Fotbolti.net
Besta deildin
Brynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Besta-deild kvenna
AVIS völlurinn
Skýjað, rok og 7 gráður. Alls ekki slæmt.
Þróttur R.
Þróttur R.
3 - 1
Fram
Fram
Freyja Karín Þorvarðardóttir 26'1 - 0Freyja Karín Þorvarðardóttir 45'2 - 02 - 174' Murielle TiernanÞórdís Elva Ágústsdóttir 93'3 - 1
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Leik lokið!
Þróttarar taka 3 stigin í fyrstu umferð Bestu Deild. Nýliðarnir ná sér ekki alveg inn í þennan leik gegn Þrótt sem voru í sókn nánast allan leikinn.

Viðtöl og skýrsla koma inn seinna í kvöld. Takk fyrir mig!
Þróttur R.
93. mín
TRYGGT!

Þórdís Elva Ágústsdóttir (stoðsending: Unnur Dóra Bergsdóttir)

Jæja, þarna tryggir Þórdís stigin þrjú fyrir Þrótt. Unnur er komin ein gegn markvörð sem Elaina ver mjög vel. Dominiqe fer svo ofan á Elaina og Þordís áttar sig fljótt og setur boltann inn í tómt net.
90. mín
4 mínútur til uppbótar!
89. mín
HVERNIG?
Unnur komin ein gegn markvörð og skýtur beint á fæturnar hennar Elaina, gullið tækifæri til þess að tryggja sigurin þarna!
Þróttur R.
86. mín
InnBrynja Rán Knudsen
ÚtFreyja Karín Þorvarðardóttir
Fram
85. mín
InnThelma Lind Steinarsdóttir
ÚtSylvía Birgisdóttir
Fram
85. mín
InnEydís Arna Hallgrímsdóttir
ÚtFreyja Dís Hreinsdóttir
82. mín
Freyja með skot sem endar yfir markið eftir hornspyrnu.
Þróttur R.
76. mín
InnSigríður Theód. Guðmundsdóttir
ÚtCaroline Murray
Þróttur R.
76. mín
InnSóley María Steinarsdóttir
ÚtSæunn Björnsdóttir
Fram
74. mín
HEYRÐU?!?

Murielle Tiernan (stoðsending: Una Rós Unnarsdóttir)

Fram ætla ekki að gefast upp. Fram hefur gert lítið hér í seinni hálfleik, en Murielle er hér með frábært skot frá erfiðu svæði og nær að skora og setja líf inn í þennan leik!
72. mín
Una kemst að marki Þróttara, en Mollee kemur á móti Unu og nær að handsama boltann áður en hún hefur tíma til að skjóta.
70. mín
Kate með skot sem fer rétt yfir slánna. Afar nálægt því að fara þrem mörkum yfir þarna!
69. mín
Þróttur fær hornspyrnu.
65. mín
Unnur með skalla frá hornspyrnu á markið sem Elaina ver frábærlega.
64. mín
Þróttur eiga hornspyrnu.
Fram
63. mín
InnÓlína Ágústa Valdimarsdóttir
ÚtKatrín Erla Clausen
57. mín
Unnur Dóra vinnur horn fyrir Þrótt
54. mín
Freyja nálægt því að setja inn þrennu. Caroline með fyrirgjöf inn í teig sem fer á Freyju sem skallar boltann rétt framhjá markinu.
50. mín
Kate með skot sem fer rétt yfir markið. Þróttarar halda bara áfram að sækja hér.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Murielle sparkar seinni í gang1
45. mín
Hálfleikur
Þróttara klára fyrri hálfleikinn tvem mörkum yfir. Freyja með bæði mörk leiksins. Vonandi fáum við aðeins meiri spennu í leiknum í seinni hálfleik.
Þróttur R.
45. mín
FREYJA!!!

Freyja Karín Þorvarðardóttir

Freyja með annað mark! Freyja er komin ein gegn marki og skýtur beint á Elaina í markinu, boltinn fer þó beint aftur á Freyju og í þetta skipti kemur hún boltanum í netið!
41. mín
Murielle með skot sem endar framhjá markinu.
Fram
39. mín
InnJúlía Margrét Ingadóttir
ÚtOlga Ingibjörg Einarsdóttir
Fer meidd útaf
38. mín
Caroline enn og aftur með fyrirgjöf inn í teig Frammara, Freyja reynir að gera eitthvað með boltann en missir hann frá sér og Elaina kemur og tekur boltann upp.
35. mín
Olga liggur hér eftir inn í teig Frammara, hún þarf aðhlynningu að halda.
33. mín
Þórdís Elva með skot frá löngu færi, alls ekki vel nýtt sókn þarna hjá Þrótt.
Þróttur R.
26. mín
MAAAARK!

Freyja Karín Þorvarðardóttir (stoðsending: Caroline Murray)

Þarna kom þetta loksins hjá Þrótti. Caroline hefur komist töluvert sinnum gegn á hægri kanti og gerði það aftur núna. Caroline er svo með góða fyrirgjöf á Freyju sem kemur boltanum inn í mark!

