Trent til Real - Hvað gerir Salah? - Williams til Arsenal - Wharton til City og Quenda tl United
Í BEINNI
Sambandsdeildin
Víkingur R.
73' 2
0
Panathinaikos
Víkingur R.
2
0
Panathinaikos
Davíð Örn Atlason '13 1-0
Matthías Vilhjálmsson '58 2-0
13.02.2025  -  17:45
Helsinki
Sambandsdeildin
Aðstæður: Rosalega kalt
Dómari: Rohit Saggi (Noregur)
Áhorfendur: 800
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
4. Oliver Ekroth ('45)
7. Erlingur Agnarsson ('71)
9. Helgi Guðjónsson
11. Daníel Hafsteinsson
17. Ari Sigurpálsson
20. Tarik Ibrahimagic
21. Aron Elís Þrándarson ('50)
24. Davíð Örn Atlason
25. Valdimar Þór Ingimundarson

Varamenn:
80. Pálmi Rafn Arinbjörnsson (m)
3. Davíð Helgi Aronsson
5. Jón Guðni Fjóluson ('45)
6. Gunnar Vatnhamar
8. Viktor Örlygur Andrason
10. Pablo Punyed
11. Stígur Diljan Þórðarson
12. Halldór Smári Sigurðsson
19. Danijel Dejan Djuric ('71)
27. Matthías Vilhjálmsson ('50)
30. Daði Berg Jónsson

Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen

Gul spjöld:
Davíð Örn Atlason ('41)

Rauð spjöld:
73. mín
Danijel Djuric sleppur einn í gegn en dómarinn flautar brot á Matta Vill í aðdragandanum.
Anton Freyr Jónsson
71. mín
Inn:Danijel Dejan Djuric (Víkingur R.) Út:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.)
Anton Freyr Jónsson
71. mín
Víkingar elska VAR Það hefur hentað Víkingi afskaplega vel að VAR sé í Sambandsdeildinni. Í gegnum vegferð þeirra í keppninni hefur liðið hagnast vel á VAR myndbandstækninni. Það sem dómurunum hefur yfirsést hefur VAR bjargað.

Var annars að fá sent myndband frá Ölveri þar sem stuðningsmenn Víkings heima á Íslandi hittust. Þar er stemningin vægast sagt góð!
70. mín Gult spjald: Filip Djuricic (Panathinaikos)
Anton Freyr Jónsson
66. mín
Inn:Tete (Panathinaikos) Út:Daniel Mancini (Panathinaikos)
Anton Freyr Jónsson
66. mín
Inn:Adam Cerin (Panathinaikos) Út:Manolis Siopis (Panathinaikos)
Anton Freyr Jónsson
66. mín
Inn:Karol Swiderski (Panathinaikos) Út:Alexander Jeremejeff (Panathinaikos)
Anton Freyr Jónsson
59. mín
Markið hjá Matta
58. mín MARK!
Matthías Vilhjálmsson (Víkingur R.)
MAAAAAAAAARK Erlingur fær boltann og á skot sem fer af varnarmanni og í stöngina. Matthías Vilhjálmsson er fyrstur að átta sig á hlutunum og setur boltann í autt netið.

2-0 EUROVIKES!
Anton Freyr Jónsson
56. mín
Matti Villa skorar en flaggið á loft! VAR skoðar
Anton Freyr Jónsson
55. mín
Lítið að gerast í þessu en leikurinn er að spilast fullkomnlega fyrir Víkinga.
Anton Freyr Jónsson
50. mín
Inn:Matthías Vilhjálmsson (Víkingur R.) Út:Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.)
Anton Freyr Jónsson
49. mín
Jón Guðni brotlegur og Panathinaikos fá aukapsyrnu á hættlegum stað.
Anton Freyr Jónsson
48. mín
Jermejeff fær boltann inn fyrir og fellur en ekkert dæmt.
Anton Freyr Jónsson
47. mín
Kraftur í gestunum í byrjun síðari hálfleiksins Víkingar að falla full aftarlega fyrir minn smekk.
Anton Freyr Jónsson
46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað.
Anton Freyr Jónsson
45. mín
Inn:Jón Guðni Fjóluson (Víkingur R.) Út:Oliver Ekroth (Víkingur R.)
Oliver Ekroth fer af velli og Jón Guðni kemur inn í hans stað. Óvænt! Hélt að Jón Guðni væri ekki leikfær.
Anton Freyr Jónsson
Vissir þú?
45. mín
Myndir frá ljósmyndara Víkings hér í Helsinki
Mynd: Víkingur - Eemil Kari

Mynd: Víkingur - Eemil Kari

45. mín
Skemmtilegt sjónarhorn á markið
45. mín
Grísku blaðamennirnir tala mjög hátt og ákveðið sín á milli í fjölmiðlaaðstöðunni í hálfleik. Ef Panathinaikos gerir ekki betur í seinni hálfleiknum munu þeir væntanlega fá að heyra það í fjölmiðlum. Menn eru að skipuleggja stríðsfyrirsagnir.
45. mín
Halfleikstölfræði af heimasíðu UEFA Með boltann: 38% - 62%
Marktilraunir: 3-8
Heppnaðar sendingar: 106-292
Rangstöður: 0-2
Gul spjöld: 1-0
45. mín
Hvað kostar flug til Aþenu? Sambandsdeildin er heldur betur að fara Víkingi vel. Öflugur varnarleikur í fyrri hálfleiknum og skipulagið að ganga vel upp. Ingvar Jónsson öruggur í markinu. Heldur betur sterk staða í hálfleik og örugglega margir stuðningsmenn Víkings farnir að skoða flug til Aþenu í næstu viku...

En það getur ýmislegt gerst síðustu 45 mínúturnar í þessum leik.
45. mín
Hálfleikur
Frábær staða fyrir Víkinga Rohit Saggi frá Noregi flautar til hálfleiks. Víkingar fara með 1-0 forskot inn í hálfleikinn.

Tökum okkur korter í pásu og komum svo með síðari hálfleikinn.
Anton Freyr Jónsson
45. mín
Erlingur fer niður VAR er að skoða mögulega vítaspyrnu!

Víkingar fá ekki vítaspyrnu. Leikurinn heldur áfram.
Anton Freyr Jónsson
45. mín
Daniel Mancini með aukaspyrnu inn á teig Víkinga og Sverrir Ingi með skalla yfir markið.
Anton Freyr Jónsson
45. mín
Fimm mínútum bætt við þennan fyrri hálfleik Meiðsli og VAR skoðun ástæðan fyrir honum
Anton Freyr Jónsson
43. mín
Gestirnir fá hornspyrnu Daniel Mancini tekur hana en Víkingar verjast.

Tíminn virðist vinna með Víkingum. Koma svo!
Anton Freyr Jónsson
41. mín Gult spjald: Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)
Þetta virtings rosalega saklaust hjá Davíði. Virðist aðeins rekast í tánna á Manolis Siopis.
Anton Freyr Jónsson
40. mín
Meiðslakrísa hjá Grikkjunum Rui Vitoria stjóri Panathinaikos talaði um meiðslakrísu liðsins á fréttamannafundi í gær. Hún verður bara stærri. Tveir farnir af velli tognaðir í fyrri hálfleik. Elton Fikaj sem er kominn við hlið Sverris í vörn liðsins er 19 ára og algjörlega óreyndur á þessu leveli.
37. mín
Inn:Elton Fikaj (Panathinaikos) Út:Erik Palmer-Brown (Panathinaikos)
Anton Freyr Jónsson
34. mín
Leikmenn Panathinaikos hrynja hver eftir annan Ekki vanir þessum kulda og núna liggur Erik Palmer-Brown eftir og þarf aðhlyningu.
Anton Freyr Jónsson
30. mín
Alexander Jeremejeff fær boltann inn á teig Víkinga og nær skalla úr mjög góðu færi en skallinn laus og beint á Ingvar.
Anton Freyr Jónsson
27. mín
Karol Swiderski fær boltann inn fyrir og nær skoti sem Ingvar ver en flaggið á loft.
Anton Freyr Jónsson
24. mín
Ari Sigurpáls nálægt því að sleppa í gegn en Erik Palmer nær að stoppa Ara.
Anton Freyr Jónsson
22. mín
Inn:Karol Swiderski (Panathinaikos) Út:Tasos Bakasetas (Panathinaikos)
Anton Freyr Jónsson
21. mín
DANÍEL HAFSTEINSSON!! Fær boltann rétt fyrir utan teig og smell hittir boltann en boltinn rétt framhjá.
Anton Freyr Jónsson
20. mín
Bakasetas gengur af velli og virðist ekki geta haldið leik áfram.

Þetta er vel fyrir Víkinga.
Anton Freyr Jónsson
18. mín
Gestirnir ná góðu skoti á markið sem Ingvar ver vel!
Anton Freyr Jónsson
17. mín
Fyrsta Evrópumark Davíðs Sá valdi flottan tíma til að skora það...
13. mín MARK!
Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)
Stoðsending: Erlingur Agnarsson
VÍKINGUR KEMST YFIIIR!!!!! Hættuleg aukaspyrna frá Daníel sem skapaði mikla ólgu í teignum. Skot frá Tarik fór í höfuðið á Aroni Þrándar, markvörður Pana reyndi að kýla boltnn en það gekk ekki, hann datt á Davíð sem skoraði með hnitmiðuðu skoti í autt markið!

Erlingur Agnarsson skallaði boltann til Davíðs. Það var skoðað í VAR hvort Erlingur hefði verið rangstæður en svo er ekki.
12. mín
Víkingur fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika frá vinstri. Danni Hafsteins að fara að taka spyrnuna.
11. mín
Ingvar Jónsson greip fyrirgjöf frá Mancini áðan. Annars er bara þokkalegasta jafnvægi í þessum leik.
9. mín
Langur bolti fram sem Ari Sigurpáls kemst í en þeir grísku ná að stöðva hann.
6. mín
Ekroth með langa sendingi fram á Ara sem var svo nálægt því að koma knettinum á Valdimar sem hefði þá verið í góðu færi, en varnarmaður Panathinaikos náði að komast fyrir.
4. mín
Það eru um 800 áhorfendur á leiknum, fámennt en ótrúlega góðmennt. Stuðningsmenn Víkings syngja og tralla. Þessi gríðarlegi kuldi hefur væntanlega dregið úr mætingu hlutlausra heimamanna hér í Helsinki.
3. mín
Grikkirnir að hóta í byrjun Panathinaikos í hættulegri sókn. Mancini fyrst með skot sem Ingvar varði, svo kom annað skot úr teignum sem Ingvar varði einnig.
1. mín
Leikur hafinn
Panathinaikos byrjaði með boltann og sækir í átt að Ólympíuleikvangnum Aron Elís Þrándarson með fyrirliðabandið hjá Víkingi.
Fyrir leik
Íslensk lög í spilaranum Þetta er auðvitað heimaleikur Víkings og það eru íslensk lög sem fá að óma í kerfinu. Prettyboitjokko og fleiri góðir listamenn. Það er ekki eðlilega kalt hér í Helsinki! Þannig viljum við hafa það!
Fyrir leik
WELCOME TO HEL
Mynd: Getty Images

Fyrir leik
Stemning á gamla írska Það var góðmennt á upphitun stuðningsmanna Víkings í dag á gamla írska barnum í miðborg Helsinki.

   13.02.2025 14:38
Björn Bjartmarz bjartsýnn: Besta ráðning félagsins

   13.02.2025 14:55
Formaðurinn spenntur: Risastór stund í íslenskum íþróttum
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin í hús
Mynd: Víkingur - Eemil Kari

Jón Guðni Fjóluson skráður á bekkinn, er greinilega ekki heill til að byrja. Sveinn Gísli Þorkelsson fær stórt tækifæri í vörn Víkings í kvöld og þá er Helgi Guðjónsson meðal byrjunarliðsmanna.

Sverrir Ingi Ingason er í byrjunarliði Panathinaikos en Hörður Björgvin Magnússon er á meiðslalista liðsins.
Fyrir leik
Stærsti leikur íslensks félagsliðs
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

„Þetta verkefni leggst mjög vel í mig, risaverkefni og mjög spennandi. Þetta er einn af, ef ekki bara stærsti leikurinn í sögunni hjá íslensku félagsliði, og er það klárlega hjá Víkingi. Við erum bara virkilega spenntir og þakklátir fyrir að vera í þessari stöðu. Þetta er hrikalega stórt," segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, um komandi leiki gegn Panathinaikos í Sambandsdeildinni.

Sölvi tók við sem aðalþjálfari Víkings í síðasta mánuði en hann var aðstoðarmaður Arnars Gunnlaugssonar sem ráðinn hefur verið landsliðsþjálfari Íslands.

   07.02.2025 23:59
Stærsti leikur íslensks félagsliðs - „Náttúrulega galið ef þú spáir í því"

Fyrir leik
Víkingur án sex leikmanna Fjórir leikmenn verða frá vegna meiðsla og tveir vegna leikbanns. Róbert Orri Þorkelsson tognaði í leik Víkings gegn HK í Lengjubikarnum, Gunnar Vatnhamar glímir við hnémeiðsli, Pablo Punyed er að koma til baka eftir krossbandsslit síðasta sumar og framherjinn Atli Þór Jónasson er meiddur. Þeir Karl Friðleifur Gunnarsson og Nikolaj Hansen eru svo í leikbanni vegna uppsafnaðra gulra spjalda í keppninni.

   07.02.2025 14:17
Víkingur án sex leikmanna gegn Panathinaikos


Sverrir Örn Einarsson, fréttamaður Fótbolta.net, setti saman líklegt byrjunarlið Víkings og má sjá það hér:

   10.02.2025 14:42
Líklegt byrjunarlið Víkings gegn Panathinaikos
Fyrir leik
Norðmaður með flautuna
Mynd: Getty Images

Norðmaður sér um að dæma leikinn, hinn 33 ára gamli Rohit Saggi. Hann hefur dæmt leiki í efstu deild Noregs síðan 2017 og var gerður að FIFA dómara ári síðar. Hann hefur verið að dæma í Meistaradeildinni.

   11.02.2025 10:38
Fyrrum bandýdómari með flautuna hjá Víkingi

Víkingur - Panathinaikos
Dómari: Rohit Saggi, Noregur
Aðstoðardómari 1: Morten Jensen, Noregur
Aðstoðardómari 2: Anders Olav Dale, Noregur
Fjórði dómari: Sigurd Kringstad, Noregur
VAR dómari: Tom Harald Hagen, Noregur
Aðstoðar VAR: Kristoffer Hagenes, Noregur
Fyrir leik
Sverrir Ingi: Verður ekki auðvelt einvígi „Það er leiðinlegt fyrir mig að ekki sé spilað á Íslandi. Það hefði verið mikil upplifun að koma heim og spila á Íslandi í Evrópukeppni," sagði landsliðsvarnarmaðurinn Sverrir Ingi Ingason í viðtali við Morgunblaðið í vikunni. Sverrir spilar með Panathinaikos og er að far að spila gegn íslensku liði í fyrsta sinn á atvinnumannaferlinum.

„Þótt við séum sigurstranglegri verður þetta ekki auðvelt einvígi. Þeir hafa engu að tapa og munu gera allt til að sækja úrslit."

   11.02.2025 11:06
Sverrir Ingi: Leiðinlegt að ekki sé spilað á Íslandi
Fyrir leik
Halló Helsinki!
Mynd: Getty Images

Velkomin með okkur á Bolt leikvanginn í Helsinki þar sem fyrri leikur Víkings og Panathinaikos í Sambandsdeildinni fer fram. Seinni leikurinn verður eftir viku í Aþenu en sigurliðið í einvíginu kemst í 16-liða úrslitin!

Um er ræða skráðan heimaleik Víkings en vegna lélegra vallarmála á Íslandi er fyrri leikurinn hér í Helsinki. Það er kuldi, gervigras og áhorfendur verða innan við þúsund talsins.
Byrjunarlið:
1. Yuri Lodygin (m)
5. Sverrir Ingi Ingason
11. Tasos Bakasetas ('22)
14. Erik Palmer-Brown ('37)
17. Daniel Mancini ('66)
20. Nemanja Maksimovic
24. Manolis Siopis ('66)
25. Filip Mladenovic
27. Giannis Kotsiras
29. Alexander Jeremejeff ('66)
31. Filip Djuricic

Varamenn:
3. Philipp Max
7. Fitis Ioannidis
10. Tete ('66)
16. Adam Cerin ('66)
19. Karol Swiderski ('22) ('66)
26. Elton Fikaj ('37)
30. Adriano Bregou
80. Athanasios Ntampizas
81. Klidman Lilo

Liðsstjórn:
Rui Vitoria (Þ)

Gul spjöld:
Filip Djuricic ('70)

Rauð spjöld: