Fotbolti.net
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Valur
Valur
Undanúrslit Lengjubikarsins
N1-völlurinn Hlíðarenda
5 gráður og létt gola
6 - 5
ÍR
ÍR
0 - 135' Guðjón Máni Magnússon (víti)Orri Sigurður Ómarsson 38'1 - 1Patrick Pedersen 40'2 - 12 - 287' Víðir Freyr ÍvarssonMarkus Lund Nakkim (víti) 95'3 - 2Birkir Heimisson (víti) 95'4 - 2Hólmar Örn Eyjólfsson (víti) 95'5 - 2Lúkas Logi Heimisson (víti) 95'6 - 26 - 395' Marc Mcausland (víti)6 - 495' Hrafn Hallgrímsson (víti)6 - 595' Emil Nói Sigurhjartarson (víti)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Leik lokið!
Ótrúlegum leik lokið!
Valur mætir Fylki í úrslitum Lengjubikarsins í ár. Stefán Þór óvænt hetja Vals í kvöld!
95. mín
Valsmenn í úrslit!
Stefán ver frábærlega frá Bergvini.
Valur
95. mín
Tæpt var það

Lúkas Logi Heimisson

Vilhelm í boltanum!
ÍR
95. mín
Emil öruggur

Emil Nói Sigurhjartarson

Valur
95. mín
Fyrirliðinn skorar!

Hólmar Örn Eyjólfsson

ÍR
95. mín
Hrafn öruggur!

Hrafn Hallgrímsson

Allt jafnt eftir þrjár umferðir!
Valur
95. mín
Birkir Heimis skorar!

Birkir Heimisson

95. mín
Stefán ver frá Alla Kostic!
Frábær varsla.
Valur
95. mín
Nakkim skorar!

Markus Lund Nakkim

Frábært víti hjá Markus Nakkim.
ÍR
95. mín
Skorar af miklu öryggi!

Marc Mcausland

95. mín
Jónatan Ingi klúðrar fyrsta vítinu!
Slakt víti, Vilhelm ver örugglega.
95. mín
Valur byrjar vítaspyrnukeppnina. Skotið verður á markið nær Öskjuhlíðinni.
95. mín
Leik lokið - Beint í vítaspyrnukeppni
Helgi Mikael flautar til leiksloka, allt jafnt og við förum beint í vítaspyrnukeppni!
91. mín
Jónatan Ingi með fast skot sem Vilhelm ver í marki gestanna.
90. mín
Fimm mínútum bætt við
ÍR-ingar líklegri að finna sigurmarkið.
89. mín
Víðir hótar aftur!
Víðir með góða tilraun fyrir utan teig sem Stefán ver vel.
ÍR
87. mín
VARAMAÐURINN JAFNAR!

Víðir Freyr Ívarsson

Þrumuskot fyrir utan teig út við stöng, frábært mark. Víðir búinn að vera inn á í rúmar tvær mínútur! Víðir er sonur Ívars Ingimarssonar.
ÍR
85. mín
InnEmil Nói Sigurhjartarson
ÚtKristján Atli Marteinsson
ÍR
85. mín
InnVíðir Freyr Ívarsson
ÚtHákon Dagur Matthíasson
Valur
83. mín
InnGísli Laxdal Unnarsson
ÚtPatrick Pedersen
ÍR
82. mín
InnHrafn Hallgrímsson
ÚtSigurður Karl Gunnarsson
ÍR
82. mín
InnÓliver Andri Einarsson
ÚtÓðinn Bjarkason
82. mín
ÍR-ingar leita að jöfnunarmarki en Valsararnir tíu eru þéttir fyrir.
ÍR
77. mín
Gult spjald

Renato Punyed Dubon

Valur
74. mín
InnLúkas Logi Heimisson
ÚtTryggvi Hrafn Haraldsson
Valur
74. mín
InnKristinn Freyr Sigurðsson
ÚtAlbin Skoglund
ÍR
67. mín
InnAlexander Kostic
ÚtBreki Hólm Baldursson
66. mín
Tryggvi Hrafn, Pedersen og Skoglund spila vel á milli sín í teig gestanna. Boltinn kemur fyrir markið en ÍR koma hættunni frá á síðustu stundu.
58. mín
Ágúst Unnar með hörkuskot sem hafnar rétt yfir marki Valsara.
51. mín
Pedersen í færi
Patrick Pedersen með skot rétt framhjá úr þröngri stöðu.
49. mín
ÍR fær hornspyrnu, Stefán Þór markvörður Vals handsamar boltann örugglega.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Gestirnir hefja leik.
ÍR
46. mín
InnBergvin Fannar Helgason
ÚtArnór Sölvi Harðarson
ÍR gerir eina breytingu í hálfleik.
45. mín
Oog anda...
Helgi flautar til hálfleiks. Þvílíkar lokamínútur fyrri hálfleiks sem við fengum hérna. Helgi Mikael búinn að vera í þrefaldri yfirvinnu síðustu 15 mínúturnar eða svo. Valur mun betri framan af leik, svo er Ögmundur rekinn af velli og allt fer í háaloft!
45. mín
STEFÁN VER!
Guðjón fer í sama horn og áðan en Stefán les hann!
45. mín
ÍR FÆR VÍTASPYRNU!
Markus Nakkim slær bara í boltann eftir horn gestanna og Helgi Mikael dæmir réttilega vítaspyrnu.
45. mín
Gestirnir fá hornspyrnu.
Valur
40. mín
Hvaða þvæla er þetta?

