessari stöðu." Þá höfðu Júlíus Mar og Finnur Tómas farið af velli vegna meiðsla sem hafsentar.
Hvað þýða úrslitin?
KR eru Reykjavíkurmeistarar í 41. skiptið.
Vondur dagur
Úff þetta var bara heilt yfir slakur dagur hjá öllu Valsliðinu. Framherjarnir komust aldrei í takt við leikinn, þ.e.a.s. Jónatan Ingi Patrick Pedersen og Gísli Laxdal. Miðjan var slök, Gylfi hefur átt miklu betri daga, Tómas Bent fannst mér þó skástur af útileikmönnum Vals. Síðan var öll varnarlínan ekki á sínum besta degi. Stefán Þór Ágústsson markvörður Vals kom liðinu nokkrum sinnum til bjargar.
Dómarinn - 7
Bara fínasti leikur, engin stór mistök hjá tríóinu.



