Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
3 - 2
KR
KR
Helgi Guðjónsson (víti) 12'1 - 01 - 130' Jóhannes Kristinn Bjarnason (víti)Karl Friðleifur Gunnarsson 43'2 - 12 - 245' Matthias Præst NielsenGunnar Vatnhamar 49'3 - 2
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Kæri Jóhann Ingi þetta var rautt

Hvað réði úrslitum?

KR-ingar pressuðu Víkinga eins og enginn væri morgundagurinn. Þegar Víkingsliðið náði að komast í gegnum pressu KR skapaðist mikil hætta og hefðu þeir hæglega getað skorað fleiri mörk. KR-ingar komust oft í álitlegar stöður en þegar á hólminn var komið vantaði upp á lykilsendinguna, það voru ekkert voða mikið um færi KR-inga þó svo að spilamennskan hafi verið góð.

Bestu leikmenn

1. Jóhannes Kristinn Bjarnason

Jói var frábær í dag, öruggur af punktinum og átti frábæra stoðsendingu.

2. Gylfi Þór Sigurðsson

Gylfi virkilega flottur í dag, lagði upp á Gunnar Vatnhamar, átti skot í stöng ásamt því að skapa fleiri hættuleg færi.

Atvikið

Jú ætli það sé ekki þegar Karl Friðleifur varði skottilraun Gabríels Hrannars sem var á leiðinni í netið. Karl fékk dæmt á sig víti en slapp með gult spjald.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar eru á toppi deildarinnar með 23 stig, einu stigi meira en Breiðablik. KR eru í níunda sæti deildarinnar með 13 stig.

Vondur dagur

Erfitt að velja einhvern sem átti slakan dag. Að einhverju leyti Karl Friðleifur en aftur á móti snilldarútspil hjá honum fyrst að hann slapp með gula spjaldið. Halldór Snær í marki KR bauð upp á vítadóminn er hann braut á Valdimar Þór í upphafi leiks.

Dómarinn - 2

Í mínum bókum (eflaust í fleiri bókum ef út í það er farið) er alltaf rautt spjald þegar varnarmaður ver marktilraun með hendi þá er það rautt spjald. Svo átti Ingvar ekki möguleika að verja skotið þó svo að Jóhann Ingi segir að hann hafi verið fyrir aftan Karl. Efast um að Víkingur hafi farið með sigur af hólmi hefði Karl Friðleifur rekinn af velli. Þá var einnig fyrsta víti leiksins frekar soft en þó skiljanlegri dómur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.