Patrick Pedersen (stoðsending: Birkir Heimisson)

Birkir með fasta fyrirgjöf úr óbeinu aukaspyrnunni sem Patrick stangar í netið. Einhverjar sturluðustu tíu mínútur sem ég hef séð.
39. mín
Óbein aukaspyrna í teig ÍR!
Vilhelm Þráinn, skallar boltann sjálfur og tekur svo boltann upp eftir að hafa fengið sendingu til baka. Helgi dæmir réttilega óbeina aukaspyrnu, við hliðarlínu markteigs ÍR.
Valur
38. mín
Þeir svara strax!

Orri Sigurður Ómarsson

Darraðadans í teignum eftir horn og boltinn dettur fyrir Orra sem setur boltann í netið.
ÍR
35. mín
Skjótt skipast veður í lofti!

Guðjón Máni Magnússon

Guðjón Máni sendir Stefán Þór í rangt horn og skorar af miklu öryggi. Valsmenn búnir að vera miklu betri en eru nú manni færri og marki undir!
Valur
34. mín
InnStefán Þór Ágústsson
ÚtOrri Hrafn Kjartansson
Valur
32. mín
Ömmi olli! - Rautt og víti

Ögmundur Kristinsson

Ögmundur grípur boltann og olnbogar svo Arnór Sölva sem ætlar í pressuna. Algjörlega fáránlegt hjá Ömma.
31. mín
Hákon Dagur liggur niðri og virðist vera sárþjáður, slæmar fréttir fyrir ÍR.
26. mín
Enn og aftur fær Valur horn en ÍR-ingar koma boltanum frá.
25. mín
Aðeins að lifna yfir leiknum eftir tíðindalitlar upphafsmínútur.
24. mín
Skemmtileg útfærsla
Birkir Heimis tekur fasta hornspyrnu með jörðinni, Hólmar Örn tekur viðstöðulaust skot sem fer af varnarmanni og rétt framhjá marki ÍR.
23. mín
Skoglund með frábæra móttöku og kominn í afbragðsfæri en Vilhelm sér við honum í marki gestanna.
22. mín
Birkir Heimis fer í hressilega tæklingu á Renato Punyed en sleppur án spjalds.
21. mín
Orri Hrafn með skot úr teignum sem Vilhelm ver í hornspyrnu.
17. mín
Valur fær fyrsta horn leiksins og úr kemur önnur hornspyrna sem ÍR skalla frá.
16. mín
Valsmenn æða upp í skyndisókn, Pedersen með slaka sendingu fyrir markið og gestirnir koma hættunni frá.
13. mín
Heimamenn halda betur í boltann en lítið verið um færi hingað til.
4. mín
Birkir Heimisson með þrumuskot af löngu færi en boltinn fer beint á Vilhelm, markvörð gestanna sem ver örugglega.
1. mín
Þetta er farið af stað!
Valsmenn byrja með boltann og sækja í átt að kapellunni.
Fyrir leik
Aron Jó og Bjarni Mark utan hóps
Byrjunarliðin eru komin inn og má sjá þau í heild sinni hér til hliðar. Helstu tíðindin eru þau að Aron Jóhannson og Bjarni Mark eru báðir utan hóps hjá Valsmönnum. Aftur á móti snýr Ögmundur Kristinsson aftur til baka eftir að hafa glímt við meiðsli.
Fyrir leik
Sigurvegararnir mæta Fylki í úrslitum
Fylkir hafði betur gegn KR í hádramatískum leik í fyrri undanúrslitaleiknum. Fyrrum KR-ingurinn Eyþór Wöhler skoraði sigurmark Fylkis í uppbótartíma, lokatölur leiksins, 2-1. Árni Guðnason, þjálfari Fylkis, stýrði ÍR á síðustu leiktíð. Árni styður fyrrum lærisveina sína í kvöld. „Ætli ég þurfi ekki að segja að ég haldi alltaf með ÍR nema á móti okkur í sumar. Það verður bara gaman að spila við Jóa og ÍR-ingana. Ég vona að þeir vinni," sagði Árni í viðtali við Fótbolti.net, eftir leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Fyrir leik
ÍR-ingar hafa heillað á undirbúningstímabilinu
Jóhann Birnir Guðmundsson tók við sem aðalþjálfari ÍR í vetur eftir að Árni Freyr Guðnason var ráðinn til Fylkis. Árni og Jóhann Birnir höfðu stýrt ÍR-liðinu saman en Jóhann Birnir er nú einn aðalþjálfari með Davíð Örvar Ólafsson sér til aðstoðar. Miklar breytingar hafa verið á ÍR-liðinu frá síðasta tímabili, Jóhann telur liðið þó vera á góðum stað þrátt fyrir að hafa þurft að fylla í stór skörð. ,,Við misstum nokkra stólpa í liðinu og erum að vinna að því að koma öllum saman á réttu blaðsíðuna. Það eru nýir menn í nokkrum stöðum en kjarninn er til staðar.“ ÍR hefur unnið frækna sigra gegn KR og Víkingi í Reykjavíkurmótinu, ásamt því að leggja FH og Aftureldingu af velli í Lengjubikarnum. „Við unnum Víking og KR þegar þau voru kannski ekki alveg með sín sterkustu lið. FH leikurinn var mjög flottur. Það er alltaf skemmtilegra að ná góðum úrslitum og vinna, ég tala nú ekki um gegn liðum sem eru deild fyrir ofan okkur."