Þetta hlaut að fara koma hjá þeim.
23. mín
Caroline með skot sem endar framhjá.
Fram
22. mín
Gult spjald

Mackenzie Elyze Smith

19. mín
Þróttur hafa verið í sókn nánast alla leikinn. Þórdís reynir að þræða boltanum inn í teiginn, en Elaina nær að handsama boltann.
13. mín
Caroline á lélega sendingu sem Una Rós kemst fyrir. Una tekur svo skotið sem endar yfir markinu, hefði átt að nýta færið sitt betur þarna.
11. mín
Kate með skalla frá stuttu færi sem fer beint á Elaina í markinu, þarna hefði Kate átt að skora!
8. mín
Þróttur með flotta sókn sem endar á lágu skoti hjá Kate sem endar framhjá markinu.
3. mín
Murielle með skot frá löngu færi sem endar í slánna. Þetta leit út eins og slagt skot, en hún var nálægt því að skora fyrir Fram
1. mín
Caroline með fyrirgjöf inn í teig sem Elaina grípur.
1. mín
Leikur hafinn
Cousins sparkar leikinn í gang!
Fyrir leik
Leikmenn labba hér á völlin, spennan magnast!
Fyrir leik
Byrjunarliðið leiksins eru komin inn!
Ólafur gerir aðeins eina breytingu eftir tap gegn Val í Lengjubikarnum.
Kate Cousins kemur inn íb yrjunarliðið fyrir Sóley Maríu sem fer á bekkin.

Óskar gerir fjórar breytingar eftir tap gegn Fylki í Lengjubikarnum.
Elaina Carmen kemur í markið fyrir Þóru Rún. Katrín Erla, Murielle Tiernan og Sylvía Birgis koma allar inn í byrjunarliðið fyrir Júlíu Margrét, Eydís Örnu og Ólínu Sif, sem fara allar á bekkin.
Fyrir leik
Spá Fótbolta.net á Bestu Deild kvenna
Við hjá Fótbolta.net fórum í það að spá hvernig deildin fer í lok tímabilsins og þetta var útkoman.

Spáin:
1. Breiðablik, 100 stig
2. Valur, 85 stig
3. Víkingur R., 72 stig
4. Þróttur R., 71 stig
5. Þór/KA, 67 stig
6. Stjarnan, 48 stig
7. FH, 47 stig
8. Fram, 25 stig
9. FHL, 19 stig
10. Tindastóll, 16 stig
Fyrir leik
Ásta Eir spáir í 1. umferð Bestu kvenna
Íslandsmeistarinn Ásta Eir Árnadóttir spáir í leikina í fyrstu umferðinni. Ásta lagði skóna á hilluna eftir að hafa unnið titilinn með Breiðabliki í fyrra.

Þróttur R. 4 - 1 Fram
Fram kemst óvænt yfir snemma leiks þar sem Alda Ólafs skorar með skalla og allt tryllist. En það endist ekki lengi og Þróttarar klára leikinn örugglega. Freyja og Unnur Dóra skora sitthvort markið og Katie setur tvö.

Hér er hægt að lesa spá Ástu í heild sinni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Ási með flautuna
Dómari leiksins í dag er Ásmundur Þór Sveinsson. Með honum til aðstoðar eru Daníel Ingi Þórisson og Guðni Freyr Ingvason með flöggin. Varadómari leiksins er Bergvin Fannar Gunnarsson. Eftirlitsmaður frá KSÍ er Sigursteinn Árni Brynjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Hægt að sjá þær sem hafa skipt um lið hér!
Fyrir leik
Fram
Fram lenti í 2. sæti í Lengjudeild kvenna í fyrra og hefur verið að gera frábæra hluti seinustu árin. Þetta er fyrsta tímabil þeirra í Bestu Deild kvenna.

Komnar:
Lily Farkas frá Danmörku
Kam Pickett frá Bandaríkjunum
Katrín Erla Clausen frá Stjörnunni
Elaina LaMacchia frá Aftureldingu
Hildur María Jónasdóttir frá FH
Halla Helgadóttir frá FH
Ólína Ágústa Valdimarsdóttir frá Stjörnunni
Olga Ingibjörg Einarsdóttir frá Breiðabliki (var á láni hjá HK)
Una Rós Unnarsdóttir frá Grindavík
Freyja Dís Hreinsdóttir frá Fjölni

Farnar:
Eva Stefánsdóttir í Val (var á láni)
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir í Breiðablik (var á láni)
Þórey Björk Eyþórsdóttir í KR
Emma Björt Arnarsdóttir til Fylkis á láni (var á láni frá FH)
Thelma Lind Steinarsdóttir (var á láni)
Birna Kristín Eiríksdóttir í Fylki (var á láni)
Katrín Ásta Eyþórsdóttir í Fylki á láni
Lilianna Marie Berg
Alia Skinner

Fyrir leik
Þróttur
Þróttur endaði í 5. sæti í Bestu Deild kvenna á seinasta tímabili. Fótbolti.net hefur spáð Þrótt í 4. sæti fyrir tímabilið í ár, sem myndi þýða að Þróttur færi upp um eitt sæti milli tímabila ef spáin sé rétt.

Komnar:
Katie Cousins frá Val
Þórdís Elva Ágústsdóttir frá Växjö
Mist Funadóttir frá Fylki
Unnur Dóra Bergsdóttir frá Selfossi
Klara Mist Karlsdóttir frá Fylki
Birna Karen Kjartansdóttir frá Breiðabliki
Hildur Laila Hákonardóttir frá KR (var á láni)

Farnar:
Leah Pais til Kanada
Elín Metta Jensen í Val

Samningslausar:
Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir (2001)
Þórey Hanna Sigurðardóttir (2008)

Fyrir leik
Besta Deild kvenna fer að hefjast!
Góða kvöldið gott fólk og verið hjartanlega velkomin á beina textalýsingu frá leik Þrótt gegn Fram, sem fer fram á AVIS vellinum. Frysta umferð í Bestu deild kvenna fer að hefjast og er mikil spenna framundan!

Leikurinn hefst kl. 18:00.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.