SKÝRSLAN: Frábær skemmtun í Laugardalnum
Hvað réði úrslitum?
Þróttur var betri aðilinn í dag. Voru aggresívari og virtust vera að landa sigrinum. Breiðablik er þó með gæðamikið lið og leikmenn eins og Samantha Smith geta skorað úr ómögulegum stöðum. Samantha gerði gæfumuninn í þessum leik og tryggði Blikum stig í Kópavoginn.
Bestu leikmenn
1. Samantha Rose Smith
Langbesti leikmaður deildarinnar. Það virðist alltaf vera hætta á ferð þegar hún fær boltann. Þetta virtist ekki alveg vera að ganga hjá henni en hún tryggði svo Blikum stig með stórkostlegu einstaklingsframtaki undir lok leiks.
2. Kate Cousins
Katie átti flottan leik í dag og var hættulegust í liði Þróttara. Skoraði mark og átti hornspyrnuna sem leiddi til annars marks Þróttara. Happafengur fyrir Þróttara að fá hana aftur í Laugardalinn.
Atvikið
Kristín Dís Árnadóttir fékk boltann í hendina eftir fyrirgjöf Caroline Murray undir lok leiks. Þar átti Hreinn Magnússon, dómari leiksins, að flauta vítaspyrnu.
Hvað þýða úrslitin?
Bæði lið eru með fjögur stig eftir þetta jafntefli. Bæði lið mögulega frekar svekkt að hafa ekki sótt þrjú.
Vondur dagur
Þetta var frábær leikur og að mínu mati frábær auglýsing fyrir þessa skemmtilegu deild. Ég tel engan leikmann eiga skilið að vera í þessum dálki eftir leik sem þennan.
Dómarinn - 5
Ofboðslega erfitt að sjá hvort að boltinn fari í hendina á Samönthu Smith í vítinu sem Hreinn dæmir í fyrri hálfleik, Nik vildi meina að svo sé ekki. Ég leyfi Hreini dómara að njóta vafans. Hann átti hinsvegar að dæma víti undir lok leiks þegar boltinn fór í hendina á Kristíni Dís.




