Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
Þór
1
3
Völsungur
Hermann Helgi Rúnarsson '17 1-0
1-1 Rafnar Máni Gunnarsson '33
1-2 Arnar Pálmi Kristjánsson '45
1-3 Jakob Héðinn Róbertsson '59
04.06.2025  -  19:15
Boginn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Betri en úti
Dómari: Sveinn Arnarsson
Áhorfendur: Margir
Maður leiksins: Ívar Arnbro Þórrhallsson
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
3. Juan Guardia Hermida
4. Hermann Helgi Rúnarsson
5. Yann Emmanuel Affi ('70)
6. Ibrahima Balde
7. Orri Sigurjónsson ('37)
10. Aron Ingi Magnússon
18. Sverrir Páll Ingason ('70)
19. Ragnar Óli Ragnarsson
20. Vilhelm Ottó Biering Ottósson ('84)
37. Sigfús Fannar Gunnarsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
28. Franko Lalic (m)
13. Haukur Leo Þórðarson
22. Kári Jónsson ('84)
24. Ýmir Már Geirsson ('70)
25. Pétur Orri Arnarson
27. Atli Þór Sindrason ('37)
30. Peter Ingi Helgason ('70)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Sveinn Leó Bogason
Gestur Örn Arason
Stefán Ingi Jóhannsson

Gul spjöld:
Yann Emmanuel Affi ('4)
Juan Guardia Hermida ('51)
Hermann Helgi Rúnarsson ('78)
Vilhelm Ottó Biering Ottósson ('81)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Völsungur vinnur frábæran og verðskuldaðan sigur í Boganum 1-3 lokatölur, Völsungur vinnur sinn þriðja leik á tímabilinu! Annað tap Þórsara í deildinni staðreynd.
93. mín
Peter í álitlegri stöðu en Rafnar með frábærlega tímasetta tæklingu og stoppar sókn Þórsara inn á vítateig Völsungs.
92. mín
Ívar Arnbro gerir virkilega vel, djúp fyrirgjöf frá Ými ætluð Balde en Ívar stígur upp og hirðir þennan bolta.
91. mín
Fimm mínútum bætt við
90. mín
Inn:Ólafur Jóhann Steingrímsson (Völsungur) Út:Jakob Héðinn Róbertsson (Völsungur)
90. mín
Skottilraun Peters fer yfir mark Völsungs.
89. mín
Aron Ingi vinnur aukaspyrnu nokkuð nálægt vítateig Völsungs. Skotfæri fyrir heimamenn. Peter Ingi ætlar að láta vaða.
87. mín
Peter Ingi með skalla framhjá marki Völsungs, laus skalli og lítil hætta.
86. mín
Atli Þór reynir skot á nærstöngina en Ívar er eins og köttur í markinu og ve þetta nokkuð auðveldlega.
84. mín
Inn:Kári Jónsson (Þór ) Út:Vilhelm Ottó Biering Ottósson (Þór )
83. mín
Aron Ingi með fyrirgjöfina inn á markteiginn og Ívar ýtir þesum bolta yfir markið.

Þórsarar vinna fyrsta boltann eftir hornspyrnuna en svo er dæmd rangstaða á heimamenn.
83. mín
Inn:Steinþór Freyr Þorsteinsson (Völsungur) Út:Bjarki Baldvinsson (Völsungur)
Reynslubolti út fyrir enn meiri reynslubolta.
82. mín
Vilhelm vinnur aukaspyrnu við endalínu, fyrirgjafarstaða fyrir Þórsara.
81. mín Gult spjald: Vilhelm Ottó Biering Ottósson (Þór )
Sá alls ekki hvað gerðist, en Vilhelm fær gult spjald og Völsungur aukaspyrnu.
80. mín Gult spjald: Bjarki Baldvinsson (Völsungur)
Fyrir að sparka boltanum í burtu.
78. mín Gult spjald: Elmar Örn Guðmundsson (Völsungur)
Held ég hafi náð þessum spjöldum rétt. Menn heitir eftir þetta atvik.
78. mín Gult spjald: Hermann Helgi Rúnarsson (Þór )
77. mín
Alvöru dýfa Elfar Árni fleygir sér niður...

Reynir að veiða Vilhelm í rautt spjald.

