Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
3 - 2
KR
KR
Helgi Guðjónsson (víti) 12'1 - 01 - 130' Jóhannes Kristinn Bjarnason (víti)Karl Friðleifur Gunnarsson 43'2 - 12 - 245' Matthias Præst NielsenGunnar Vatnhamar 49'3 - 2
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Leik lokið!
Víkingar komnir á toppinn!
Jóhann Ingi flautar til leiksloka, Víkingur fer með sigur af hólmi og koma sér á topp deildarinnar. 3-2 lokatölur í þessum stórskemmtilega leik.
92. mín
Víkingar fá aukaspyrnu á milli vítateigs og hliðarlínu.
91. mín
KR-ingar fá hornspyrnu, en ekkert kemur úr henni.
90. mín
Fjórum mínútum bætt við
Fáum við jöfnunarmark?
KR
88. mín
InnAtli Hrafn Andrason
ÚtAtli Sigurjónsson
KR
88. mín
Gult spjald

Aron Sigurðarson

Samstuð við Gylfa og fær að líta gula spjaldið, Aron seinni í boltann.
83. mín
Daníel Hafsteinsson liggur nú niðri, Víkingar þó búnir með allar skiptingar. Daníel getur haldið leik áfram.
Víkingur R.
83. mín
InnAli Basem Almosawe
ÚtStígur Diljan Þórðarson
Stígur neyðist til að fara af velli
82. mín
Stígur Diljan liggur niðri og þarfnast aðhlynningar, 10 Víkingar á vellinum þessa stundina.
79. mín
KR fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu en Víkingar skalla frá.
75. mín
RÉTT YFIR!
Atli Sigurjóns sker boltann út í teiginn á Eið Gauta sem setur boltann rétt yfir mark Víkings. Frábær sókn KR-inga!
73. mín
Illa farið með frábæra stöðu!
Erlingur Agnars sleppur í gegn og þrír Víkingar keyra í átt að marki. Erlingur sendir boltann fyrir markið en Ástbjörn Þórðar bjargar á síðustu stundu.
KR
73. mín
InnGuðmundur Andri Tryggvason
ÚtMatthias Præst Nielsen
72. mín
Daníel Hafsteins reynir skot frá miðju en boltinn yfir mark gestanna.
Víkingur R.
71. mín
InnErlingur Agnarsson
ÚtValdimar Þór Ingimundarson
Víkingur R.
71. mín
InnNikolaj Andreas Hansen
ÚtMatthías Vilhjálmsson
KR
71. mín
Gult spjald

Matthias Præst Nielsen

70. mín
Gylfi setur hann í stöngina!
Gylfi lætur vaða með vinstri fyrir utan teig og boltinn í utanverða stöngina!
Víkingur R.
68. mín
Gult spjald

Stígur Diljan Þórðarson

Stígur Diljan flaggaður rangstæður og sparkar boltanum í burtu. Jóhann Ingi finnst það ekki sniðugt og gefur Stígi gult.
Víkingur R.
65. mín
Gult spjald

Peter Oliver Ekroth

Ekroth fer ansi harkalega í Ástbjörn og fær verðskuldað gult spjald.
60. mín
Víkingur R.
59. mín
InnStígur Diljan Þórðarson
ÚtViktor Örlygur Andrason
56. mín
Aron Sig tekur spyrnuna en boltinn framhjá marki Víkinga.
Víkingur R.
55. mín
Gult spjald

Róbert Orri Þorkelsson

Róbert Orri brýtur á Præst og fær að líta gula spjaldið, KR-ingar fá aukaspyrnu rétt fyrir utan D-bogann.
54. mín
Hafliði með myndavélina á lofti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
52. mín
Góð sókn KR-inga, Atli Sigurjóns fær boltann í góðri stöðu en marktilraun hans fer hátt yfir mark Víkinga.
Víkingur R.
49. mín
VATNHAMARINN STANGAR HANN INN!

Gunnar Vatnhamar (stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson)

Gylfi tekur hornspyrnu beint á kollinn á Gunnari Vatnhamar sem skallar boltann inn af stuttu færi.
Víkingar komnir yfir í þriðja sinn!
48. mín
Sláin!
Oliver Ekroth með fastann skalla í þverslánna eftir frábæra fyrirgjöf Gylfa. Víkingar banka á hurðina hér í upphafi síðari hálfleiks.
47. mín
Heimamenn fá hornspyrnu, Matti Villa skallar að marki en Hjalti kemur boltanum frá.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Gestirnir byrja með boltann.
Víkingur R.
46. mín
InnDavíð Örn Atlason
ÚtKarl Friðleifur Gunnarsson
Sá umdeildi tekinn af velli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
45. mín
Innsýn hjá Bö
45. mín
Menn missáttir
45. mín
Þvílík skemmtun
Jóhann Ingi flautar til hálfleiks, rosalegur fyrri hálfleikur sem við höfum fengið hér í Víkinni.
KR
45. mín
ÞETTA ER ÞVÆLA!

Matthias Præst Nielsen (stoðsending: Jóhannes Kristinn Bjarnason )

Jóhann Kristinn keyrir frábærlega upp völlinn og rennir boltanum í gegn á Præst sem klárar fagmannlega.

Þvílíkur leikur hérna á Víkingsvelli.
Víkingur R.
43. mín
AUÐVITAÐ SKORAR HANN!

Karl Friðleifur Gunnarsson (stoðsending: Matthías Vilhjálmsson)

KR-ingar missa boltann á hættulegum stað, Matthías Vilhjálmsson þræðir Karl Friðleif í gegn sem klárar af miklu öryggi!

Karl Friðleifur sem að margra mati (og mínu) á að hafa verið rekinn af velli skorar auðvitað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

41. mín
Karl Friðleifur brýtur á Aroni Sig og KR fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu. Karl verður að fara varlega þar sem hann er á gulu spjaldi.
39. mín
KR ætlaði að spila í öðrum treyjum
KR ætlaði að spila í fjólubláu varatreyjunum sínum en fékk það ekki þar sem treyjur liðanna voru taldar of líkar og það þurfti að bruna eftir hvítu treyjunum.

Það vekur athygli að Gabríel Hrannar Eyjólfsson leikur í treyju númer 19 en er venjulega í treyju númer 21.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR
33. mín
Gult spjald

Ástbjörn Þórðarson

Ástbjörn fer í bókina góðu fyrir mótmæli.
KR
33. mín
Atli Sigurjóns í frábæru færi!

Eiður Gauti Sæbjörnsson

Atli kominn í gegn, lætur vaða en boltinn í varnarmann Víkinga. Þá tekur Eiður Gauti á því að fara harkalega í Vatnhamar og dæmt brot.
KR
30. mín
JÓHANNES JAFNAR!

Jóhannes Kristinn Bjarnason

Sendir Ingvar í rangt horn og boltinn út við stöng.
Víkingur R.
28. mín
VER Á LÍNU - KR FÆR VÍTI!

Karl Friðleifur Gunnarsson

Gabríel Hrannar með skot á leiðinni í bláhornið en Karl Friðleifur ver boltann með höndum á línu. Þetta er bara rautt!

Ingvar er fyrir aftan Karl en átti aldrei möguleika að verja skotið.
21. mín
KR-ingar leika sér að eldinum!
Jóhannes Kristinn skallar boltann til baka en Valdimar Þór kemst á milli og sleppur í gegn. Skottilraun Valdimars þó hræðileg og Halldór Snær í engum vandræðum með að handsama boltann.
18. mín
KR fær hornspyrnu, taka það stutt. Atli Sigurjóns gefur fyrir á Finn Tómas sem skallar boltann framhjá marki heimamanna.
15. mín
KR-ingar pressa Víkinga eins og óðir menn.
Víkingur R.
12. mín
HELGI ÖRUGGUR!

Helgi Guðjónsson

Bíður aðeins og sendir síðan Halldór Snæ í rangt horn.
11. mín
VÍKINGAR FÁ VÍTI!
Valdimar Þór sleppur aleinn i gegn, fer framhjá Halldóri Snæ sem fer í Valdimar og Jóhann bendir á punktinn.

Háa varnarlína KR klikkar þarna, Valdimar aleinn í gegn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

11. mín
Stórhætta
Gylfi með hættulega fyrirgjöf sem fer af varnarmanni og Halldór Snær ver yfir markið!
Þarna munaði litlu.
10. mín
Víkingar í góðu færi!
Karl Friðleifur fær boltann við vítateig en er of lengi að athafna sig, tekur skotið sem fer í varnarmann og í hornspyrnu.
8. mín
Uppstilling liðanna
Ingvar
Vatnhamar - Ekroth - Róbert Orri
Karl Friðleifur - Daníel H. - Gylfi - Helgi
Valdimar - Matthías - Viktor Örlygur

Aron Sig (f)- Eiður Gauti - Atli Sigurjónsson
Præst
Akexander Helgi - Jóhannes Kristinn -
Gabríel Hrannar - Finnur - Hjalti - Ástbjörn
Halldór Snær (m)
4. mín
Aron Sig með frábæra sendingu í gegn en Præst nær ekki til knattarins, en úr verður hornspyrna.
1. mín
Stöngin!
Jóhannes Kristinn smellir boltanum í stöngina beint úr hornspyrnu KR.
1. mín
Gestirnir fá hornspyrnu eftir 30 sekúndur, alvöru byrjun.
1. mín
Þetta er farið af stað!
Heimamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Hafliði er með myndavélina á lofti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Styttist
Liðin trítla inn á völlinn, vel mætt í stúkuna, þetta stefnir í veislu sýnist mér.
Fyrir leik
Hæ Hó jibbí jey og jíbbí jajey, það er epic early win á KR - stuðull 4,00. Það virkar þannig að ef KR kemst einu marki yfir, einhverntíman í leiknum, þá fá menn það greitt út, óháð því hvernig leikurinn endar. Þetta er ekki grín.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi - Fjórar breytingar hjá heimamönnum
Víkingar gera fjórar breytingar frá síðasta leik. Oliver Ekroth kemur inn og tekur við fyrirliðabandinu, auk þess sem Karl Friðleifur, Matthías Vilhjálmsson og Viktor Örlygur byrja.

KR gerir tvær breytingar. Alexander Helgi er mættur aftur eftir meiðsli og Atli Sigurjónsson byrjar eftir góða innkomu gegn Vestra. Guðmundur Andri fer á bekkinn og Aron Þórður er í leikbanni.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Nýr maður í teymi Víkings
Víkingur tilkynnti fyrir rúmri viku ráðningu á Brynjari Birni Gunnarssyni í þjálfarateymi meistaraflokks karla. Hann var tilkynntur sem meðþjálfari Sölva Geirs Ottesen fyrir komandi leiki í Sambandsdeildinni.

„Fyrst og fremst erum við að ráða Brynjar Björn út af því hversu öflugur þjálfari hann er, og hann getur nýst okkur mjög vel í deildinni líka. Það er skýr krafa af hálfu UEFA að í Evrópukeppnum þurfa lið að vera með aðalþjálfara sem eru með gilda UEFA Pro þjálfaragráðu. Það er bara staðan," segir Kári Árnason yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Óskar lætur sína menn hundelta Víkinga
Óskar Hrafn sat fyrir svörum um leik kvöldsins við fótbolti.net í gær. Þá segist hann uppleggið vera að pressa Víkinga stíft.

,,Víkingur er auðvitað með gríðarlega öflugt lið, en við erum svo sem ekkert að fara breyta okkur þannig lagað. Víkingur mun ekki fara jafn langt niður á völlinn og Vestri varnarlega, ég held það sé alveg ljóst."

,,Víkingar eru góðir að halda boltanum þegar þeir geta fengið að stilla sér upp. Grunnstefið varnarlega er að fara agressíft á þá og hundelta þá út um allan völl."

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Tveir í banni - KR endurheimtir leikmenn úr meiðslum
Þeir Tarik Ibrahimagic og Aron Þórður Albertsson verða ekki með í kvöld en þeir eru báðir í leikbanni vegna uppsafnaðra gulra spjalda.

Þá er möguleiki að Hrafn Tómasson, sem sleit krossband í fyrstu umferð Íslandsmótsins 2024, snúi aftur á völlinn í kvöld eftir rúmlega árs fjarveru.

Alexander Rafn, Alexander Helgi og Kristófer Orri eru allir að snúa til baka eftir meiðsli og gætu komið á bekk KR í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Tölfræðitaflan
Þó að það sé að lokum stöðutaflan sem ræður ferðinni, er alltaf gaman að rýna í hinar ýmsu tölfræðitöflur. KR-ingar koma þar ansi vel út og ef tölfræðin réði væru þeir í toppbaráttu.

xPoints - Áætlaður stigafjöldi

Mælir hversu mörg stig lið hefði átt að fá út frá xG beggja liða í leik.

KR-ingar- stökkva upp um sex sæti og bæta við sig tæpum fjórum stigum samkvæmt áætlaðum stigafjölda.
Víkingur R.- heldur stöðu sinni í 2. sæti deildarinnar en þeir eru þó með eitt stig meira en áætlaður stigafjöldi gerir ráð fyrir.

Mynd: Wyscout skjáskot

xG - Áætluð mörk

KR og Víkingur eru liðin með hæstu xG tölfræðina í deildinni, því má búast við nóg af færum í kvöld.

KR- hefur skorað meira en gert er ráð fyrir, alls hafa þeir skorað 28 mörk í 10 leikjum.
Víkingur R.- þurfa að nýta færin betur, en þeir hafa skorað 19 mörk en eru með xG upp á 21.7.

Mynd: Wyscout skjáskot

Posession - Með bolta

KR- er það lið sem heldur langmest í boltann í allri deildinni, um 65% í hverjum leik.
Víkingur R.- heldur í boltann að meðaltali 55% í hverjum leik.

Mynd: Wyscout skjáskot
Fyrir leik
KR-ingar sneru taflinu við
Fyrir leik
Víkingar töpuðu gegn erkifjendunum
Fyrir leik
Deildin þétt
Sæti - Lið - Leikir - Sigrar - Jafntefli - Töp - Stig

1 Breiðablik - 11 - 7 - 1 - 3 - 22
2 Víkingur R. - 10 - 6 - 2 - 2 - 20
3 Vestri - 11 - 6 - 1 - 4 - 19
4 Valur - 11 - 5 - 3 - 3 - 18
5 Stjarnan - 11 - 5 - 2 - 4 - 17
6 Fram - 11 - 5 - 0 - 6 - 15
--------------------------------------------------
7 Afturelding - 11 - 4 - 2 - 5 - 14
8 ÍBV - 11 - 4 - 2 - 5 - 14
9 KR - 10 - 3 - 4 - 3 - 13
10 KA - 11 - 3 - 3 - 5 - 12
--------------------------------------------------
11 FH - 11 - 3 2 6 11
12 ÍA - 11 - 3 0 8 9
Fyrir leik
Stórleikur!
Heilir og sælir lesendur góðir, verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Víkingsvelli. Hér í kvöld tekur Víkingur R. á móti KR í lokaleik 11. umferðar Bestu-deildar karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.