SKÝRSLAN: Sterkur sigur Þróttara á Hlíðarenda í Bestu deild kvenna
Hvað réði úrslitum?
Stelpurnar í Þrótti stjórnuðu leiknum, voru ákveðnari og ætluðu sér sigur. Vörn, miðja og sókn tengdust vel saman í leiknum í gegnum Katie Cousins.
Bestu leikmenn
1. Katie Cousins
Algjör drottning á miðjunni vann 90 prósent af 50/50 boltum og allur leikur selpnanna í Þrótti fer í gegnum hana. Stýrði tempóinu í leiknum eins og leikstjórnandi í körfubolta.
2. Anna Rakel Pétursdóttir
Anna átti flottan leik á vinstri vængnum og sú eina sem ógnaði almennilega marki Þróttara. Tók margar frábærar hornspyrnur, þar af ein stoðsending í eina marki Valskvenna. Átti líka góðar aukaspyrnur með sínum eitraða vinstra fæti. Ekki við hana að sakast tapið hér í kvöld.
Atvikið
Seinni hálfleikur var varla byrjaður þegar Caroline Murray brunar upp hægri kantinn og er með flotta fyrirgjöf beint á kollinn á Freyju sem skallar hann í netið og Þróttur komið yfir 2-1. Eftir þennan skell breyttist leikurinn og Þróttur tók alfarið öll völd á vellinum.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að stelpurnar í Þrótti ætla að blanda sér í titilbaráttuna og ná að laga markahlutfallið í leiðinni. Hins er erfitt að sjá að Valskonum sem var spáð í 2. sæti fyrir tímabilið að blanda sér í tililbaráttuna og hafa nú tapað tveimur leikjum í röð með að minnsta kosti tveimur mörkum.
Vondur dagur
Fremsta sóknarlína Valskvenna átti ekki góðan leik enda voru fyrstu tvær skiptingar liðsins breytingar á toppnum og þær Helena Ósk og Jordyn teknar út af strax á 62. mínútu.
Dómarinn - 6
Dæmdi leikinn ágætlega en nokkur atvik eins og vitlaust innkast og nokkrar brot sem hefði mátt dæma. En annars ágætur leikur og framför frá því í síðustu viku þegar hann dæmdi leik Fram og FHL að mínu mati.