Sveinn átti bara að lyfta gulu á Elfar þarna.
75. mín
Inn:Elmar Örn Guðmundsson (Völsungur) Út:Gunnar Kjartan Torfason (Völsungur)
Rafnar færist niður í hægri bakvörðinn.
74. mín
Tveir Völsungar með krampa og það þarf að teygja á þeim.
73. mín
Juan Guardia með skot sem fer aðeins í varnarmann og Ívar ver svo og heldur þessum bolta.
72. mín
Aftur setja gestirnir boltann upp í loftið.
72. mín
Hermann Helgi skallar framhjá eftir hornspyrnu. Þórsarar aðeins að banka.
70. mín
Inn:Peter Ingi Helgason (Þór ) Út:Sverrir Páll Ingason (Þór )
70. mín
Inn:Ýmir Már Geirsson (Þór ) Út:Yann Emmanuel Affi (Þór )
Juan Guardia fer niður í hafsentinn og Ýmir í hægri bakvörð.
70. mín
Ívar pressaður af Sigfúsi og þrumar boltanum upp í loftið.
68. mín
Vilhelm með flotta sendingu út í teiginn á Sigfús sem teygir sig í boltann og setur hann yfir.
67. mín
Hermann Helgi með mislukkað skot framhjá, sá vinkil til að setja hann í fjær en hitti ekki markið.
65. mín
Völsungar pressa Aron Birki stíft og hann setur boltann upp i loftið. Völsungur fær boltann við vítateigslínuna.

Völsungur heldur sókn sinni áfram.
64. mín
Aron Ingi bjargar á línu Ismael fær góða sendingu í gegn, gerir vel að komast framhjá einum Þórsara og á skot að marki sem fer framhjá Aroni Birki en Aron Ingi er mættur niður á línu og hreinsar í burtu.
63. mín
Ragnar Óli reynir að finna Vilhelm sem nær ekki að taka við boltanum, sem fer í innkast og gestirnir fagna vel.
61. mín
Ívar Arnbro! Þórsarar reyna að koma sér aftur almennilega inn í leikinn en Ívar Arnbro ver gott skot frá heimamönnum.

Balde er svo í fínu skallafæri eftir hornspyrnu en skallinn er laus og Ívar handsamar boltann.
59. mín MARK!
Jakob Héðinn Róbertsson (Völsungur)
Stoðsending: Xabier Cardenas Anorga
Afskaplega einföld skyndisókn, Jakob Héðinn vinnur návígi við Affi og klárar virkilega vel með skoti í fjærhornið vinstra megin úr teignum. Sýndis það vera Xabier sem lyfti boltanum í svæðið þar sem Jakob gat farið í áras á Affi.

Gestirnir nýttu sér þarna mikla opnun á vörn Þórsara.
57. mín
Balde ræðir stuttlega við Svein, finnst hann eiga að hafa fengið margar aukaspyrnur í dag en ekki fengið, stundum má gera meira við stóra skrokka. Skil Balde nokkuð vel.
56. mín
Sigfús Fannar í mjög góðu færi en varnarmaður Völsungs hendir sér fyrir og Þór fær horn.
53. mín
Sverrir og Sigfús taka þríhyrning en Sverrir nær ekki góðu skoti. Það er betra spil í Þórsurunum finnst mér þessar fyrstu mínútur heldur en á löngum köflum í fyrri hálfleik.
51. mín Gult spjald: Juan Guardia Hermida (Þór )
Togar í leikmann Völsungs og fær verðskuldað gult sýnist mér.
50. mín
Jakob Héðinn reynir að sækja brot á Vilhelm alveg við vítateigslínuna en það var ekkert á þetta.

Elvar Baldvins verst svo vel á hinum endanum, hirðir boltann af Sigfúsi.
49. mín Gult spjald: Rafnar Máni Gunnarsson (Völsungur)
Reynir að taka Atla Þór úr treyunni og fær verðskuldað spjald. Þórsarar byrjar seinni hálfleikinn af krafti.
47. mín Gult spjald: Xabier Cardenas Anorga (Völsungur)
Brýtur á Juan Guardia.

Siggi Höskulds er pirraður því Balde var í álitlegri stöðu til að halda sókn Þórs áfram en Sveinn dómari stoppaði til að spjalda.
46. mín
Affi með afleita hreinsun en Þórsarar eru heppnir að móttaka Ismaels var ekki betri en þetta, var í fínni stöðu til að láta vaða ef hann hefði náð stjórn á boltanum.
46. mín
Völsungur byrjar seinni hálfleikinn Elfar Árni sparkar þessu af stað.
45. mín
Hálfleikur
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Alvöru afgreiðsla hjá fyrirliðanum
45. mín
Hálfleikur
Völsungar leiða í leikhléi Jöfn staða hefði sennilega verið sanngjörn í hálfleik en Völsungar hafa gert betur í að klára sínar sóknir, sérstaklega eftir jöfnunarmarkið, og það hefur skilað sér. Húsvíkingar leiða eftir 45 mínútur.
45. mín MARK!
Arnar Pálmi Kristjánsson (Völsungur)
Stoðsending: Gunnar Kjartan Torfason
Völsungur hefur tekið forystuna! Boltinn kemur frá hægri, fyrirgjöf frá Gunnar Kjartani sem fer af varnarmanni, skoppar og Arnar Pálmi lætur vaða rétt fyrir innan vítateigslínuna, fast skot sem fer yfir Aron Birki og í netið. Sýndist þetta vera með hægri hjá vinstri bakverðinum, draumaskot. Völsungar leiða!

