SKÝRSLAN: Öruggur sigur Blika í opnunarleiknum
Hvað réði úrslitum?
Breiðablik var með yfirhöndina frá fyrstu mínútu. Þeir hefðu í raun átt að skora töluvert meira í fyrri hálfleik en fóru með tveggja marka forystu í hálfleik. Þeir áttu nokkur önnur færi í seinni hálfleik en það róaðist aðeins á þeim og Afturelding átti nokkur hættuleg augnablik seint í leiknum, en áttu aldrei möguleika á að fá eitthvað út úr leiknum.
Bestu leikmenn
1. Óli Valur Ómarsson (Breiðablik)
Óli var frábær í dag og var sífellt ógnandi. Hann kom ekki að mörkunum en hann hefði líkast til átt að skora og leggja upp, með bara ögn meiri heppni.
2. Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
Viktor átt frábæra sendingu á Tobias Thomsen í markinu hans. Svo var miðja Breiðabliks á köflum einfaldlega að kaffæra Aftureldingu og þar var Viktor mjög öflugur.
Atvikið
Vítaspyrnan sem Breiðablik fær snemma í leiknum er umdeilt atvik þar sem það virðist vera lítil snerting sem Valgeir fær á sig. Margir sem hafa sagt að þeim finnst þetta vera dýfa, ég er hinsvegar ekki sammála því og þrátt fyrir litla snertingu held ég að Ívar Orri dómari leiksins hafi tekið rétta ákvörðun þarna.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik vinnur fyrsta leik Bestu deildarinnar og taka því fyrstu þrjú stigin. Afturelding þreytti sína frumraun í deildinni og eru reynslunni ríkari fyrir það.
Vondur dagur
Aftureldingar liðið sem heild í fyrri háflleik. Þeir áttu bara erfitt með að fara yfir miðlínu og sendingar voru að fara út um allt. Margir sem áttu mjög slök augnablik þannig þeir fá bara allir að deila þessu.
Dómarinn - 6
Eins og ég skrifaði í "Atvikið" þá var fyrsta vítaspyrnan réttur dómur af mínu mati þrátt fyrir litla snertingu. Ívar Orri og hans teymi fá hinsvegar ekki hærri einkunn en þetta þar sem þeir hefðu átt að dæma víti þegar það var tosað í Óla Val inn í teig. Manni fannst þetta mjög augljóst á vellinum og skrýtið að hann skildi sleppa þessu.




