Fotbolti.net
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
Lengjudeild kvenna
Þórsvöllur Vey
Fínt fótboltaveður en smá vindur
ÍBV
ÍBV
5 - 0
Fylkir
Fylkir
Allison Patricia Clark 12'1 - 0Allison Patricia Clark 15'2 - 0Viktorija Zaicikova 42'3 - 0Allison Grace Lowrey 45'4 - 0Helena Hekla Hlynsdóttir 83'5 - 0
Dómari: Magnús Þór Jónsson

SKÝRSLAN: Einstefna í Eyjum

Hvað réði úrslitum?

ÍBV var einfaldlega mun betra liðið og hefðu hæglega getað unnið stærri sigur. Gæðamunurinn var það mikill að þetta var aldrei spurning hvort liðið tæki þrjú stig í kvöld.

Bestu leikmenn

1. Olga Sevcova

Hún er bara svo góð í fótbolta. Sóknarleikur ÍBV fer 90% plús í gegnum hana. Hún á þátt í flest öllum mörkum ÍBV og í kvöld var engin breyting á því.

2. Allison Patricia Clark

Hún gerir tvö mörk báðar eftir stoðsendingar frá Olgu. Þær virðast vera að ná mjög vel saman. Hún var sífellt ógnandi, átti til að mynda frábært skot sem fór í þverslánna og er mjög vinnusöm.

Atvikið

Í stöðunnu 2-0 virtist sem Olga átti að fá víti en maður hafði á tilfinningunni að dómarinn vildi ekki dæma víti gegn brothættu liði Fylkis.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV eru áfram á toppnum þegar deildin er hálfnuð með 22. stig á meðan Fylkir eru áfram í níunda sæti með 6. stig eftir sjö tapleiki í röð.

Vondur dagur

Nokkurn veginn allt Fylkis liðið fyrir utan markmanninn. Bergljót kom í veg fyrir mun stærra tap með flottum vörslum. Mjög erfitt að taka út einhverja eina vegna þess að gæðamunurinn á liðinum er bara það mikill.

Dómarinn - 7

Flottur leikur hjá Magnúsi og hafði góð tök á leiknum. Eina spurningamerkið er áðurnefnd vítaspyrna.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.