SKÝRSLAN: ÍBV og Keflavík skildu jöfn
Hvað réði úrslitum?
Færanýting ÍBV var skelfileg í þessum leik. Í raun hefði ÍBV átt vera búið að loka leiknum en 1-0 er alltaf hættuleg forysta og það kom á daginn að Keflavík refsaði.
Bestu leikmenn
1. Anna Arnarsdóttir
Stóð vaktina vel í marki Keflavíkur. Átti nokkrar vörslur og var örugg. Keflavíkustúlkur geta þakkað henni fyrir stigið en hún varði frábærlega undir lok leiks þegar Milena var sloppin ein í gegn.
2. Aníta Lind Daníelsdóttir
Var öflug í liðið Keflavíkur og jafnar leikinn með marki beint úr aukaspyrnu.
Atvikið
Ekki eitt atvik heldur fullt af atvikum þar sem ÍBV hefði getað klárað leikinn. Endalaust af færum, upphlaupum og fáranlegum ákvörðunum.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV fer upp í 2. sætið, upp fyrir Grindavík/Njarðvík en Keflavík klífur aðeins upp töfluna, úr 8. sæti í 6. sæti.
Vondur dagur
Allison Patricia Clark og Olga Sevcova. Þessar stelpur eiga að halda uppi sóknarleik liðsins en voru ekki á sínum degi. Fengu urmul af tækifærum til að skora en nýttu það ekki. Allison virkaði þreytt og tók lélegar ákvarðanir og Olga hefði oft getað klárað sjálf en ákvað að reyna að koma öðrum í færi. Svo má auðvitað setja spurningamerki við varnarvegginn í marki Keflavíkur.
Dómarinn - 7
Fínasti leikur hjá Konráði. Spurning hvort ÍBV hefði átt að fá víti undir lok leiks en það var erfitt að sjá úr stúkunni.


