SKÝRSLAN: Þórsarar komnir áfram í bikarnum
Hvað réði úrslitum?
Það var greinilegur styrkleikamunur á liðunum enda heil deild á milli þeirra.
Þórsarar voru mun ákveðnari og létu boltann vinna á meðan Magni átti fá svör við leik Þórsaranna.
Bestu leikmenn
1. Ibrahima Balde
Skoraði tvö góð mörk og lagði upp eitt. Var mjög duglegur á miðjunni og vann fram og til baka.
2. Einar Freyr Halldórsson
Stöðvaði ófáar sóknir Magna og skilaði boltanum vel frá sér auk þess sem hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Þór
Atvikið
Meiðslin í upphafi leiks voru slæm og vonandi nær hann sér fljótt.
Hvað þýða úrslitin?
Þór er komð í 32 liða úrslit en Magni er úr leik
Vondur dagur
Magnaliðið átti við ofurefli að etja og sá eiginlega aldrei til sólar.
Dómarinn - 8
Stóð sig vel, var ákveðinn og negldi allar ákvarðanir.


