Fotbolti.net
Besta deildin
Hilmar Jökull Stefánsson
Hilmar Jökull Stefánsson
Besta-deild kvenna
Víkingsvöllur
Klassískt íslenskt rok
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 1
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 121' Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir (sjm)
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Leik lokið!
Þróttarasigur staðreynd í Reykjavíkurslagnum
Mollee neglir boltanum fram og Aðalsteinn flautar til leiksloka í kjölfarið.
94. mín
Mollee grípur aukaspyrnuna
93. mín
Víkingar fá aukaspyrnu
María Eva brýtur á Birtu Birgis úti á kanti og þá er það síðasta tækifæri leiksins fyrir heimakonur.
93. mín
ÁSLAUG DÓRA Í DAUÐAFÆRI
Linda Líf með flottan sprett upp hægri kantinn og nær fyrirgjöf beint á Áslaugu Dóru sem var mætt fremst í liði Víkinga en skot hennar nær ekki á markið.
Víkingur R.
92. mín
InnDagný Rún Pétursdóttir
ÚtÞórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Þórdís búin að vera fín í leiknum
90. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma
Lágmarkið kynnt í kallkerfinu. Fá Þróttur á sig jöfnunarmark á lokamínútunum annan leikinn í röð?
Þróttur R.
86. mín
Aðalbjörn virðist hafa fundið gulu spjöldin. Samt hárrétt.

Mist Funadóttir

Engin Víkingur búin að fá gult samt sem áður.
Þróttur R.
85. mín
Missir boltann og brýtur af sér. Hárrétt.

Brynja Rán Knudsen

Þróttur R.
84. mín
InnÞórdís Nanna Ágústsdóttir
ÚtUnnur Dóra Bergsdóttir
Þróttur R.
84. mín
InnKristrún Rut Antonsdóttir
ÚtCaroline Murray
83. mín
Mikið í gangi við mark Þróttar þessa stundina
Þróttur í allskyns brasi þessar mínúturnar. Víkingar með aukaspyrnu inn á teig og boltinn af haus varnarmanns Þróttar og í stöngina. Næstum því sjálfsmark.
81. mín
Bergþóra Sól með skot
Sem fer framhjá markinu. Boltinn fellur fyrir Bergþóru inni í teig Þróttar en skot hennar með vinstri fer framhjá markinu. Fáum við einhverja dramatík hérna á lokamínútunum?
80. mín
Þórdís Hrönn með fyrirgjöf
En Þróttarar ná að hreinsa boltann frá. Ótrúlegt að Víkingskonur hafa ekki náð að skora mark hér í kvöld. Ótrúlegt alveg hreint.
Víkingur R.
75. mín
InnJóhanna Elín Halldórsdóttir
ÚtFreyja Stefánsdóttir
70. mín
Sæunn Björns á skot yfir eftir fyrirgjöf frá Caroline
Caroline með góðan sprett, ennþá betri fyrirgjöf og það endar með lélegu skoti frá Sæunni sem er aldrei nálægt marki Víkinga.
Þróttur R.
68. mín
InnBrynja Rán Knudsen
ÚtFreyja Karín Þorvarðardóttir
Þróttur R.
68. mín
InnSóley María Steinarsdóttir
ÚtÞórdís Elva Ágústsdóttir
60. mín
Var þetta víti?
Sending fyrir og svo virðist vera sem ýtt hafi verið í bakið á Caroline Murray en Aðalbjörn Heiðar dæmir ekkert og áfram með leikinn.
56. mín
Þórdís Elva með skot framhjá
Þórdís prjónar sig upp hægri kantinn og kemst inn á teig Víkinga en skot hennar með vinstri fer framhjá markinu.
49. mín
Mollee ver tvisvar
Víkingskonur fara vel af stað í seinni hálfleik. Búnar að eiga nokkur góð færi á þessum 4 mínútum.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Gestirnir sem leiða 0-1 sparka seinni hálfleik í gang.
45. mín
Hálfleikur
Gestirnir leiða í hálfleik
Skrýtið að segja þetta. Heimakonur hafa verið meira með boltann og skapað sér betri stöður. En leikurinn snýst um að skora mörk og það hafa Þróttur gert en ekki Víkingar.
0-1 í hálfleik.
45. mín
Linda Líf með skot framhjá
Komin ein mínúta fram yfir 45 og Víkingar komast í skotfæri fyrir utan teig Þróttar.
40. mín
Caroline með skot
Caroline Murray vinnur boltann hátt á vellinum og tekur nokkur skref í átt að marki Víkinga en skot hennar geigar.
37. mín
Ekki mikið um góðar stöður eftir markið
Liðin skiptast á að vera með boltann eftir að Katie skoraði markið. Fyrirgjöf inn á teig Þróttar en Mollee grípur hana auðveldlega.
30. mín
Bergþóra með sendingu í gegn
Sending frá Bergþóru sem er jafn vel tímasett og hlaupið frá Þórdísi Hrönn. En sendingin aðeins of föst og Þórdís, þótt snögg sé, nær ekki boltanum.
28. mín
Freyja með skalla
Hörkusprettur upp hægri kantinn og fyrirgjöf fyrir markið sem Freyja Karín nær að skalla en hún nær ekki að stýra skallanum á markið.
Þróttur R.
21. mín
Gegn gangi leiksins!

Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir (stoðsending: Katherine Amanda Cousins) (sjm)

Veit ekki hvort þetta hafi verið sjálfsmark. Aukaspyrna utan af kanti sem berst á fjær til Katie sem er einnig óvölduð. Hún nær að stýra boltanum að marki, en boltinn fer í stöngina og í bakið á Sigurborgu og inn.
Þróttur R.
19. mín
Brýtur á Lindu

Sæunn Björnsdóttir

Linda Líf að sleppa í gegn og Sæunn tilneydd að brjóta á henni. Verðskuldað gult spjald.
18. mín
Víkingskonur betri það sem af er
Víkingar hafa náð tökum á leiknum og erum betri það sem er. Flott spil hjá heimakonum og Linda Líf á leið í gegn!
10. mín
Þróttur með horn
Emma Steinsen hreinsar í horn. Hornið fer í gegnum allan pakkann og út af hinu megin. Markspyrna fyrir heimakonur.
5. mín
Ekkert um færi það sem af er
Hvorugt liðið hefur átt gott færi í leiknum hingað til en það er að þreifa fyrir sér og skiptast á að vera með boltann.
1. mín
Leikur hafinn
Heimakonur sparka þessu í gang
Fyrir leik
Spámaðurinn
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, Adda, spáir í 3. umferð Bestu deildar kvenna sem fer af stað með þremur leikjum í dag en lýkur á þriðjudaginn.

Víkingur 1-2 Þróttur (18:00 í kvöld)
Þróttarar litu hrikalega vel út gegn Breiðabliki i seinustu umferð. Katie cousins gerir svakalega mikið fyrir þær eins og við mátti búast, hún heldur áfram sð skora og Þórdís Elva smyr einum í Samuel. Linda Líf klórar i bakkann fyrir Víkinga sem leita af jöfnunarmarkinu en þróttur hefur lært fljótt af seinasta leik og klàra 3 stig.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Staðan
Víkingur Reykjavík situr í 6. sæti deildarinnar en liðið hefur byrjað mótið á einum sigri og einu tapi. Víkingar unnu stórsigur á Stjörnunni í síðustu umferð 6-2. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir skoraði þrennu þar, hún byrjar í liði Víkinga í kvöld.

Þróttara stelpur sitja í 5.sæti deildarinnar og gerði liðið 2-2 jafntefli við Breiðablik í síðustu umferð.

Mynd: Víkingur

Fyrir leik
Leikdagur!
Góðan og gleðilegan daginn og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá Heimavelli Hamingjunnar þar sem heimakonur taka á móti Þróttarakonum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.