Fotbolti.net
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Stjarnan
Stjarnan
Úrslitaleikur Þungavigtarbikarsins
Miðgarður
2 - 4
Breiðablik
Breiðablik
0 - 146' Óli Valur Ómarsson0 - 252' Höskuldur Gunnlaugsson (víti)Benedikt V. Warén 66'1 - 2Emil Atlason 77'2 - 22 - 387' Höskuldur Gunnlaugsson2 - 493' Ágúst Orri Þorsteinsson
Dómari: Róbert Þór
Leik lokið!
Breiðablik eru Þungavigtameistarar árið 2024!
Breiðablik
93. mín
Ágúst klárar þetta fyrir Blika!

Ágúst Orri Þorsteinsson

Breiðablik
90. mín
InnBreki Freyr Ágústsson
ÚtAron Bjarnason
Breiðablik
90. mín
InnGunnleifur Orri Gunnleifsson
ÚtÓli Valur Ómarsson
Breiðablik
87. mín
Hugguleg afgreiðsla!

Höskuldur Gunnlaugsson (stoðsending: Aron Bjarnason )

Blikar vinna boltann og eru fljótir að koma boltanum í spil. Aron fær boltann á miðjum vellinum og rennir honum í gegn á Höskuld. Árni er enn að skila sér í markið þegar Höskuldur ákveður að tjippa yfir hann og í netið fer boltinn. Fyrirliðinn kominn með tvö og líklega að tryggja Þungavigtabikarinn fyrir Breiðablik!
Breiðablik
83. mín
InnAlekss Kotlevs
ÚtDavíð Ingvarsson
Stjarnan
83. mín
InnÞorlákur Breki Þ. Baxter
ÚtEmil Atlason
Stjarnan
83. mín
InnAndri Adolphsson
ÚtBenedikt V. Warén
81. mín
Stjörnumenn hársbreidd frá því að taka forystuna!
Jón Hrafn gerir vel úti vinstrameginn og kemur boltanum fyrir á Hauk Brink sem er litlu tánni frá því að koma boltanum inn fyrir línuna.
Breiðablik
78. mín
InnDaniel Obbekjær
ÚtÁsgeir Helgi Orrason
Stjarnan
77. mín
Stjarnan jafnar þetta!

Emil Atlason (stoðsending: Guðmundur Baldvin Nökkvason)

Árni Snær kastar boltanum upp völlinn á Guðmund Baldvin. Hann potar boltanum í gegnum varnarlínu Blika. Emil Atla nær að vera fyrstur á boltann og klárar framhjá Antoni með glæsibrag. Það er allt orðið jafnt en fáum við einhverja meiri dramatík í þetta?
73. mín
Baldur Logi tekur spyrnuna inn á teiginn sem Ágúst Orri skallar frá. Hann kemur svo aftur með boltann inn á teiginn sem fer á Emil Atla. Emil skallar í slána áður en flaggið fór á loft.
72. mín
DAUÐAFÆRI!
Haukur Brink sleppur einn í gegn á móti Antoni sem ver glæsilega aftur fyrir. Anton búinn að eiga nokkrar stórvörslur og með hreinum ólíkindum að Stjarnan hefur ekki skorað fleiri mörk!
Breiðablik
71. mín
InnValgeir Valgeirsson
ÚtAndri Rafn Yeoman
68. mín
Sama sagan
Stjörnumenn hafa verið lengi að koma sér í gang báða hálfleikana en þeir virðast vera að hrökkva í gang núna. Næsta mark er stórt!
Stjarnan
66. mín
Stjarnan minnkar muninn!