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Valsmenn í þriggja miðvarða kerfi
Valsarar hafa breytt til og spilað í þriggja miðvarða kerfi í vetur. Srdjan Tufegdzic, Túfa, þjálfari Vals, segir kerfið henta leikmannahópnum vel í samtali við Fótbolta.net „Við fórum í vinnu í undirbúningnum fyrir tímabilið og hugmyndin á bakvið það er byggð á okkar greiningu eftir síðasta tímabil. Við teljum að þriggja miðvarða kerfi henti okkur vel og persónulega vil ég bara koma sem flestum leikmönnum í þeirra bestu stöður til að ná því besta úr þeim." „Ég er ekki hrifinn af því að færa marga leikmenn til í liðinu, en veit að það þarf stundum að gera það ef það er mikið um meiðsli. Það er ekki tilvalið að vera með leikmenn sem eru t.d. frábærir í tíunni en eru allt í einu orðnir djúpir miðjumenn eða hafsent. Ég er ekki mikið fyrir það. Heilt yfir finnst mér við vera að taka lítil skref fram á við í öllu sem við erum að æfa," bætir Túfa við.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Töluverðar breytingar hjá báðum liðum
Valur Komnir Marius Lindemo frá Lilleström Markus Nakkim frá Bandaríkjunum Birkir Heimisson frá Þór Birkir Jakob Jónsson frá Atalanta Tómas Bent Magnússon frá ÍBV Kristján Oddur Kristjánsson frá Gróttu Farnir Gylfi Þór Sigurðsson til Víkings Birkir Már Sævarsson hættur Frederik Schram til Danmerkur Elfar Freyr Helgason Samningslausir Ólafur Karl Finsen (1992)
Mynd: Mummi Lú
ÍR Komnir Arnór Sölvi Harðarson frá ÍBV Ívan Óli Santos frá Gróttu Óðinn Bjarkason frá KR (á láni) Jónþór Atli Ingólfsson frá Augnabliki Baldur Páll Sævarsson frá Víkingi R. Óliver Andri Einarsson frá Keflavík Sigurður Orri Ingimarsson frá Keflavík Sigurður Karl Gunnarsson frá Árbæ Mikael Trausti Viðarsson frá Fram Breki Hólm Baldursson frá KA (á láni) Víðir Freyr Ívarsson frá Fram (var á láni hjá Hetti/Hugin) Ísak Daði Ívarsson frá Víkingi (var á láni hjá Gróttu) Farnir Róbert Elís Hlynsson í KR Bragi Karl Bjarkason í FH Óliver Elís Hlynsson í Fram Arnór Gauti Úlfarsson í Grindavík Sæþór Ívan Viðarsson í Hött/Hugin Marteinn Theodórsson í Kára Gils Gíslason í FH (var á láni) Samningslausir Emil Nói Sigurhjartarson (2004) Alexander Kostic (1992) Stefán Þór Pálsson (1995) Jordian Farahani (1990) Kristján Daði Runólfsson (2005)
Mynd: FH
Fyrir leik
Óvæntir Breiðhyltingar í undanúrslitum
Valur vann A-riðil með þrettán stig, tveimur stigum á undan ÍA. Patrick Pedersen hefur verið sjóðheitur í Lengjubikarnum, Daninn geðþekki hefur skorað sjö mörk í fimm leikjum. ÍR var á toppi C-riðils með 7 stig og betri markatölu en Þór. Breiðhyltingar hafa komið á óvart á undirbúningstímabilinu eftir töluverðar breytingar frá síðasta tímabili. Baldvin Már Borgarsson spáir ÍR í 8. sæti Lengjudeildarinnar í ótímabærri spá útvarpsþáttarins Fótbolti.net. Liðið vann þó tvö Bestu-deildar lið í Lengjubikarnum á leið sinni í undanúrslitaleikinn, bæði FH og Aftureldingu.
Mynd: Mummi Lú
Fyrir leik
Undanúrslit!
Heilir og sælir lesendur góðir! Verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Hlíðarenda. Klukkan 19:15 hefst viðureign Vals og ÍR í undanúrslitum Lengjubikarsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.