Fotbolti.net
Einar Már Þórólfsson
Mjólkurbikar karla
Sauðárkróksvöllur
Tindastóll
Tindastóll
7 - 8
Völsungur
Völsungur
Arnar Ólafsson 37'1 - 01 - 179' Davíð Örn Aðalsteinsson1 - 2120' Arnar Pálmi Kristjánsson (víti)Manuel Ferriol Martínez (víti) 120'2 - 2120' Elvar Baldvinsson (misnotað víti)Svetislav Milosevic (misnotað víti) 120'2 - 3120' Tómas Bjarni Baldursson (víti)Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson (víti) 120'3 - 33 - 4120' Elmar Örn Guðmundsson (víti)Konráð Freyr Sigurðsson (víti) 120'4 - 4120' Tryggvi Grani Jóhannsson (misnotað víti)Sverrir Hrafn Friðriksson (misnotað víti) 120'4 - 5120' Rafnar Máni Gunnarsson (víti)Svend Emil Busk Friðriksson (víti) 120'5 - 55 - 6120' Aron Bjarki Kristjánsson (víti)Ivan Tsvetomirov Tsonev (víti) 120'6 - 66 - 7120' Inigo Albizuri Arruti (víti)Sigurður Snær Ingason (víti) 120'7 - 77 - 8120' Steinþór Freyr Þorsteinsson (víti)Eysteinn Bessi Sigmarsson (misnotað víti) 120'
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson

SKÝRSLAN: Völsungssigur í vítaspyrnukeppni

Hvað réði úrslitum?

Úthaldið. Leikmenn Tindastóls voru orðnir mjög þreyttir þegar líða tók á leikinn sem átti sinn þátt í að leikurinn snerist á band Völsungs. Stólarnir hefðu mögulega haldið þetta út í venjulegum leiktíma ef að það hefði verið meira bensín á tankinum.

Bestu leikmenn

1. Nikola Stoisavljevic

Markmaður Tindastóls átti mjög góðan leik og hélt sínum mönnum inní leiknum undir lok venjulegs leiktíma og í framlengingunni.

2. Steinþór Freyr Þorsteinsson

Gjörbreytti leik Völsungs þegar hann kom inná og var allt í öllu í sóknarleik gestanna.

Atvikið

Vítaspyrna Steinþórs Freys. Markmaður Tindastóls varði vítaspyrnu Steinþórs í bráðabana vítaspyrnukeppninnar og útlitið dökkt fyrir Völsung. Hann var hins vegar kominn af línunni og því fékk Steinþór annað tækifæri sem hann nýtti.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Völsungur fara áfram í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins og mæta þar Þrótti Reykjavík á PCC-vellinum á Húsavík næstkomandi föstudag.
Tindastóll eru úr leik og geta farið að einbeita sér að Íslandsmótinu sem hefst hjá þeim þann 3. maí.

Vondur dagur

Þó að þeir hafi staðið uppi sem sigurvegarar verð ég að segja Völsungsliðið. Tindastóll eru tveimur deildum neðar en það var ekki sjáanlegt fyrstu 70 mínútur leiksins. Völlararnir verða að spila betur þegar leikar hefjast í Lengjudeildinni.

Dómarinn - 9

Var mjög góður og hafði fína stjórn á leiknum. Gat ekki betur séð en að svo til allar ákvarðanir hafi verið réttar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.