Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
Njarðvík
3
1
Keflavík
0-1 Kári Sigfússon '61
Björn Aron Björnsson '77 1-1
Oumar Diouck '79 2-1
Dominik Radic '90 , víti 3-1
26.06.2025  -  19:15
JBÓ völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Maður leiksins: Oumar Diouck
Byrjunarlið:
1. Aron Snær Friðriksson
2. Davíð Helgi Aronsson
3. Sigurjón Már Markússon
6. Arnleifur Hjörleifsson ('68)
8. Kenneth Hogg
9. Oumar Diouck ('88)
10. Valdimar Jóhannsson ('83)
11. Freysteinn Ingi Guðnason ('68)
13. Dominik Radic
16. Svavar Örn Þórðarson
21. Viggó Valgeirsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
12. Bartosz Matoga (m)
5. Arnar Helgi Magnússon ('83)
17. Símon Logi Thasaphong ('68)
18. Björn Aron Björnsson ('68)
23. Erlendur Guðnason
25. Ýmir Hjálmsson ('88)
29. Jayden Mikael Rosento
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Arnar Freyr Smárason
Sigurður Már Birnisson
Viktor Þórir Einarsson
Jaizkibel Roa Argote

Gul spjöld:
Svavar Örn Þórðarson ('56)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Njarðvík brýtur blað í sinni sögu! Fyrsti deildarsigur Njarðvíkinga á Keflavík í þeirra sögu staðreynd og þeir nýta víti að auki!

Frábær endurkomusigur!

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
94. mín
Njarðvíkingar að sleppa í gegn en Keflvíkingar bjarga þessu.
Sverrir Örn Einarsson
93. mín
Keflavík bankar en Njarðvíkurvörnin heldur.
90. mín Mark úr víti!
Dominik Radic (Njarðvík)
NJARÐVÍK SKORAR ÚT VÍTI! Ég skal segja ykkur það! Njarðvík nýtir hér vítaspyrnu!!!

Dominik Radic skorar af öryggi!
89. mín Gult spjald: Kári Sigfússon (Keflavík)
89. mín
Er vítabölvin á Njarðvík ennþá?
89. mín
VÍTASPYRNA FYRIR NJARÐVÍK! Brotið á Ými sem er nýkomin inná!
88. mín
Inn:Ari Steinn Guðmundsson (Keflavík) Út:Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík)
88. mín
Inn:Ýmir Hjálmsson (Njarðvík) Út:Oumar Diouck (Njarðvík)
Stingur við á leið útaf.
87. mín
Eiður Orri með tilraun rétt framhjá markinu.
86. mín
Maður finnur smá spennu í loftinu núna eftir mörkin.

Keflavík þarf að fara elta og Njarðvíkingar eru aðeins passívari.
85. mín
Inn:Ernir Bjarnason (Keflavík) Út:Frans Elvarsson (Keflavík)
85. mín
Inn:Stefán Jón Friðriksson (Keflavík) Út:Axel Ingi Jóhannesson (Keflavík)
83. mín
Inn:Arnar Helgi Magnússon (Njarðvík) Út:Valdimar Jóhannsson (Njarðvík)
80. mín
Inn:Marin Mudrazija (Keflavík) Út:Muhamed Alghoul (Keflavík)
80. mín
Inn:Gabríel Aron Sævarsson (Keflavík) Út:Stefan Ljubicic (Keflavík)
79. mín MARK!
Oumar Diouck (Njarðvík)
Stoðsending: Kenneth Hogg
NJARÐVÍKINGAR KOMNIR YFIR! Boltinn berst núna út hægri þar sem Svavar Örn kemur boltanum á Kenneth Hogg sem á frábæra fyrirgjöf fyrir markið og Oumar Diouck stingur sér framfyrir og stangar boltann í netið!

NJARÐVÍKINGAR BÚNIR AÐ SNÚA ÞESSU VIÐ!
77. mín MARK!
Björn Aron Björnsson (Njarðvík)
Njarðvíkingar jafna! Það er fjör!

Oumar Diouck með boltann úti vinstri og kemur með bolta fyrir markið þar sem varamaðurinn Björn Aron Björnsson mætir og stýrir í netið!

