Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
Besta-deild karla
ÍA
LL 0
3
Stjarnan
Besta-deild karla
KA
LL 0
2
Víkingur R.
Lengjudeild karla
Keflavík
LL 0
0
ÍR
Lengjudeild karla
Þór
LL 2
0
Selfoss
FH
2
0
Vestri
Sigurður Bjartur Hallsson '32 1-0
Björn Daníel Sverrisson '48 2-0
22.06.2025  -  14:00
Kaplakrikavöllur
Besta-deild karla
Aðstæður: Skýjað 13° og rennislétt gras
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 867
Maður leiksins: Björn Daníel Sverrisson (FH)
Byrjunarlið:
13. Mathias Rosenörn (m)
2. Birkir Valur Jónsson
4. Ahmad Faqa
7. Kjartan Kári Halldórsson ('84)
9. Sigurður Bjartur Hallsson ('84)
10. Björn Daníel Sverrisson (f) ('75)
21. Böðvar Böðvarsson
22. Ísak Óli Ólafsson
23. Tómas Orri Róbertsson ('64)
33. Úlfur Ágúst Björnsson
37. Baldur Kári Helgason
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
11. Bragi Karl Bjarkason ('84)
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('75)
17. Dagur Örn Fjeldsted
18. Einar Karl Ingvarsson ('64)
27. Jóhann Ægir Arnarsson ('84)
32. Gils Gíslason
34. Óttar Uni Steinbjörnsson
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Emil Pálsson
Kristján Finnbogi Finnbogason
Guðmundur Jón Viggósson
Andres Nieto Palma
Kjartan Henry Finnbogason
Benjamin Gordon Mackenzie

Gul spjöld:
Tómas Orri Róbertsson ('20)
Kjartan Kári Halldórsson ('52)
Böðvar Böðvarsson ('87)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Öruggur sigur hjá FH í dag. Eftir að þeir skora var þetta eiginlega aldrei í hættu.

Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.
91. mín Gult spjald: Gustav Kjeldsen (Vestri)
91. mín
Þrjár mínútur í uppbót.
87. mín Gult spjald: Böðvar Böðvarsson (FH)
Fyrir leiktöf.
85. mín
Sláin! FH aftur í góðu færi, Einar Karl með skotið í slánna!
84. mín
Inn:Jóhann Ægir Arnarsson (FH) Út:Sigurður Bjartur Hallsson (FH)
84. mín
Inn:Bragi Karl Bjarkason (FH) Út:Kjartan Kári Halldórsson (FH)
83. mín
DAUÐAFÆRI!! FH vinnur boltann ofarlega á vellinum og Bjarni Guðjón leggur boltann inn fyrir á Úlf. Hann er þá einn gegn markmanni í dauðafæri en Smit ver frá honum.
80. mín
Diagne reynir skotið fyrir utan teig, en þessi hátt yfir.
79. mín
Kjartan með skemmtilega takta, kemur inn á völlinn af kantinum og lætur vaða. Fast skot af löngu færi en Smit sér við honum.
77. mín
Kjartan Kári með skotið úr spyrnunni og þessi fer í slánna og aftur fyrir markið. Flott spyrna!
76. mín
FH með aukaspyrnu á hættulegum stað
75. mín
Inn:Bjarni Guðjón Brynjólfsson (FH) Út:Björn Daníel Sverrisson (FH)
74. mín
Inn:Kristoffer Grauberg (Vestri) Út:Jeppe Pedersen (Vestri)
74. mín
Inn:Abdourahmane Diagne (Vestri) Út:Sergine Fall (Vestri)
74. mín
FH með annað horn og alvöru skallatennis inn í teig. Það verður hinsvegar ekkert úr þessu, bara markspyrna.
71. mín
FH með horn á fjær og Sigurður nær skallanum, en framhjá.
67. mín
Virkilega flott spil hjá FH, Björn Daníel og Kjartan að tengja mjög vel. Sóknin rennur svo út í sandinn þegar Birkir Valur kemur með fyrirgjöf sem Smit kemst inn í.
64. mín
Inn:Einar Karl Ingvarsson (FH) Út:Tómas Orri Róbertsson (FH)
63. mín
Leikurinn stöðvaður, því Tómas Orri lyftir boltanum í trýnið á Jeppe. Hann þarf smá tíma að jafna sig á þessu.
57. mín
Gunnar Jónas með erfitt skot fyrir utan teig. Hann nær ekki alveg að stýra boltanum og þetta fer framhjá.
55. mín
Inn:Silas Songani (Vestri) Út:Anton Kralj (Vestri)
Davíð eitthvað að reyna að hrista í þessu.
55. mín
Inn:Emmanuel Duah (Vestri) Út:Vladimir Tufegdzic (Vestri)
55. mín
Inn:Guðmundur Arnar Svavarsson (Vestri) Út:Elmar Atli Garðarsson (Vestri)
52. mín Gult spjald: Kjartan Kári Halldórsson (FH)
Annað skiptið sem Smit er að fiska gult, Kjartan Kári fer aðeins í hann en mér sýnist Smit hafa gert rosa mikið úr þessu og Jóhann féll í gildruna.
51. mín Gult spjald: Jeppe Pedersen (Vestri)
50. mín
Björn Daníel reynir að lyfta boltanum yfir Guy Smit af svona 40 metra færi, það gekk ekkert sérlega vel. Smit tekur þennan bolta auðveldlega.
48. mín MARK!
Björn Daníel Sverrisson (FH)
Stoðsending: Kjartan Kári Halldórsson
Galopinn inn í teig! Sóknin hélt bara áfram eftir hornið sem FH átti, Kjartan Kári með boltann úti vinstra meginn og gefur fyrir. Björn Daníel er með fullt af plássi og stangar boltann í netið.