Benedikt V. Warén (stoðsending: Baldur Logi Guðlaugsson)

Góð sókn hjá Stjörnunni sem endar í marki. Baldur Logi kemur boltanum inn fyrir á Benedikt sem er komin einn á einn gegn Antoni og klárar mjög vel. Þetta er orðinn leikur!
Breiðablik
65. mín
InnTumi Fannar Gunnarsson
ÚtViktor Örn Margeirsson
Breiðablik
65. mín
InnDagur Örn Fjeldsted
ÚtGabríel Snær Hallsson
Breiðablik
64. mín
InnÁgúst Orri Þorsteinsson
ÚtKristinn Steindórsson
Stjarnan
63. mín
Gult spjald

Guðmundur Baldvin Nökkvason

61. mín
Baldur Logi tekur spyrnuna á nærsvæðið sem Blikar standa af sér.
61. mín
Stjarnan að fá horn!
60. mín
Blikar standa hornið af sér enn eina ferðina.
59. mín
Stjarnan að fá hornspyrnu!
Stjarnan
58. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtDaníel Finns Matthíasson
Jökull að hrófla
Stjarnan
58. mín
InnHaukur Örn Brink
ÚtAlex Þór Hauksson
Jökull að hrófla
Stjarnan
58. mín
InnSigurður Gunnar Jónsson
ÚtSindri Þór Ingimarsson
Jökull að hrófla
Stjarnan
58. mín
InnGuðmundur Baldvin Nökkvason
ÚtÖrvar Eggertsson
Jökull að hrófla
57. mín
Emil Atla fær langan bolta upp völlin. Hann gerir vel einn á einn gegn Viktori Erni en skotið fer rétt framhjá.
53. mín
Eitt lið á vellinum
Óli Valur fær boltann inn á teignum og gerir vel áður en hann tekur skotið í hliðarnetið.
Breiðablik
52. mín
Öruggt hjá fyrirliðanum

Höskuldur Gunnlaugsson

Árni fer í sama horn og Höskuldur en spyrnan var góð og föst. Blikar búnir að tvöfalda forystu sína þegar seinni hálfleikurinn er nýbyrjaður!
Stjarnan
51. mín
Gult spjald

Guðmundur Kristjánsson

Sýndist Gummi fá spjald fyrir tuð.
51. mín
Blikar að fá víti!
Breiðablik
46. mín
Blikar skora strax!

Óli Valur Ómarsson (stoðsending: Andri Rafn Yeoman )

Þetta var ekki lengi gert! Andri Rafn fær boltann sýndist mér sem kemur boltanum upp á Óla Val, Óli Valur kemst einn í gegn á Árna og klárar framhjá honum. Ég taldi 12 sekúndur frá því miðjan var tekin og Óli skoraði gegn sínum gömlu félögum. Miðja -> Andri Rafn -> Óli Valur -> Mark
46. mín
Seinni hálfleikurinn hafinn
Stjarnan
45. mín
InnJón Hrafn Barkarson
ÚtDagur Orri Garðarsson
45. mín
Markalaust í hálfleik
Frekar rólegum fyrri hálfleik lokið í úrslitaleik Þungavigtabikarsins þrátt fyrir nokkur fín færi hjá báðum liðum. Blikar byrjuðu þetta betur en Stjörnumenn hafa unnið sig hægt og rólega inn í leikinn. Stjarnan líklega með hærra XG.
39. mín
Blikar standa af sér þessa hornspyrnu með herkjum.
39. mín
Stjarnan að fá hornspyrnu!
Stjarnan
36. mín
InnBaldur Logi Guðlaugsson
ÚtSamúel Kári Friðjónsson
Breiðablik
35. mín
Fyrsta spjald úrslitaleiksins

