Fotbolti.net
Besta deildin
Guðmundur Jónasson
Besta-deild karla
Kerecisvöllurinn
13 gráður smá vindur og sólin skín
Vestri
Vestri
1 - 0
KA
KA
Diego Montiel 34'1 - 0
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Leik lokið!
Þetta er búið góður sigur hjá vestra hér í dag!
Vestri
90. mín
Gult spjald

Fatai Adebowale Gbadamosi

90. mín
Daði í góðu færi en William ver vel frá honum.
90. mín
Gunnar vinnur hér boltann af Hans Viktor og kemur boltanum á Daða sem nær ekki skoti.
90. mín
5 mínútum bætt við
Vestri
86. mín
Gult spjald

Thibang Sindile Theophilius

KA
85. mín
InnDagur Ingi Valsson
ÚtJóan Símun Edmundsson
KA
85. mín
InnValdimar Logi Sævarsson
ÚtBjarni Aðalsteinsson
85. mín
Marcel Römer með spyrnuna yfir vegginn og rétt framjá.
84. mín
Aukaspyrna á mjög góðum stað rétt fyrir utan teig fyrir KA.
Vestri
84. mín
InnGuðmundur Arnar Svavarsson
ÚtAnton Kralj
Anton flottur hér í dag.
80. mín
Jeppe reynir skot frá miðju en það er lélegt og endar beint í fanginu á William í marki KA manna
79. mín
Jakob Snær með bolta fyrir sem endar á Hallgrími sem skýtur framhjá.
74. mín
Fall kemst fyrir fyrirgjöf og KA fær hornspyrnu og Fall liggur hér eftir.
Vestri
73. mín
InnSilas Dylan Songani
ÚtDiego Montiel
Markaskorari Vestra kemur hér útaf flottur leikur hjá honum.
72. mín
Vestramenn vilja fá brot og mögulegt rautt spjald þá en það er flaggöð rangstæða.
69. mín
Spjald á bekkinn hjá KA líklegast markmannsþjálfarinn sem fær þetta spjald.
64. mín
Bjargað á línu
Boltinn kemur inn á Birgi sem á skalla framhjá Guy í markinu og Eiður bjargar á línu.
KA
62. mín
InnJakob Snær Árnason
ÚtRodrigo Gomes Mateo
Hef séð betri frammistöðu frá Rodri.
Vestri
62. mín
InnSergine Modou Fall
ÚtElmar Atli Garðarsson
Fín frammistaða hjá Elmari hér í dag.
60. mín
Lítið að gerast þessa stundina en KA menn byrja seinni hálfleikinn af meiri krafti.
55. mín
Daði með fínan snúning rétt fyrir utan teig, kemur með skot en það er framhjá.
52. mín
Hallgrímur í fínni stöðu rétt inní teig en skýtur framhjá.
KA
51. mín
Gult spjald

Rodrigo Gomes Mateo

Rodri fær gult spjald fyrir að brjóta á Jeppe Pedersen sem var á leiðinni í hraða sókn.
KA
47. mín
Gult spjald

Birgir Baldvinsson

Gult spjald fyrir peysutog.
46. mín
Seinni hálfleikur byrjaður það eru Vestramenn sem byrja með boltann.
KA
46. mín
InnIngimar Torbjörnsson Stöle
ÚtGuðjón Ernir Hrafnkelsson
Skipting í hálfleik
45. mín
Hálfleikstölfræði
Með boltann: 53% - 47%
Marktilraunir: 3-7
Skot á mark: 2-2
Horn: 1-3
Heppnaðar sendingar: 216-186
45. mín
Hálfelikur, hiti í leiknum en ekkert búið að vera skemmtilegasti leikurinn. Vonandi fáum við opnari leik í seinni.
Vestri
45. mín
Gult spjald

Eiður Aron Sigurbjörnsson

Eiður gefur hér aukaspyrnu á hættulegum stað og fær síðan gult, held það sé frekar fyrir kjaft enn ekki brotið sjálft.
45. mín
Stutt horn hérna hjá KA mönnum sem endar hjá Viðari sem potar boltanum í stöngina.
45. mín
Bætt 8 mínútum við.
KA
45. mín
InnViðar Örn Kjartansson
ÚtÁsgeir Sigurgeirsson
Óska Ásgeiri góðs bata.
44. mín
Leikurinn stop hér, Fatai er tekinn niður hér og rekur fótinn í andlitið á Ásgeiri og kallað hér á börur. Ásgeir að ljúka leik hér í dag.
43. mín
Hallgrímur setur boltann framhjá markinu.
41. mín
Cafu Phete að brjóta hér á hættulegum stað, gott færi fyrir Hallgrím hérna!
37. mín
Áhorfendafjöldinn er 315 hér í dag.
Vestri
34. mín
MAAAARK!

Diego Montiel (stoðsending: Jeppe Pedersen)

Jeppe vinnur hér boltann á miðjum vellinum og kemur boltanum út til vinstri á Diego Montiel sem kemur tekur eina gabbhreyfingu og rennir boltanum framhjá William í marki KA manna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

30. mín
Hornspyrna sem Hallgrímur tekur en boltinn fer yfir allann pakkann og endar í markspyrnu.
29. mín
Lítið að gerast þessa stundina.
22. mín
Hallgrímur með skot fyrir utan teig sem Guy Smit ver vel.
17. mín
Dauðafæri!
Léleg sending hjá Guðjóni Erni rétt fyrir utan teig KA manna sem Gunnar Jónas kemst inní en nær ekki að koma boltanum fram hjá William í markinu.
16. mín
Marcel Römer með skot fyrir utan teig en það er framhjá.
10. mín
KA á aukaspyrnu hér á hættulegum stað sem Hallgrímur tekur, hann kemur með fyrirgjöf á Ívar sem skallar boltann yfir.
10. mín
Anton kralj vinnur hér boltann kemur honum á Montiel sem á skopt yfir markið.
8. mín
Rangstæða
Vestri skorar hér en dæmd rangstæða!
7. mín
Hallgrímur reynir skot frá miðju en Guy Smit tekur boltann á kassann.
7. mín
lítið að gerast, liðin skiptast á að halda boltanum.
3. mín
fyrsta hornspyrna leiksins eftir gott spil hjá vestramönnum.
1. mín
Þetta er farið af stað!

KA byrjar með boltann, vonandi fáum við skemmtilegan leik hér í dag.
Fyrir leik
Leikmenn að labba inn á völlinn!
Fyrir leik
Geggjað veður fyrir vestan, 13 gráður smá vindur og sólin skín.
Fyrir leik
2,80 á Vestra á epic á heimavelli, hvar er Auðunn Blöndal og upptökukrúið úr Tekinn?
Fyrir leik
Byrjunarlið KA
Mynd: Elvar Geir Magnússon

Fyrir leik
Byrjunarlið Vestra
Mynd: Elvar Geir Magnússon

Fyrir leik
Byrjunarliðin klár
Tveir leikmenn Vestra eru í leikbanni. Það eru þeir Vladimir Tufegdzic og Gustav Kjeldsen.

Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, gerir tvær breytingar á sínu liði frá tapinu gegn KR. Fyrir þá Gustav og Túfa koma þeir Elmar Atli Garðarsson og Morten Hansen inn í liðið. Elmar Atli er að byrja sinn fyrsta leik eftir leikbannið, sem hann fékk vegna brota á veðmálareglum, sem hann afplánaði í byrjun móts.

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir eina breytingu á sínu liði frá jafnteflinu gegn Stjörnunni. Rodri kemur inn í liðið fyrir Jakob Snæ Árnason sem tekur sér sæti á bekknum. Viðar Örn Kjartansson, Kári Gautason og Dagur Ingi Valsson snúa aftur á bekkinn eftir meiðsli en þeir Hrannar Björn Steingrímsson og Steinþór Már Auðunsson eru ekki með. William Tönning stendur áfram vaktina í markinu.
Fyrir leik
Tókum okkur saman í andlitinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ívar Örn Árnason, fyrirliði KA, ræddi breytinguna á KA liðinu í viðtali eftir leikinn gegn Stjörnunni. KA hefur tekið átta stig úr síðustu fjórum leikjum og allt annað að sjá liðið.

Eftir tapið á móti Fram í bikarnum, hvað gerðist?

„Við bara tókum okkur saman í andlitinu, þetta var ekki flóknara en það. Hver og einn leikmaður þurfti að líta í spegil og við fórum bara í grunninn. Við vorum byrjaðir að líta of stórt á okkur, örugglega svipað og mörg lið hafa lent í. Við erum bestir og svo erum við verstir þegar við erum sjálfum okkur verstir. Þetta er bara grunnvinnan, menn þurfa að hlaupa til baka, þurfa að sinna varnarvinnunni, ef við gerum það þá vinnum við boltann í betri stöðum, hærra á vellinum og þá skorum við fleiri mörk. Það bara segir sig sjálft. Við bara gleymdum þessu (grunngildunum), ætluðum að vera einhverjir lúxusleikmenn og KA er bara ekki þannig félag, við þurfum að leggja inn vinnuna," sagði fyrirliðinn.

KA er með tólf stig, sjö stigum meira en á sama tímapunkti í fyrra. Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var spurður út í stöðuna á liðinu eftir tíu umferðir.

„Ég er ánægður með stöðuna, ég sagði í mörgum viðtölum að veturinn var erfiður, vorum með 9-11 menn meidda, misstum góða leikmenn og áttum erfitt með að fá einhverja í staðinn. Við komum svolítið haltrandi inn í tímabilið og fengum skelli; áttum mikið af erfiðum liðum til að byrja með. Svo erum við búnir að vinna okkur vel út úr þessu. Nú erum við sjö stigum meira en í fyrra eftir jafnmarga leiki, það var ekki frábær staða. Deildin er bara að spilast allt öðruvísi, rosalega jöfn deild og allir virðast geta unnið alla, rosa mikið af heimasigrum. Við erum bara á ágætis stað og þurfum að halda áfram að bæta okkur," sagði Haddi.
Fyrir leik
KA ósigrað í síðustu fjórum
Stigin eru farin að malla inn hjá KA. Liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Stjörnunni í síðustu umferð, áður en landsleikjaglugginn skall á. Hallgrímur Jónasson þjálfari liðsins hefur gert vel í að koma liðinu á ról eftir erfiða byrjun á tímabilinu.
Fyrir leik
Vestri hefur tapað þremur af síðustu fjórum
Eftir stórkostlega byrjun á tímabilinu hefur hallað undan fæti hjá Vestra í síðustu leikjum. Liðið hefur tapað síðustu tveimur leikjum og þremur af síðustu fjórum leikjum. Liðið er í fimmta sæti sem stendur, fjórum stigum frá toppsætinu.
Fyrir leik
Staðan

Fyrir leik
Tveir Vestramenn í banni
Tveir leikmenn Vestra fengu sitt fjórða gula spjald í síðustu viku og verða því í banni gegn KA í dag. Það eru varnarmaðurinn Gustav Kjeldsen og sóknarmaðurinn Vladimir Tufegdzic.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Umferðin hófst í gær
Stjarnan vann 3-2 sigur gegn Val. Það eru fjórir leikir á dagskrá þennan sunnudaginn og umferðinni lýkur svo á morgun.

Stjarnan 3 - 2 Valur
1-0 Jóhann Árni Gunnarsson ('17 )
1-1 Patrick Pedersen ('26 )
2-1 Emil Atlason ('62 )
3-1 Guðmundur Baldvin Nökkvason ('68 )
3-2 Patrick Pedersen ('77 )
Rautt spjald: Bjarni Mark Antonsson, Valur ('78) Lestu um leikinn

sunnudagur 15. júní
14:00 Vestri-KA (Kerecisvöllurinn)
16:00 ÍBV-Breiðablik (Þórsvöllur Vey)
19:15 Fram-FH (Lambhagavöllurinn)
19:15 Afturelding-ÍA (Malbikstöðin að Varmá)

mánudagur 16. júní
19:15 Víkingur R.-KR (Víkingsvöllur)
Fyrir leik
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðstoðardómarar: Eysteinn Hrafnkelsson og Antoníus Bjarki Halldórsson. Fjórði dómari: Guðni Páll Kristjánsson.
Fyrir leik
Velkomin með okkur til Ísafjarðar!
Hér verður bein textalýsing frá leik Vestra og KA í 11. umferð Bestu deildarinnar en flautað verður til leiks klukkan 14.

Mynd: Eyþór Bjarnason

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.