Þetta kom upp úr nánast engu. Kraftur í Völsungum!
43. mín
Aron Birkir! Rosalega einföld skyndisókn, einn langur fram á Jakob Héðin sem á mjög gott skot úr þröngri stöðu og Aron Birkir gerir vel að verja.
43. mín
Balde finnur Atla Þór inn á teignum en Atli nær ekki stjórn á boltanum, vond fyrsta snerting.
40. mín
Elvar Baldvins vinnur aukaspyrnu, Affi dæmdur brotlegur inn á vítateig Völsungs. Aron Birkir, fyrirliði Þórsara, lætur aðeins í sér heyra.
40. mín
Juan Guardia með alvöru bjartsýnisskot sem fer í bak varnarmanns og Þórsarar fá hornspyrnu. Vel sloppið eftir þessa athyglisverðu tilraun.
37. mín
Inn:Atli Þór Sindrason (Þór ) Út:Orri Sigurjónsson (Þór )
Orri fer af velli vegna meiðsla, Sigfús færir sig í holuna og Atli kemur á kantinn. Aron Ingi fellur aðeins dýpra á miðjunni.
37. mín
Fínasta sókna hjá gestunum, Rafnar Máni finnur Jakob Héðinn inn á teignum en Þórsarar eru mættir áður en hann getur athafnað sig. Boltinn endar svo skömmu seinna í höndunum á Aroni Birki.
36. mín
Ibrahima Balde og Elvar Baldvins í baráttunni, þeir léku auðvitað saman hjá Vestra á síðasta tímabili.
34. mín
Völsungar hafa bankað þegar þeir hafa unnið boltann og sótt hratt. Gestirnir gerðu mjög vel í þessari sókn og skoruðu gott jöfnunarmark.
33. mín MARK!
Rafnar Máni Gunnarsson (Völsungur)
Stoðsending: Xabier Cardenas Anorga
Gestirnir jafna! Rafnar Máni er í mjög góðu færi hægra megin í teignum, Xabier leggur hann út til hægri, Rafnar lætur vaða og setur hann í fjærhornið. Virkilega vel klárað hjá Rafnari, Aron Birkir réði ekki við þetta skot, Ragnar Óli ekki nægilega grimmur í varnarleiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

32. mín
Ragnar Óli og Affi verjast vel gegn Elfari Árna inn á vítateig og Ragnar lúðrar boltanum upp í hlaupaleið Sigfúss á kantinum. Hann á skot sem fer af varnarmanni og Ívar ver.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
28. mín
Gaman að sjá að Völsungar, Græni herinn, fjölmenntu frá Húsavík og láta reglulega vel í sér heyra.
26. mín
Gunnar Kjartan rennir sér á eftir Sigfúsi og nær að setja boltann í hann og aftur fyrir, Sigfús hafði farið full auðveldlega framhjá Gunnari en hann bjargaði sér fyrir horn, og kom líka í veg fyrir horn.
25. mín
Juan Guardia brýtur á Arnari Pálma við vítateig Þórsara og Arnar Pálmi eða Rafnar munu koma með fyrigjöf inn á teiginn úr þessari aukaspyrnu.

Affi skallar fyrirgjöfina frá og Aron Birkir grípur næstu fyrirgjöf sem fylgdi á eftir.
24. mín
Aron Birkir pressaður vel af gestunum og hann þrumar boltanum upp í loftið.
23. mín
Sýnist það vera Xabier sem lætur vaða fyrir utan teig en skotið fer framhjá marki Þórs, engin hætta.
23. mín
Ívar Arnbro! Ibrahima Balde flikkar boltanum á Aron Inga sem þræðir hann í gegn á Sverri Pál sem er í dauðafæri en Ívar Arnbro lokar á hann og ver vel.
21. mín
Sveinn Elías Jónsson, formaður fótboltadeildarinnar, stendur hér hliðina á mér og lýsir leiknum á Livey. Hann er ekki parsáttur við dómgæsluna síðustu mínútur, en hann er svo sem ekki beint hlutlaus.
20. mín
Langþráð mark!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

17. mín MARK!
Hermann Helgi Rúnarsson (Þór )
Stoðsending: Ibrahima Balde
Hermann Helgi skorar sitt fyrsta meistaraflokksmark! Þórsarar vinna boltann, Balde fer illa með varnarmann Völsungs, getur valið sér sendingu, rennur boltanum til hægri og þar er Hermann Helgi í dauðafæri og setur boltann framhjá Ívari á nærstöngina.

Fyrsta mark Hermanns Helga í meistaraflokki! 134. leikur Hermanns samkvæmt KSÍ.

Alli Jói vildi fá brot í aðdraganda marksins, eitthvað til í því hjá honum en Völsungur hélt boltanum í nokkrar sekúndur eftir það áður en Þórsarar komust í hann.
16. mín
Sigfús Fannar tekur skotið, kemur boltanum yfir vegginn en ekki nógu hratt niður aftur og boltinn fer yfir mark Völsungs.
15. mín Gult spjald: Elvar Baldvinsson (Völsungur)
Brýtur á Aroni Inga og Þór á aukaspyrnu á stórhættulegum stað.

Sigfús Fannar gerði frábærlega í aðdragandanum stóð af sér allavega tvær tæklingar.
13. mín
Vel framkvæmt fast leikatriði Hornið tekið stutt og Xabier fær boltann fyrir utan teig, lætur vaða og Aron þarf að kýla þennan bolta yfir.

Þórsarar ná að hreinsa í burtu í þetta skiptið.
12. mín
Aron Birkir! Algjör klaufagangur eftir hornið hjá Þórsurum og Elfar Árni er í dauðafæri en Aron Birkir ver virkilega vel!
11. mín
Jakob Héðinn vinnur boltann á vallarhelmingi Þórsara og Völsungar sækja hratt. Jakob finnur Rafnar sem á fyrirgjöf sem fer af Þórsara og aftur fyrir. Hornspyrna.
9. mín
Löng sending inn fyri ætluð Jakob Héðni en Aron Birkir les þetta hárrétt, kemur út á móti og hreinsar vel upp völlinn og í innkast.
8. mín
Hermann Helgi! Hermann Helgi vinnur boltann nálægt vítateig Völsungs og lætur bara vaða. Ívar Arnbro gerir vel að verja þetta skot. Hornspyrna.
7. mín
Völsungur vinnur fyrstu hornspyrnu leiksins. Rafnar Máni tekur.
4. mín Gult spjald: Yann Emmanuel Affi (Þór )
Affi braut af sér fyrir um mínútu síðan og fær núna gult spjald. Bæði lið komin með mann í bókina.
4. mín
Þórsarar sækja hratt, Balde með flotta sendingu inn á Sverri Pál sem nær ekki að gera sér nægilega mikinn mat úr þessari stöðu og Völsungar komast fyrir.
3. mín
Völsungur Ívar
Gunnar Kjartan - Ingio - Elvar - Arnar
Rafnar - Xabier - Elvar - Ismael
Jakob - Elfar
2. mín Gult spjald: Gunnar Kjartan Torfason (Völsungur)
Fyrsta spjaldið á loft eftir 75 sekúndur! Brot við miðlínu.
1. mín
Þór Aron Birkir
Juan - Ragnar - Affi - Vilhelm
Orri - Hermann
Sverrir - Aron Ingi - Sigfús
Balde
1. mín
Leikur hafinn
Þórsarar byrja með boltann Aron Ingi sparkar þessu af stað.
Fyrir leik
Baulað á Juan Guardia Juan Guardia, hægri bakvörður Þórs, kom frá Völsungi í vetur og mér fannst ég heyra baul frá Græna hernum sem er mættur í Bogann þegar nafn hans var lesið upp.

Elvar Baldvinsson og Rafnar Máni Gunnarsson í liði Völsungs hafa verið hjá Þór.
Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson

Juan Guardia
Fyrir leik
Markalaust í æfingaleik liðanna rétt fyrir mót Liðin mættust í æfingaleik skömmu fyrir Íslandsmótið og þá endaði leikur liðanna með mjög svo bragðdaufu markalausu jafntefli.
Fyrir leik
Meiðsli hjá Þór Siggi Höskulds, þjálfari Þórs, gerir þrjár breytingar á sínu liði í dag frá leiknum gegn Fylki. Yann Affi, Sverrir Páll og Hermann Helgi Rúnarsson koma inn fyrir þá Atla Þor Sindrason, Clement Bayiha og Einar Freyr Halldórsson. Atli er á bekknum en Einar og Clement eru ekki með í dag. Einar Freyr var valinn í U19 landsliðið en er ekki með í því verkefni vegna meiðsla.