Gabríel Snær Hallsson

33. mín
DAUÐAFÆRI!
Dagur Orri vinnur boltann ofarlega inni í markteig Blika og kemur boltanum fyrir á Emil Atlason en Anton Ari ver frá honum. Anton með tvær risavörslur frá Emil fyrsta hálftíman!
30. mín
Spyrnan er tekin meðfram jörðinni á Höskuld sem tekur skotið rétt yfir markið.
27. mín
Samúel Kári liggur niðri
Leikurinn stopp og sjúkraþjálfari Stjörnunnar kallaður inn á þar sem Samúel Kári liggur niðri eftir sprettinn til baka.
27. mín
Blikar að fá hornspyrnu!
Aron Bjarna keyrir inn á teigin og köttar inn á völlinn. Þegar hann er við það að fara í skotið mætir að mér sýnist Samúel Kári til leiks og dúndrar boltanum aftur fyrir.
26. mín
Óli Valur gerir vel inni á teig Stjörnumanna og kemur boltanum fyrir en þar er enginn mættur. Óli var ekki sáttur með Davíð Ingvars sem var einu til tveimur skrefum frá boltanum.
22. mín
Blikar vilja rautt á Örvar
Það kemur langur bolti fram upp á Höskuld sem er við það að komast einn í gegn á Árna en þá mætir Örvar Logi og nær að stoppa hann. Blikar ekki sáttu til að byrja með en ég held að þetta hafi verið rétt metið hjá Róberti dómara að ekki dæma neitt. Blikar ívið betri fyrstu tuttugu.
19. mín
Danni Finns tekur hornið sem Anton Ari kýlir frá áður en hann handsamar boltann síðan eftir skot fyrir utan teiginn. Anton og Blikaliðið ekki glaðir með Róbert dómara, vildu fá brot á Anton í aðdragandanum sýndist mér.
18. mín
Stjarnan í dauðafæri!
Gummi Kristján vinnur boltann fyrir Stjörnuna og keyrir upp völlinn. Hann kemur boltanum fyrir sem fer á Emil Atla og Dag Orra. Emil var aðeins frekari og nær skotinu sem Anton ver í horn.
17. mín
Óli Valur í færi!
Ég sá ekki hvað gerðist en þegar ég leit upp var Óli Valur kominn einn á móti Árna. Skotið var frekar beint á Árna sem varði boltann út í innkast frekar auðveldlega.
15. mín
Óli Valur gekk í raðir Breiðabliks frá Stjörnunni eftir seinasta tímabil en hann er að spila í treyju númer 9 sem fremsti maður vallarins.
10. mín
Aron tekur spyrnuna stutt á Davíð aftur. Davíð kemur boltanum núna fyrir en sendingin var slök og Garðbæingar í engum vandræðum með þennan bolta. Sóknin fýkur svo út í sandinn og Stjörnumenn vinna boltann.
10. mín
Breiðablik að fá hornspyrnu!
7. mín
Aron Bjarna tekur spyrnuna stutt á Davíð Ingvars sem kemur honum aftur í fyrsta á Aron. Aron keyrir inn á teiginn og tekur skotið sem fer í varnarmann. Boltinn dettur þá fyrir Andra Rafn sem er fyrir utan teiginn en skotið hans fer langt yfir.
7. mín
Nú fær Breiðablik hornspyrnu!
Gummi Kri ekki sáttur og vildi fá aukaspyrnu í aðdragandanum.
6. mín
Benedikt Warén tekur spyrnuna en boltinn fer yfir allan pakkann og í markspyrnu.
6. mín
Stjarnan að fá hornspyrnu!
5. mín
Blikar byrja betur
Mér finnst meiri kraftur í Blikum þessar upphafsmínútur. Talsvert meiri ógn frá þeim svörtklæddu úr Kópavoginum.
2. mín
Blikar byrja á hættulegu færi!
Aron Bjarna fær góðan bolta á sig og kemst í góða stöðu. Hann tekur skotið sem fer rétt framhjá.
2. mín
Fer beint í vító
Átti spjall við Róbert Þór dómara leiksins fyrir leik. Ég spáði 2-2 jafntefli sem myndi þýða að við færum beint í vítaspyrnukeppni.
1. mín
Þetta er komið í gang!
Það eru Stjörnumenn sem hefja hér leik og sækja í átt að Akranesi. Góða skemmtun!
Fyrir leik
Toppaðstæður
Það eru frábærar aðstæður í Miðgarði þó úti blási vindar. Ég veit um einn körfuboltaleik í Hafnarfirðinum sem hefur verið frestað vegna þakleka. Sé engan leka hérna inni enn sem komið er en hins vegar er búið að vökva gervigrasið vel.
Fyrir leik
Róbert Þór með flautuna
Róbert Þór sér um að dæma þennan úrslitaleik en varadómari leiksins er lögregluvarðstjórinn Pétur Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin í hús!
Þá eru byrjunarliðin komin í hús hjá báðum liðum inn í kerfið okkar. Bæði lið stilla upp sterkum liðum og ætla sér greinilega þann stóra. Mitt gisk er að liðin stilla þessu svona upp: Stjarnan (4-3-3 en gæti verið 4-2-3-1) Árni Snær Dagu Orri - Sindri - Gummi - Örvar Logi Samúel Kári - Alex Þór - Danni Finns Örvar Eggerts - Emil Atla - Benedikt Breiðablik (4-3-3) Anton Höskuldur - Ásgeir Helgi - Viktor Örn - Davíð Ingvars Arnór Gauti - Andri Rafn - Kristinn Steindórs Óli Valur - Gabríel Snær - Aron Bjarna
Mynd: Stjarnan
Fyrir leik
Miðgarður er staðurinn!
Leikurinn átti að fara fram á Kópavogsvelli en vegna veðurs var leiknum fært inn í Miðgarð í vikunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Breiðablik hafði oftar betur í fyrra
Stjarnan og Breiðablik mættust þrisvar sinnum í fyrra, tvisvar í hefðbundni deildarkeppni og einu sinni í úrslitakeppninni. Breiðablik hafði betur tvisvar en einum leik lauk með jafntefli. Tveir leikir fóru 2-1 fyrir Blikum en jafnteflisleikurinn fór 2-2 á Samsung vellinum í Garðarbænum. Breiðablik 2-1 Stjarnan, 21. maí 2024 Stjarnan 2-2 Breiðablik, 11. ágúst 2024 Breiðablik 2-1 Stjarnan, 19. október 2024
Fyrir leik
Komnir/farnir
Það er vel við hæfi að kanna hvað þessi félög hafa gert á markaðnum til þessa og því ætlum við að fara yfir komnir/farnir listann góða. Breiðablik Komnir Óli Valur Ómarsson frá Sirius (var á láni hjá Stjörnunni) Valgeir Valgeirsson frá Örebro Ágúst Orri Þorsteinsson frá Genoa Dagur Örn Fjeldsted frá HK (var á láni) Ásgeir Helgi Orrason frá Keflavík (var á láni) Farnir Ísak Snær Þorvaldsson til Rosenborg (var á láni) Damir Muminovic til Asíu Patrik Johannesen til KÍ/Klaksvík Alexander Helgi Sigurðarson í KR Oliver Sigurjónsson í Aftureldingu Benjamin Stokke Arnór Sveinn Aðalsteinsson hættur og tekinn við sem aðstoðarþjálfari
Mynd: Breiðablik
Stjarnan Komnir Samúel Kári Friðjónsson frá Grikklandi Benedikt V. Warén frá Vestra Alex Þór Hauksson frá KR Andri Rúnar Bjarnason frá Vestra Hrafn Guðmundsson frá KR Aron Dagur Birnuson frá Grindavík Henrik Máni B. Hilmarsson frá ÍBV (var á láni) Guðmundur Rafn Ingason frá Fylki Farnir Róbert Frosti Þorkelsson til GAIS Daníel Laxdal hættur Hilmar Árni Halldórsson hættur Þórarinn Ingi Valdimarsson hættur Mathias Rosenörn Óli Valur Ómarsson til Breiðabliks (var á láni frá Sirius)
Mynd: GAIS
Fyrir leik
Málmur í boði!
Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Stjörnunnar og Breiðabliks í úrslitaleik Þungavigtabikarsins. Þungavigtabikarinn er ný og skemmtileg keppni á undirbúningstímabilinu sem er að fara fram þriðja árið í röð. FH vann fyrstu tvær keppnirnar en náðu ekki að komast í úrslitaleikinn í ár. Stjarnan og Breiðablik mætast og það verður áhugavert að sjá hver nær að taka þann stóra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.