2-0!
47. mín
Björn Davíel með virkilega góða sendingu í gegn og Sigurður Bjartur kominn í góða stöðu, skotið hans fer hinsvegar í varnarmann og afturfyrir. Horn fyrir FH.

Böðvar tekur hornið, fastur bolti sem er að skrúfast að markinu og Guy Smit þar f að blaka þessu frá.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
45. mín
Hálfleikur
FH leiðir í hálfleik eftir stórglæsilegt mark frá Sigurði Bjart. Drepleiðinlegur leikur fram að því, en markið kveikti aðeins á mönnum og skemmtunin búin að vera betri eftir það. Vonandi heldur það áfram í seinni.
45. mín
+1
Böðvar með góðan bolta inn í teig og Úlfur nær skallanum úr góðu færi. Hann nær ekki að stýra boltanum á markið og Vestri fær markspyrnu.
45. mín
Uppbótartíminn er ein mínúta.
41. mín Gult spjald: Sergine Fall (Vestri)
Flottur bolti inn fyrir hjá Gunnari og Fall næstum sloppinn í gegn. Aftur kemur Rosenörn út og sópar þetta upp. Fall skilur aðeins eftir á Rosenörn og uppsker gult fyrir það.
39. mín
FH með horn, en í þetta skipti kemur ekkert úr því hjá þeim.
35. mín
Frábær varsla! Montiel með boltann úti vinstra meginn, tekur eina snögga hreyfingu inn á völlinn og neglir boltanum á markið. Rosenörn gerir mjög vel í að verja þetta!

Þetta var drepleiðinlegur leikur fyrir markið, en það virðist vera að þetta mark hafi kveikt í mönnum.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín MARK!
Sigurður Bjartur Hallsson (FH)
Stoðsending: Björn Daníel Sverrisson
ÞVÍLÍKT MARK!!!!!! Björn Daníel er fljótur að taka innkast á Sigurð. Hann lyftir boltanum yfir einn varnarmanninn, fer framhjá honum og neglir svo boltanum í markið.

Þvílíkir taktar hjá Sigurði þarna!
26. mín
Langur bolti fram og Fall næstum sloppinn einn í gegn. Rosenörn kemur hinsvegar vel út úr markinu og sópar þetta upp.
20. mín Gult spjald: Tómas Orri Róbertsson (FH)
Montiel ætlar í skyndisókn eftir hornið hjá FH en Tómas hakkar hann niður.
20. mín
Böðvar með spyrnuna sem fer á Úlf, hann nær skalla og svo skoti, en bæði í varnarmann.
20. mín
FH fær annað horn, þeir náðu að skapa eitthvað síðast úr því.
18. mín
Jeppe Pedersen með skot af löngu færi en þessi fer framhjá.
15. mín
Vestramenn með sína fyrstu sókn, hún var svo sem ekki merkileg, en endar með að þeir lyfta boltanum inn á teiginn og Rosenörn grípur hann.
13. mín
Stuðningurinn í stúkunni er flottur hér í Hafnarfirði. Þá sérstaklega Vestfirðingarnir, sem eru bæði fjölmennir og háværir. Alls ekki sjálfgefið að lið að vestan hafi svona stuðning í höfuðborginni.
8. mín
Rétt yfir! Ekkert kom úr fyrsta horninu, nema bara annað horn.

Þá taka þeir þetta stutt, og Tómas Orri lyftir boltanum inn í teig, frábær fyrirgjöf beint á Ísak sem á skalla rétt yfir markið!
7. mín
FH fær fyrsta horn leikins.
6. mín
Mikil stöðubarátta hér í byrjun, engin flugeldasýning strax.
1. mín
Leikur hafinn
Jóhann flautar leikinn á!
Fyrir leik
Þegar Vestri spilar þá er búist við þéttum og skipulögðum varnarleik. Mikilvægur grasleikur í Kapplakrika og undir 2.5 mörk er á stuðlinum 2.20 á Epic.
Fyrir leik
Byrjunarlið Vestra: Daði meiddur - Tveir í banni

Davíð Smári Lamude þjálfari Vestra gerir þrjár breytingar á sínu liði frá síðasta leik, sem var 2-0 bikarsigur á Þór. Guy Smit kemur aftur í markið en Benjamin Schubert hefur spilað alla bikar leikina. Fatai Gbadamos og Thibang Phete eru ekki í hóp í dag þar sem þeir eru báðir í banni, en Jeppe Pedersen og Sergine Fall koma inn fyrir þá.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Byrjunarlið FH: Ísak og Úlfur byrja

Heimir Guðjónsson þjálfari FH gerir tvær breytingar á sínu liði, sem tapaði fyrir Fram í síðustu umferð. Ísak Óli Ólafsson og Úlfur Ágúst Björnsson koma inn í liðið. Dagur Örn Fjeldsted sest á bekkinn, en Grétar Snær Gunnarsson er í leikbanni.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Spáin Andrea Rut Bjarnadóttir, leikmaður toppliðs Breiðabliks í Bestu deild kvenna, spáir í leiki umferðarinnar.

FH 2- 2 Vestri
Þetta verður hörkuleikur, Vestri búnir að gera flotta hluti í deildinni en FH alltaf líklegir í krikanum. Ég spái þessum leik því 2-2 jafntefli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarinn Jóhann Ingi Jónsson verður með flautuna í þessum leik, en honum til aðstoðar verða Ragnar Þór Bender og Þórður Arnar Árnason.

Varadómari er Guðmundur Páll Friðbertsson og eftirlitsmaður KSÍ er Hjalti Þór Halldórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Vestri vann síðast Liðin mættust síðast í 2. umferð deildarinnar þar sem Vestri vann leikinn 1-0. Það var Daði Berg Jónsson sem skoraði markið, en hann hefur verið að glíma við meiðsli og ólíklegt að hann spili í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Frábært sumar hjá Vestra Vestri er í 3. sæti deildarinnar eftir 11 leiki, með 19 stig. Þeir eru einnig komnir áfram í undanúrslit Mjólkurbikarsins þar sem þeir munu mæta Fram á heimavelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Hafnfirðingar þurfa sigra FH er í fallsæti þegar ellefu leikir eru búnir af deildinni. 11. sæti með 11 stig. Þeir hafa aðeins náð í eitt stig af síðustu sex leikjum, og því algjörlega nauðsynlegt að ná í stig í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Besta deildin heilsar Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik FH og Vestra í 12. umferð Bestu deild karla.

Leikurinn hefst klukkan 14:00 og verður spilaður á Kaplakriavelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
12. Guy Smit (m)
2. Morten Ohlsen Hansen
3. Anton Kralj ('55)
6. Gunnar Jónas Hauksson
7. Vladimir Tufegdzic ('55)
10. Diego Montiel
22. Elmar Atli Garðarsson (f) ('55)
28. Jeppe Pedersen ('74)
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson
40. Gustav Kjeldsen
77. Sergine Fall ('74)
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
1. Benjamin Schubert (m)
14. Birkir Eydal
15. Guðmundur Arnar Svavarsson ('55)
16. Abdourahmane Diagne ('74)
19. Emmanuel Duah ('55)
23. Silas Songani ('55)
29. Kristoffer Grauberg ('74)
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Jón Hálfdán Pétursson
Ívar Pétursson
Vladan Djogatovic
Vignir Snær Stefánsson
Ferran Montes I. Corominas
Jón Ólafur Ragnarsson

Gul spjöld:
Sergine Fall ('41)
Jeppe Pedersen ('51)
Gustav Kjeldsen ('91)

Rauð spjöld: