Fotbolti.net
Besta deildin
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Þróttur R.
Þróttur R.
Besta-deild kvenna
AVIS völlurinn
Skýjað, rok og 7 gráður. Alls ekki slæmt.
3 - 1
Fram
Fram
Freyja Karín Þorvarðardóttir 26'1 - 0Freyja Karín Þorvarðardóttir 45'2 - 02 - 174' Murielle TiernanÞórdís Elva Ágústsdóttir 93'3 - 1
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson

SKÝRSLAN: Þróttarar með þrjú stig gegn nýliðum Fram

Hvað réði úrslitum?

Þróttur voru miklu sterkari í þessum leik, sóttu endalaust á Fram sem náði ekki að svara fyrir. Fram átti fá færi og nýtti ekki færin sem þær fengu nógu vel.

Bestu leikmenn

1. Freyja Karín Þorvarðardóttir

Byrjar deildinna með tvem flottum mörkum.

2. Caroline Murray

Átti frábær hlaup upp hægri kantin og gerði það erfitt fyrir vörn Fram. Ein stoðsending og frábær frammistaða.

Atvikið

Það var lítið sem gerðist í leiknum í dag. Það sem var mest spennandi var þegar Fram skoraði mark til að minnka muninn og gefa smá líf í leikinn, en þær náðu aldrei að koma öðru inn.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur byrjar tímabilið sterkt með 3 stig á meðan nýliðarnir ná ekki að koma neinum á óvart í fyrsta leik.

Vondur dagur

Þetta var ekki frábær dagur hjá bæði vörn og framherjum Fram. Caroline fór sértaklega ílla með vinstri varnamann Fram og Fram náðu ekki að skapa mikið af alvöru færum gegn Þrótt. Mikið af þeim litlum færum sem Fram fengu enduðu í lélega nýttu skoti.

Dómarinn - 7

Lítið hægt að segja um Ása og hans teymi. Vel dæmdur leikur þar sem lítið átti sér stað.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.