Fotbolti.net
Besta deildin
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
ÍA
ÍA
Besta-deild karla
ELKEM völlurinn
3 - 0
KA
KA
Jón Gísli Eyland Gíslason 2'1 - 0Viktor Jónsson 18'2 - 0Viktor Jónsson 93'3 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: 3-0 varnarsigur upp á Skaga

Hvað réði úrslitum?

Skagamenn byrjuðu leikinn vel og skoruðu tvö mörk úr fyrstu tveimur sóknunum þeirra. Eftir það voru úrslitin í raun ráðin þar sem þeir skelltu bara í lás varnarlega og KA skapaði varla færi.

Bestu leikmenn

1. Jón Gísli Eyland Gíslason (ÍA)

Mark og stoðsending hjá Jón í dag, en hann var hættulegur þegar Skagamenn fóru upp í sínar skyndisóknir. Lokaði einnig vel á KA menn varnarlega.

2. Erik Tobias Sandberg (ÍA)

Vörnin hjá ÍA í dag var einhver óbrjótanlegur múr. KA menn sköpuðu varla færi í leiknum þrátt fyrir að vera miklu meira með boltann. Erik átti stóran þátt í að stöðva það, með því að skalla fyrirgjafir frá og stöðva sóknarmenn KA áður en þeir komust inn í teig.

Atvikið

Fyrsta mark leiksins var skorað strax á 2. mínútu leiksins. Gísli Laxdal með fínt skot sem markvörður KA, Steinþór ver vel. Hann slær hinsvegar boltann út í teiginn þar sem Jón Gísli nær til hans og klárar snyrtilega. KA menn voru slegnir eftir þetta og mark númer tvö kom ekki löngu seinna.

Hvað þýða úrslitin?

ÍA fer upp í sex stig eftir fimm leiki og draga sig upp í 9. sæti deildarinnar. Sterkur sigur eftir þrjá tapleiki í röð. KA menn halda áfram með sína slöku byrjun, eru með fjögur stig, eftir fimm leiki og eru í botnsæti deildarinnar eftir sigur FH á Val.

Vondur dagur

Þónokkrir í KA sem áttu ekki sinn besta dag en ég ætla að skella þessu á Jóan Símun Edmundsson. Hann kom til KA fyrir tveimur árum og þar sá maður hversu góður leikmaður hann getur verið. Hann er hinsvegar langt frá því að sýna það í byrjun tímabils. Hann virkaði áhugalaus, en einnig gæðalítill og það síðarnefnda er eitthvað sem maður bjóst alls ekki við.

Dómarinn - 7

Engin risa atvik í þessum leik. Mér fannst línan hjá Gunnari með gulu spjöldin oft á tíðum frekar asnaleg, en það hafði engin áhrif á úrslit leiksins. Þannig heilt yfir bara fínt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.