ALLT JAFNT!
76. mín
Axel Ingi með fastan bolta fyrir markið en Njarðvíkingar sleppa.
74. mín Gult spjald: Muhamed Alghoul (Keflavík)
73. mín
Njarðvíkinga bjarga! Keflavík töluvert hættulegri í síðari hálfleiknum og Stefán Ljubicic rennir boltanum framhjá Aroni Snær fyrir markið en Njarðvíkingar ná að sparka boltanum frá.
72. mín
Oumar Diocuk í baráttu við Axel Inga og stálheppinn að sleppa án spjalds.
Elvar Geir Magnússon
68. mín
Keflvíkingar í færi en Muhamed Alghoul skallar framhjá.
68. mín
Inn:Björn Aron Björnsson (Njarðvík) Út:Arnleifur Hjörleifsson (Njarðvík)
68. mín
Inn:Símon Logi Thasaphong (Njarðvík) Út:Freysteinn Ingi Guðnason (Njarðvík)
65. mín
Valdimar Jóhannsson tekur spyrnuna en Sindri Kristinn ekki í teljandi vandræðum með hana.
64. mín
Njarðvíkingar fá aukaspyrnu við vítateigshornið. Vildu víti stuttu áður þegar boltinn fór í hendina á varnarmanni Keflavíkur en hendinn alveg uppað líkama svo hefði verið hart að dæma eitthvað á það.

61. mín MARK!
Kári Sigfússon (Keflavík)
Bætir upp! Boltinn fellur fyrir hann og núna gerir hann enginn mistök!

Fyrirgjöf sem Njarðvíkingar komast fyrir en ná ekki að koma burt og hann endar hjá Kára Sigfússyni sem klárar færið vel.

KEFLAVÍK LEIÐIR!
58. mín
DAAAUÐAFÆRI!!! Innkast hjá Njarðvík fer hörmulega og Keflavík eru sloppnir tveir í gegn en Kári Sigfússon maður lifandi!! Leitar af snertingu og fer niður og klúðrar þessu í stað þess að leggja hann bara til hliðar á félaga sinn fyrir opnu marki eða reyna að leggja hann bara sjálfur framhjá Aroni Snær.
Kenneth Hogg nær að hlaupa þá uppi og truflar þetta DAAAUUÐAFÆRI!!

JAHÉRNA HÉR!!
56. mín
Muhamed Alghoul tekur aukaspyrnu en Aron Snær grípur hana fagmannlega.
56. mín Gult spjald: Svavar Örn Þórðarson (Njarðvík)
Rennur með Kára Sigfússon og tekur hann niður.
52. mín
Njarðvíkingar í stórsókn eftir hornið en ná þó ekki að koma tilraun á markið og Keflavík nær að hreinsa.
51. mín
Fyrsta horn seinni hálfleiks er Njarðvíkinga.
48. mín
Oumar Diouck með skot rétt framhjá.
47. mín
Muhamed Alghoul með skalla framhjá markinu.
46. mín
Eiður Orri sparkar síðari hálfleiknum af stað.
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik en verið heilt yfir ágætis skemmtun.

Njarðvíkingar verið betri en vantar aðeins upp á drápseðlið í þeim. Keflavík varist þokkalega en gengið illa að skapa sér einhver færi.

Tökum okkur stutta pásu og snúum svo aftur með síðari hálfleikinn eftir svo gott sem korter.
45. mín
Oumar Diouck með sendingu inn á teig sem Valdimar Jóhannsson hendir sér á en auðveldur bolti fyrir Sindra Kristinn.
Valdi liggur þó eitthvað eftir.
41. mín
Kári Sigfússon með fættulegan bolta á fjærsvæðið úr aukaspyrnu en boltinn fór útaf samkv. aðstoðardómara.
Hvort það hafi verið úr aukaspyrnunni eða færinu útfrá aukaspyrnunni skal ósagt látið.
39. mín
Arnleifur lyftir boltanum fyrir markið en þarna vantaði einhvern á fjærstöngina.
35. mín Gult spjald: Frans Elvarsson (Keflavík)
Ætla ekki að segja að fólkið á svæðinu sé sjokkerað yfir því að hann sé að ná sér í spjald.

Fer kröftuglega í Arnleif og uppsker fyrsta spjald leiksins.
34. mín
Eiður Orri gerir vel í baráttu við Davíð Helga en er með litla hjálp svo hann lætur vaða fyrir utan teig og Aron Snær ekki í teljandi vandræðum.
33. mín
Oumar Diouck með tilraun sem Sindri Kristinn ver.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
33. mín
Yfir! Valdimar Jóhannsson stígur á boltann í uppspilinu og Keflavík komst í góða stöðu. Frans finnur Kára Sigfússon á teignum en hann lyftir boltanum yfir markið.
28. mín
Freysteinn Ingi fær pláss úti hægri en Gunnlaugur Fannar sér við honum þegar hann reynir að keyra á hann.
27. mín
Eiður Orri vinnur hornspyrnu fyrir Keflavík. Þeirra fyrsta í þessum leik.
25. mín
Nálægt! Dominik Radic með frábæra pressu og hirðir boltann af Sindra Kristinn í marki Keflavíkur en leggur svo boltann í hliðarnetið.
20. mín
Njarðvíkingar að keyra af stað í skyndisókn eftir að brotið virtist hafa verið á Freystein Inga en þess í stað er dæmt hendi á hann þegar hann féll til jarðar og Keflavik fékk aukaspyrnu.
18. mín
Keflavík í góðri stöðu en Frans setur hann í bakið á Stefán Ljubicic sem lá í teignum og bjargar fyrir Njarðvík.
16. mín
Oumar Diouck með skalla að marki en beint í hendurnar á Sindra Kristinn.
13. mín
Njarðvíkingar í flottri stöðu og Oumar Diouck reynir að senda boltann fyrir markið en Keflvíkingar komast fyrir. Oumar Diouck vill fá hendi en fær ekkert frá Ívari Orra.
10. mín
Ásgeir Páll tekur spyrnuna en hún fer yfir markið.
10. mín
Keflavík fær aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan vítateig Njarðvíkur.
8. mín
Þeir skora ekki! Njarðvíkingar í hörku færi! Freysteinn Ingi með flottan sprett inn á teig og kemur boltanum fyrir markið en Dominik Radic rétt missir af honum en Valdimar Jóhannsson hittir hann svakalega illa og kemur skotinu ekki að markinu og Keflavík hreinsar.
6. mín
Viggó Valgeirs nálægt því að koma sér í bölvuð vandræði en sleppur með það þegar hann missti boltann neðarlega á vellinum.
5. mín
Njarðvíkingar sækja sér fyrsta horn leiksins.
4. mín
Keflavík setur boltann í netið en flaggið á loft.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru heimamenn sem sparka okkur af stað.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar Tíunda umferð Lengjudeildarinnar fer af stað í kvöld og það er áhrifavaldurinn Arnar Laufdal sem spáir í leikina að þessu sinni. Arnar er þessa stundina í Serbíu þar sem hann er að sjá um samfélagsmiðlasköpun fyrir kvennalandsliðið í aðdraganda Evrópumótsins sem hefst í Sviss í næstu viku.

Njarðvík 2 - 1 Keflavík
Þeir grænu í Reykjanesbæ taka þennan leik og koma sér á toppinn í bili. Keflvíkingar eru ennþá að sleikja sárin eftir að hafa sent Rúnar Inga Eysteinsson á lán í Vogana og það sést á markaskorun liðsins. Eina von Keflvíkinga til þess að sigra þennan leik er að byrja með Ara Stein í liðinu, því miður sé það ekki gerast og Njarðvíkingar refsa þeim fyrir það.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Innbyrðis viðureignir - Brjóta Njarðvíkingar blað í sinni sögu? Þessi félög eiga sér ríka sögu á körfuboltavellinum þar sem harðar baráttur um Íslandsmeistaratitla hafa átt sér stað og slagur liðana öllu jafna kallaður "El Clasico".

Í fótbolta er þó ekki jafn rík hefð á að þessi lið mætist. Baráttan um bæinn á sér aðeins sex viðreignir í deildarkeppni á vegum KSÍ samkv. vef KSÍ.

Þetta er aðeins í fjórða skipti í sögunni sem þessi lið eru saman í deild. Fyrsta skiptið var árið 2003 þar sem Keflavík hafði betur í báðum leikjunum það sumarið 5-2 annarsvegar og 2-0.

2019 mættust þessi lið aftur í þá Inkasso deildinni. Fyrri leikur liðana endaði með markalausu jafntefli áður en Frans Elvarsson braut hjörtu Njarðvíkinga með marki á 90. mínútu í seinni leik liðana sem endaði 1-0.

Á síðasta keppnistímabili var jafntefli niðurstaðan í báðum þessum leikjum. Fyrri leikurinn fór 1-1 þar sem Ásgeir Páll Magnússon skoraði fyrsta mark leiksins en Arnar Helgi Magnússon jafnaði metin í síðari hálfleiknum og þar við sat. Markalaust var svo í seinni leik liðana.

Njarðvík hefur aldrei unnið Keflavík í deildarkeppni í sinni sögu en verður breyting þar á í kvöld eða mun tak Keflavíkur halda?

Þess má þó til gamans geta að þessi lið hafa þrívegis mæst í Bikarkeppni KSÍ. Fyrsta viðreign liðana var 1985 þar sem Keflavík hafði betur með þremur mörkum gegn engu en síðustu tvö skipti sem þessi lið hafa mæst í Bikarkeppni hafa Njarðvíkingar hrósað sigri og í bæði skiptin hefur það verið í Keflavík. Fyrst 0-1 sigur 2019 og svo eftirminnilegur 1-4 sigur 2022.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leiðin úr lengjunni Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.

Fyrir leik
Boð og bönn Bæði lið verða án lykilmanna hér í kvöld sem taka út leikbönn.
Heimamenn í Njarðvík verða án Amin Cosic, Joao Ananias og Tómas Bjarka Jónsson sem allir taka út leikbann fyrir fjórar áminningar í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Keflavík verða án Nacho Heras sem fékk rautt spjald í síðusta leik gegn ÍR, sitt annað rauða spjald á tímabilinu svo hann fór í tveggja leikja bann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Njarðvík Njarðvíkingar sóttu stig á Domusnovavellinum í síðustu umferð þegar þeir gerðu 1-1 jafntefli við Leikni R.
Njarðvík eru áfram taplausir og sitja í öðru sæti deildarinnar eftir níu umferðir með fjóra sigra og fimm jafntefli.

Njarðvíkignar hafa skorað 21 mark í sumar og fengið á sig níu. Mörk Njarðvíkur hafa raðast niður á:

Oumar Diocuk - 6 mörk
Amin Cosic - 4 mörk
Dominik Radic - 3 mörk
Tómas Bjarki Jónsson - 2 mörk
Valdimar Jóhannsson - 2 mörk
*Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Keflavík Keflavík hefur aðeins hökktað síðustu umferðir eftir að hafa byrjað tímabilið þokkalega. Keflvíkingar hafa ekki sótt sigur í síðustu fjórum leikjum sínum í deild en þeir hafa tapað fyrir HK og gert svo jafntefli við Fylki, Völsung og ÍR. Þeir vonast til þess að komast aftur á sigurbraut í kvöld.
Keflavík sitja fyrir þessa umferð í 7.sæti deildarinnar með 12 stig.

Keflavík hefur skorað 15 mörk og fengið á sig 9. Mörk Keflavíkur hafa raðast niður á:

Gabríel Aron Sævarsson - 4 mörk
Kári Sigfússon - 3 mörk
Muhamed Alghoul - 2 mörk
Nacho Heras - 1 mark
Stefan Ljubicic - 1 mark
Sindri Snær Magnússon - 1 mark
Ernir Bjarnason - 1 mark
Ari Steinn Gunnarsson - 1 mark


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið Ívar Orri Kristjánsson heldur utan um flautuna í kvöld og honum til aðstoðar verða Guðni Freyr Ingvason og Kristofer Bergmann.
Eftirlitsmaður KSÍ er Ingvar Örn Gíslason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á JBÓ Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá JBÓ vellinum í Njarðvík þar sem baráttan um bæinn fer fram milli Njarðvíkur og Keflavíkur í 10.umferð Lengjudeildarinnar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
21. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson ('85)
6. Sindri Snær Magnússon
10. Stefan Ljubicic ('80)
11. Muhamed Alghoul ('80)
20. Marin Brigic
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Eiður Orri Ragnarsson ('88)
24. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
25. Frans Elvarsson (f) ('85)
92. Kári Sigfússon
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Rúnar Gissurarson (m)
5. Stefán Jón Friðriksson ('85)
7. Gabríel Aron Sævarsson ('80)
8. Ari Steinn Guðmundsson ('88)
9. Valur Þór Hákonarson
14. Marin Mudrazija ('80)
18. Ernir Bjarnason ('85)
- Meðalaldur 27 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ)
Ómar Jóhannsson
Hólmar Örn Rúnarsson
Luka Jagacic
Ásgeir Orri Magnússon
Guðmundur Árni Þórðarson
Óskar Ingi Víglundsson

Gul spjöld:
Frans Elvarsson ('35)
Muhamed Alghoul ('74)
Kári Sigfússon ('89)

Rauð spjöld: