Fotbolti.net
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
Lengjudeild kvenna
Þórsvöllur Vey
ÍBV
ÍBV
5 - 1
Grótta
Grótta
Olga Sevcova 8'1 - 0Allison Grace Lowrey 28'2 - 02 - 138' Hulda Ösp ÁgústsdóttirOlga Sevcova 53'3 - 1Allison Grace Lowrey 73'4 - 1Edda Dögg Sindradóttir 93'5 - 1
Dómari: Guðmundur Valgeirsson

SKÝRSLAN: Sannfærandi sigur ÍBV á Þórsvelli

Hvað réði úrslitum?

Einfaldlega gæði Eyjakvenna og þá sérstaklega fram á við. Með Olgu, Allison Clark og Allison Lowrey í broddi fylkingar.

Bestu leikmenn

1. Allison Patrica Clark

Var algjörlega frábær inn á miðjunni í dag hjá ÍBV. Leggur upp tvö mörk og gerir það glæsilega. Hefði hæglega getað átt fleiri stoðsendingar í þessum leik. Mikill dugnaður í henni allan leikinn og vann vel fyrir liðið.

2. Olga Sevcova

Við sem fylgjumst með kvenna boltanum vitum öll hvað Olga getur og sýndi hún og sannaði það í dag með tveimur góðum mörkum sem hefðu getað orðið fleiri. Jafnframt var hún að skapa fyrir liðsfélaga sína.

Atvikið

Markið sem Grótta skoraði undir lok fyrri hálfleiks. Guðný Geirsdóttir fór í skógarhlaup og Hulda Ösp nýtti sér mistök hennar og skoraði í autt markið. Þetta hefði geta komið Gróttu inn í leikinn en ÍBV voru einfaldlega bara miklu betri í seinni hálfleik.

Hvað þýða úrslitin?

Mótið er auðvitað nýbyrjað en ÍBV nær í sín fyrstu stig í góðum heimasigri á meðan Grótta er með núll stig eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Vondur dagur

Erfitt að taka út einhvern einn ákveðinn leikmann en Gróttu liðið var bara skrefi á eftir Eyjakonum. Gróttu stelpurnur voru mikið á hausnum og kannski ekki með réttan skóbúnað eða vanar að spila á grasi. Varnarleikurinn oft á tíðum mjög opinn og það var auðvelt fyrir ÍBV að komast á bakvið vörnina.

Dómarinn - 9

Vel dæmdur leikur og ekkert út á frammistöðu hans að setja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.