Einungis ein breyting er á leikmannahópi Völsungs milli leikja. Tómas Bjarni Baldursson kemur á bekkinn fyrir Davíð Örn Aðalsteinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Freyr (2008) hefur farið frábærlega af stað með Þór á þessu tímabili.
Fyrir leik
Leikurinn í beinni útsendingu hér - Minnum á "Fótbolti.net" kóðann


Mate Dalmay
Fyrir leik
Gengi liðanna og viðtölin eftir síðasta leik Þórsarar hafa unnið tvo leiki í röð og eru í 3. sæti með tíu stig eftir fyrstu fimm leikina. Markatalan er 15:10. Clement Bayiha, Ibrahima Balde, Sverrir Páll Ingason og Sigfús Fannar Gunnarsson skoruðu mörk lisðins i 4-1 sigri gegn Fylki á föstudag.

Sigfús Fannar er markahæsti leikmaður deildarinnar með sjö mörk í leikjunum fimm.

Völsungur er í 8. sæti með sex stig eftir leikina fimm. Markatalan er 6:12. Völsungur tapaði 4-1 gegn Þrótti í síðustu umferð. Það var Ismael Salmi Yagoub sem skoraði mark Völsunga í þeim leik.

Þór hefur unnið einn af þremur heimaleikjum sínum á tímabilinu og Völsungur hefur unnið einn af fjórum útileikjum sínum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigfús Fannar hefur byrjað tímabilið frábærlega.
Fyrir leik
Dómaratríóið Sveinn Arnarsson er með flautuna í dag og honum til aðstoðar eru þeir Patrik Freyr Guðmundsson og Birkir Örn Pétursson. Magnús Sigurður Sigurólason er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Arnars
Fyrir leik
Ásgeir Marteins spáir heimasigri Ásgeir Marteinsson, leikmaður Þróttar Vogum, er spámaður umferðarinnar.

Þór 2 - 1 Völsungur (19:15)
Hér verður fátt um fína drætti, Þór kemst í 2-0 snemma með mörkum frá Sigfúsi Fannari því ég sá að hann er búinn að vera heitari en kveikjari. Ég er einstakur áhugamaður um að klóra í bakkann og munu Húsvíkingar að sjálfsögðu gera það í þessum leik, með marki frá Rafnari Mána Gunnarsyni, þekki hann ekki neitt en hef trú á hann er líka sérlegur áhugamaður um að klóra í bakkann.

Fyrir leik
Upphitun í Hamri frá 17:30 - veitingar í boði
Fyrir leik
Borgari og skutl frá Húsavík á 3000 kr
Fyrir leik
Víxlað á heimaleikjum Vegna framkvæmda við PCC völlinn á Húsavík - gervigrasvöllinn - og polla á grasvelinum, komust félögin að samkomulagi um að víxla heimaleikjum á þessu tímabili og því mun leikur liðanna í seinni umferð deildarinnar fara fram á Húsavík.
Mynd: Aðsend

Svona leit Húsavíkurvöllur út í hádeginu í gær
Fyrir leik
Velkomin í Bogann! Góðan daginn lesendur góðir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá nágrannaslag Þórs og Völsungs í 6. umferð Lengjudeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram í Boganum á Akureyri.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Byrjunarlið:
1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
4. Elvar Baldvinsson
5. Arnar Pálmi Kristjánsson (f)
6. Inigo Albizuri Arruti
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Bjarki Baldvinsson ('83)
11. Rafnar Máni Gunnarsson
14. Xabier Cardenas Anorga
16. Jakob Héðinn Róbertsson ('90)
21. Ismael Salmi Yagoub
39. Gunnar Kjartan Torfason ('75)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
88. Einar Ísfjörð Sigurpálsson (m)
7. Steinþór Freyr Þorsteinsson ('83)
8. Ólafur Jóhann Steingrímsson ('90)
12. Gestur Aron Sörensson
15. Tómas Bjarni Baldursson
17. Aron Bjarki Kristjánsson
23. Elmar Örn Guðmundsson ('75)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson (Þ)
Ármann Örn Gunnlaugsson
Ingvar Björn Guðlaugsson
Róbert Ragnar Skarphéðinsson
Jón Smári Hansson

Gul spjöld:
Gunnar Kjartan Torfason ('2)
Elvar Baldvinsson ('15)
Xabier Cardenas Anorga ('47)
Rafnar Máni Gunnarsson ('49)
Elmar Örn Guðmundsson ('78)
Bjarki Baldvinsson ('80)

Rauð spjöld: