Fotbolti.net
Besta deildin
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Besta-deild karla
N1-völlurinn Hlíðarenda
Valur
Valur
2 - 1
Fram
Fram
Patrick Pedersen 50'1 - 01 - 164' Vuk Oskar DimitrijevicTryggvi Hrafn Haraldsson 68'2 - 1
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Leik lokið!
Þórður Þorsteinn flautar til leiksloka. Gríðarlega mikilvægur sigur Vals sem eru aðeins tveimur stigum frá toppnum núna þegar við erum á leiðinn í landsleikjahlé.

Takk fyrir mig í kvöld.
90. mín
Uppbótartíminn á Hlíðarenda er að lágmarki fjórar mínutur
Valur
90. mín
InnJakob Franz Pálsson
ÚtJónatan Ingi Jónsson
87. mín
SIGGI LÁR GUÐ MINN ALMÁTTUR!!
Frederik Schram grípur boltann og neglir boltanum upp, aftur leið eitt. Kyle steinsofandi og Siggi Lár slepp3ur í gegn og aætlar að setja boltann yfir Viktor en hittir boltann rosalega ílla.
Valur
84. mín
InnAdam Ægir Pálsson
ÚtPatrick Pedersen
Fram
82. mín
InnKristófer Konráðsson
ÚtÞorri Stefán Þorbjörnsson
Fram
81. mín
Gult spjald

Israel Garcia Moreno

Brýtur á Jónatani þegar Valur var á leiðinni í ágætis sókn.
Valur
77. mín
InnOrri Hrafn Kjartansson
ÚtKristinn Freyr Sigurðsson
Valur
77. mín
InnAlbin Skoglund
ÚtTryggvi Hrafn Haraldsson
Valur
77. mín
InnSigurður Egill Lárusson
ÚtLúkas Logi Heimisson
76. mín
TRYGGVI HRAFN!!!!
Fær boltann við vítateigslínuna vinstra megin. Tekur köttið inn á hægri fótbinn og ætlar að smyrja boltann í fjær en Viktor ver frábærilega í hornspyrnu.
Valur
68. mín
HA HVAÐ GERÐIST ÞARNA??

Tryggvi Hrafn Haraldsson (stoðsending: Frederik August Albrecht Schram)

Fredrick Schram grípur boltann inn á teig Vals og bombar boltanum upp, leið eitt á Tryggva Hrafn sem er í kappi við Oliver. Boltinn skoppar tvisvar eða þrisvar og Oliver ætlar að skalla boltann til baka á Viktor en hittir ekki boltann.

Tryggvi nýtir sér það, setur boltann yfir Viktkor og tekur hlaup framfyrir Viktor og skallar boltann í netið af stuttu færi!

Jaaaahérna hér.
Fram
65. mín
InnÓliver Elís Hlynsson
ÚtGuðmundur Magnússon
Fram
65. mín
InnJakob Byström
ÚtHaraldur Einar Ásgrímsson
Fram
64. mín
FRAMARAR ERU AÐ JAFNA

Vuk Oskar Dimitrijevic (stoðsending: Israel Garcia Moreno)

Israel vinnur boltann á vallarhelmingi Vals og keyrir af stað. Israel finnur Vuk sem hamrar boltann í netið.

Þvílíkt mark.
61. mín
Patti Pé nálgast markamet TG9
Tryggvi Guðmundsson á markmetið og er markahæsti knattspyrnumaður Íslands frá upphafi en hann skoraði 131 mörk í 241 leikjum. Patrick er komin með 125 í 199 leikjum.

Hvar væri Valur án Patta Pé?

Mynd: Eyjafréttir



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

58. mín
Tibbling með hættulegan bolta inn á teiginn. Fyrirliðin Hólmar Örn kemst í boltann á undan Gumma Magg og hreinsar boltann í hornspyrnu sem ekkert varð úr.
Valur
50. mín
ÓTRÚLEGUR ÞESSI GÆJI FRÁ DANMÖRKU!!!!

Patrick Pedersen (stoðsending: Bjarni Mark Antonsson)

Valur er komið yfir á Hlíðarenda.

Kennie Chopart tapar boltanum klaufalega og Bjarni mark hirðir boltann af honum og þræðir PP í gegn og Patrick gerir það sem hann kann svo best sem er að klára færin sín og skorar örugglega framhjá Viktori.

1-0 Valur! Vi har Pedersen!

46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað
Valur sækir í átt að Perlunni og er með vindinn í bakið.
45. mín
Valur með vindinn í bakið í seinni hálfleik og stuðullinn á Valssigur hjá Epic er 1.67. Fyrir þá sem vilja hærri stuðul þá er Valur -1.5 í forgjöf á 3.4 og eflaust margir sem munu tylla sér þar
45. mín
Markalaust í hálfleik
Leiðinlegum fyrri hálfleik lokið. Vonandi fáum við meira frá liðunum í seinni hálfleik.

Tökum okkur korter!
43. mín
Vukarinn var líklegur þarna!!
Fær boltann hægra megin fyrir utan vítateig Vals og lætur vaða meðfram grasinu en boltinn réttframhjá.

Þessi var ekki langt frá því að fara í netið.
37. mín
Hundleiðinlegur fyrri hálfleikur
Það besta við þennan fyrri hálfleik er pizzaklemman sem Valsarar komu færandi hendi

Ekkert eðlilega góðar. Ef þú kíkir á Hlíðarenda þá mæli ég klárlega með.
31. mín
Besta tækifæri leiksins kemur hér eftir hálftíma
Aron Jó með frábæra sendingu inn fyrir á Tryggva Hrafn sem sleppur í gegn en Viktor Freyr sér við honum.

Tryggvi Hrafn hefði átt að gera betur þarna og hann veit það manna best sjálfur.
23. mín
Schram með mistök
Fer boltann og ætlar að finna Aron Jó en Framarar komast inn í þetta og Róbert Hauksson nálægt því að komast í boltann.
21. mín
Simon Tibbling fær boltann úti vinstra megin og leggur boltann á Vuk Oskar sem lætur vaða en boltinn vel hátt yfir. Ekkert að þessari til raun samt!
17. mín
Markus Lund!!
Bjarni með góðan bolta inn á teig Fram og boltinn dettur fyrir Nakkim sem á skot sem fer í varnarmann.
8. mín
Orri Sigurður full hátt með sólann
Boltinn kemur í átt að Gumma Magg, Orri Sigurður mætir á ferðinni og fer með takkana í síðuna á Gumma sem fann fyrir þessu.

Hefði mjög líklega fengið spjald ef þetta hefði gerst seinna í leiknum...

Fyrir utan þetta brot þá fer þetta rosalega rólega af stað.
6. mín
Liðsuppstillingar !
Svona sé ég þetta

Valur
Schram
Orri- Hólmar- Nakkim-Bjarni
Lúkas-Aron-Kristinn Freyr
Jónatan - Patti - THH

Fram
Viktor
Kennie - Kyle - Sigurjón - Haraldur
Þorri - Tibbling - Israel - Vuk
Gummi - Róbert
1. mín
Við eurm farin af stað!1
Þórður Þorsteinn flautar til leiks. Fram byrjar með boltann.
Fyrir leik
Styttist kæru lesendur!
Liðin ganga til búningsherbegja. Daníel vallarþulur Valsmanna í dag hefur lokið að kynna liðið. Áhorfendur eru farnir að týnast í stúkuna.

Það er allt að verða klárt hér á Hlíðarenda.
Fyrir leik
Reykjavíkurslagur af bestu gerð. Valsmenn hafa oft lent í brasi með Fram og því vekur stuðullinn 6,50 á Epic á sigur Frammara eflaust áhuga þeirra sem hafa hugsað sér að ávaxta pundið á þessum leik . +1.5 forgjöf á Fram á stuðlinum 1.91 fyrir þá passívu
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Túfa gerir eina breytingu á liði Vals sem vann Aftureldingu. Orri Hrafn Kjartansson sest á bekkinn og Kristinn Freyr Sigurðsson kemur inn í hans stað. Birkir Heimisson er ekki í hópnum annan leikinn í röð.

Rúnar Kristinsson gerir tvær breytingar á liði Fram sem tapaði gegn KA. Þorri Stefán Þorbjörnsson og Guðmundur Magnússon koma inn fyrir Jakob Byström og Má Ægisson sem setjast á bekkinn. Alex Freyr Elíasson er ekki í hópnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Staðan í deildinni
Þetta er eini og síðast leikur umferðarinnar og eiga liðin þá inni einn leik. Valsmenn sitja í 4. sæti, þremur stigum fyrir ofan Fram en þeir eru í 8. sæti. Með sigri geta Valsmenn gert sig gildandi í toppbaráttunni en Framarar geta jafnað Val að stigum með sigri.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Þórður Þorsteinn Þórðarson, eða ÞÞþ eins og hann er jafnan kallaður, er með flautuna í dag. Honum til aðstoðar eru þeir Ragnar Þór Bender og Bergur Daði Ágústsson. Jón Sigurjónsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Einar Jónsson spáir fyrir þessa umferð
Handboltaþjálfari Fram og nýkrýndur Íslandsmeistari, Einar Jónsson, spáir fyrir þessum leik.
Valur 1 - 1 Fram
Tekst Val að hefna fyrir handboltann? Nei er stutta svarið.

Valsmenn hafa reyndar verið flottir undanfarið og haldið hreinu í síðustu tveim en Framarar eru með Vuk Oskar og hann skorar alltaf á 90 mín á Hlíðarenda. Patrick Pedersen skorar mark úr efstu hillu.

Rúnar klínir tveim til þrem í skeytin inn í upphitun, sá kóngurinn, hendir svo líka í nokkrar eiginhandaráritanir, hinn íslenski Xavi. Valsmenn verða þó léttir í lund þessir 39 sem mæta frá þeim.

Einar Jónsson spáir í 10. umferð
Fyrir leik
Velkomin til leiks!
Verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá leiks Vals gegn Fram á N1-vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.